Donald Trump Forseti Banda­ríkj­anna heilsar þing­mönnum eftir að hafa ávarpað sam­eig­in­legan þing­fund í þing­hús­inu í Washington, þann 4. mars 2025. Mynd: AFP

Heimurinn hefur breyst — en Ísland ekki

Heimsókn Zelenskís til Banda­ríkj­anna og fundur hans með Trump og Vance mark­aði þátta­skil – heim­ur­inn er breyttur.

Það er alveg sama hvort ég tala við félaga mína í Berlín, London, París eða Boston síð­ustu vik­una, alls staðar er fólk með hug­ann við hvað gerð­ist eig­in­lega í Hvíta hús­inu síð­asta föstu­dag. Ljóst er að um atburð var að ræða sem breytir heim­inum. Heimsókn Zelenskís til Banda­ríkj­anna og fundur hans með Trump og Vance mark­aði þátta­skil – heim­ur­inn er breyttur.

Við fengum að sjá árás tveggja hrotta, eins og Anne App­lebaum kallar það í grein í Atlantic fyrir tveimur dögum. Þeir stýra landi sem eitt sinn var talið útvörður hins frjálsa heims – og hefur haldið því hlut­verki í krafti síns mikla her­styrks. Eftir fund­inn hafa Banda­ríkja­menn dregið til baka hern­að­ar­að­stoð til Úkraínu og vilja enn fá samn­ing um aðgang að helm­ingi auð­linda þjóð­ar­innar.

Sá sem þeir réð­ust á er leik­ari sem lenti í því að verða for­seti lands síns og lenti síðan í því að ráð­ist …

Kjósa
68
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Tökum Dani sem dæmi, þeir börðust alveg í korter í síðustu heimsstyrjöld. Mér finnst að við ættum bara að halda okkur við Eurovition.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár