Mynd: AFP

Leikflétta Trumps og framtíð Palestínu

Donald Trump leikur á þjóð­ar­leið­toga Evrópu og Mið-Aust­ur­landa, þar sem yfir­lýst mark­mið hans er að skapa frið og til­gang­ur­inn á að helga með­alið, sama hvað það kostar íbúa Palest­ínu.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hét því að koma á friði fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs á fyrra kjör­tíma­bili sínu. Hann hefur jafn­framt haldið því fram að stríðs­á­tökin í Úkraínu hefðu aldrei átt sér stað ef hann hefði verið for­seti og hans fyrsta verk sem end­ur­kjör­inn for­seti væri að stilla til friðar. Hvernig ber einn valda­mesti þjóð­ar­leið­togi heims sig að? 

Leið­ar­ljós Trumps að eigin sögn er friður í krafti styrks. Það er leiðin til að ná friði að hans mati og leiðin til koma í veg fyrir að Banda­ríkin sog­ist inn í kostn­að­ar­söm stríðs­á­tök. 

Aðferð­ar­fræði for­set­ans virð­ist vera sú að koma öllum fyrst í upp­nám með því að skjóta yfir markið með orðum sínum og gjörðum og fá þannig alla til að stökkva upp til handa og fóta. Þarna not­færir hann sér alþjóð­lega stöðu BNA sem stór­veldi og skapar sér um leið samn­ings­stöðu eða svig­rúm til að beita bæði þrýst­ingi og til­slök­unum, þar sem Trump kemur til móts við óskir ann­arra upp að vissu marki. Hann tekur til sinna ráða án sam­ráðs við aðra og skapar sér þannig for­skot sem leiðir til þess á end­anum að allt verður eftir hans höfði. 

Fyrsti fundurinn með Netanyahu

Lítum til þró­unar mála und­an­farið í mál­efnum Gasa og Úkraínu. Markmið for­set­ans er að koma á friði sem og end­ur­heimta og draga úr kostn­aði banda­rískra skatt­greið­enda við að tryggja öryggi og varnir í Mið-Aust­ur­löndum og Evrópu. 

Fyrsti þjóð­ar­leið­tog­inn sem Trump fund­aði með eftir emb­ætt­is­tök­una var Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels. Hann mætti í eigin per­sónu í Hvíta húsið og eftir fund þeirra var hald­inn blaða­manna­fundur þar sem Trump kynnti til­lögu sína um flutn­ing allra íbúa Gasa yfir til Egypta­lands og Jórdaníu. Hann til­kynnti jafn­framt að Banda­ríkin myndu taka yfir Gasa og reisa þar glæsi­legan bað­strand­arbæ fyrir fólk alls staðar að úr heim­inum. Atburða­rásin sem fór af stað í kjöl­farið var að bæði Egypta­land og Jórdanía and­mæltu harð­lega, áttu fund með ráða­mönnum í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum og Sádi-Arabíu, þrýst­ingur á að Hamas færi frá völdum var auk­inn frá ein­staka Aara­balöndum og Arababanda­lag­inu (e. Arab League) með þeim rökum að það væri Palest­ínu­mönnum og hags­munum þeirra fyrir bestu, ríkin fjögur leggja fram mót­til­lögu sem felur í sér normalís­er­ingu milli Arabalanda og Ísraels, full­veldi Palest­ínu, svæð­is­bundið varn­ar­fyr­ir­komu­lag og öryggi fyrir Ísra­els­ríki (e.  reg­ional defense arrangements and security) og fara að vinna að áætlun um end­ur­bygg­ingu Gasa undir for­ystu Sádi-Arabíu, þar sem gert er ráð fyrir áfram­hald­andi búsetu Palest­ínu­manna á Gasa. Að lokum lítur út fyrir að Hamas-sam­tökin séu til­búin að fara frá völdum og gefa þau yfir til heima­stjórn­ar­innar. 

Þrýstingur á Úkraínu

Tillögu Trumps um frið í Úkraínu var lekið. Trump tal­aði við Valdimir Pútín Rúss­lands­for­seta í síma og eftir það við Volody­myr Zelensky, for­seta Úkraínu. Þar hefur Trump hugs­an­lega rætt við for­set­ann um aðgengi Banda­ríkj­anna að auð­lindum Úkraínu, gasi og olíu, sem leið fyrir úkra­ínska ríkið til að end­ur­greiða fyrir banda­ríska hern­að­ar­að­stoð. Það er komið að skulda­dögum og sam­komu­lag er nú þegar í höfn. Fyrst eftir þrýst­ing frá Trump og síðan til­slak­anir.  

Nokkru eftir sím­tal Trumps og Pútíns funda Marco Rubio, banda­ríski utan­rík­is­ráð­herr­ann og Sergey Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, ásamt fylgd­ar­liði í Sádi-Arabíu til að leggja lín­urnar fyrir frið­ar­við­ræður milli Rússa og Úkra­ínu­manna. Það er gert án allrar aðkomu Úkraínu og Evrópu- og NATO-landa. Val á fund­ar­stað er athygl­is­vert og bendir til þess að Trump sé að taka upp þráð­inn þar sem frá var horfið í lok fyrra kjör­tíma­bils hans, þegar samn­ingur á milli Sádi-Arabíu og Ísraels, með milli­göngu Banda­ríkj­anna, um frið­sam­legt stjórn­ar­sam­band í anda Abrahams-sam­komu­lags­ins var í burð­ar­liðnum. 

Mikilvægar tímasetningar 

Tíma­setn­ingar Trumps eru lyk­il­at­riði. Fundir með Net­anyahu og seinna Pútín voru skömmu áður en örygg­is­ráð­stefnan í München fór fram. Allt sem Trump gerir leiðir til þess að ráða­menn í sitt­hvorum heims­hlut­anum finna sig knúna til að taka á sig aukna ábyrgð, þegar kemur að því að tryggja frið og öryggi í sínum heims­hluta, með til­heyr­andi kostn­aði fyrir þessi ríki en sparn­aði fyrir Banda­ríkin. 

Þetta kall­ast að setja mál á dag­skrá. Mest fór þó fyrir umræðu um stöðu varnar- og örygg­is­mála í Evrópu í tengslum við tal Trumps um hlut­verk Banda­ríkj­anna innan NATO og hug­myndir hans um hvernig enda megi stríðs­á­tökin í Úkraínu og stuðla að friði með eft­ir­gjöf til Rússa og í raun til Banda­ríkj­anna líka. 

Eftir örygg­is­mála­ráð­stefn­una boð­aði Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti til tveggja neyð­ar­funda vegna Úkraínu sem áttu sér stað um svipað leyti og utan­rík­is­ráð­herrar Banda­ríkj­anna og Rúss­lands fund­uðu í Sádi-Arabíu. Síðan fór Frakk­lands­for­seti á fund Trumps, fyrstur þjóð­ar­leið­toga Evrópu. Þar sagði hann að Evrópa myndi standa sig betur varð­andi öryggis- og varn­ar­mál. Hver leið­tog­inn á fætur öðrum segir slíkt hið sama, sem er á vissan hátt mót­sagna­kennt, að auknar líkur á friði hald­ist í hendur við aukna hern­að­ar­upp­bygg­ingu innan Evrópu, sam­kvæmt kröfu Trumps að því er virð­ist vera. Draum­ur­inn um frið stuðlar þannig að auk­inni hern­að­ar­hyggju.    

Staðan í Palestínu 

Um leið og mikil umræða heldur áfram að fara fram um Úkraínu, öryggis- og varn­ar­mál Evrópu og sam­bandið við Banda­ríkin, hefur minna farið fyrir umræðu um fram­vindu mála á Gasa og í Palest­ínu. 

Frá upp­hafi fyrra kjör­tíma­bils síns hefur Trump sagt að hann myndi koma á friði í Mið-Aust­ur­löndum. Það sé mark­miðið og til­gang­ur­inn helgi með­alið, enda má halda því fram með rökum að aðdrag­and­inn að hinni hörmu­legu árás Hamas þann 7. októ­ber 2023 hafi verið frum­kvæði Trumps um hina svoköll­uðu Abrahams-samn­inga.

Það eru samn­ingar sem eiga að stuðla að frið­sam­legu stjórn­mála­sam­bandi milli Arabalanda og Ísraels, eða normalís­er­ingu sam­skipta. Það sem ein­kennir samn­ing­ana er hins vegar að krafan um full­valda ríki Palest­ínu er ekki lengur skil­yrði fyrir normalís­er­ingu, líkt og verið hefur síðan árið 2002, með til­komu frið­ar­til­lögu Arababanda­lags­ins. Þvert á móti fela Abrahams-samn­ing­arnir í sér skeyt­ing­ar­leysi gagn­vart mál­stað Palest­ínu­manna. Hvatinn fyrir ríkin sem und­ir­rit­uðu samn­ing­ana á tíma­bil­inu 2020 til 2021 var þessu skeyt­ing­ar­leysi yfir­sterk­ari. 

Sem dæmi við­ur­kenndu Banda­ríkin fyrst allra í heim­inum yfir­ráð Marokkó yfir Vestur-Sahara í skiptum fyrir und­ir­ritun samn­ings­ins. Verð­launin til Súdans voru að taka þau af svörtum lista yfir ríki sem veita hryðju­verka­sveitum stuðn­ing. Þrátt fyrir mót­mæli bæði heima­stjórnar Palest­ínu­manna og Hamas-sam­tak­anna gegn samn­ing­unum þá var haldið áfram veg­inn. Samn­ingur við Sádi-Arabíu var í far­vatn­inu þegar Hamas-sam­tökin gerðu árás 2023.

Hugmyndin um flutning Palestínumanna frá Gasa

Eftir að Trump tók aftur við völdum 2025 hefur hann haldið veg­ferð sinni áfram. Núna þegar Gasa er í rúst er mark­miðið enn hið sama, að koma á friði hvað sem það kostar Palest­ínu­menn, virð­ist vera.

Sem fyrr segir var fyrsti fundur Trumps með erlendum þjóð­ar­leið­toga með Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels. Eftir fund þeirra fór afar vel með þjóð­ar­leið­tog­unum tveimur á blaða­manna­fundi í beinni útsend­ingu. Trump kall­aði Net­anyahu alltaf gælu­nafni hans, Bibi. Að lokum tók hann utan af gjöf­inni til hans þegar hann greindi frá til­lögu sinni um að allir Palest­ínu­menn á Gasa yrðu fluttir þaðan yfir til Egypta­lands og Jórdaníu. Banda­ríkin myndu síðan taka land­svæði Gasa yfir, reisa þar glæsi­legan strand­stað og skapa atvinnu fyrir fólk alls staðar að úr heim­inum. Bibi tók vel í hina gölnu hug­mynd hins banda­ríska banda­manns síns og besta vinar.

Net­anyahu hefur síðan haldið hug­mynd Trumps á lofti, ásamt nokkrum sam­starfs­ráð­herrum og banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­anum, Marco Rubio. Það gerir hann þrátt fyrir að bæði Egyptar og Jórdanir hafi and­mælt þessum fyr­ir­ætl­unum um leið og þær voru kynntar. 

Konungur Jórdaníu stendur fast á sínu

Abdullah II bin Al-Hussein, kon­ungur Jórdaníu, hefur staðið fast á sínu þó að Trump hafi gefið í skyn, í heim­sókn kon­ungs­ins til Washington D.C., að banda­rískur stuðn­ingur við Jórdaníu yrði ella dreg­inn saman. Lög hafa verið sam­þykkt af þing­heimi Jórdaníu um að óheim­ilt sé fyrir íbúa Gasa að taka sér var­an­lega búsetu í land­inu. Á sama tíma hefur kon­ungur Jórdaníu reynt að sann­færa Trump um að hug­myndin sé ekki til þess fallin að fá Sádi-Araba til að skrifa undir Abrahams-sam­komu­lag við Ísrael, sem er sam­eig­in­legt mark­mið Trumps og Net­anyahu.

Þrátt fyrir það hefur Trump haldið áfram þeim mál­flutn­ingi að Palest­ínu­mönnum skuli, að minnsta kosti, vera gef­inn sá val­kostur að yfir­gefa Gasa fyrir fullt og allt. Blaða­kona hafði síðan eftir Gideon Sa’ar, utan­rík­is­ráð­herra Ísraels, á örygg­is­ráð­stefn­unni í München að það sem fólk kall­aði Palest­ínu væri land Ísra­els­ríkis: „What you call Palestine – this is the land of Israel.“

Þetta eru sömu orð og land­töku­fólk á Vest­ur­bakk­anum og Austur-Jer­úsalem notar til að rétt­læta rán sitt á landi og yfir­töku bygg­inga Palest­ínu­manna. Rétt­læt­ingin er sú að þau séu ein­göngu að taka það sem til­heyrir þeim nú þegar, land Palest­ínu, Júdea og Samaría. 

Andstaða við tillögu Trumps 

Egypta­land og Jórdanía eru ekki ein á báti í and­stöðu við hug­mynd Trumps. Arabaríkin öll sem eitt, með Sádi-Arabíu í broddi fylk­ingar, eru á öðru máli en banda­ríski for­set­inn. Það sama gildir um þunga­vigt­ar­menn í banda­rískum stjórn­málum.

Repúblikana­megin hefur öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Lindsey Graham opin­ber­lega afskrifað fyr­ir­ætl­anir Trumps. Graham er mik­ill stuðn­ings­maður Trumps, en jafn­framt áhrifa­maður þegar kemur að utan­ríkis- og þjóðar­ör­ygg­is­málum. Hann hefur sagt að innan öld­unga­deild­ar­þings­ins sé eng­inn áhugi á yfir­töku Banda­ríkj­anna á Gaza.

Demókrata­megin er það öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Richard Blu­ment­hal sem telur að Arabaríkin verði að koma með raun­hæfa til­lögu um hvernig málum á Gasa skuli fyr­ir­komið.

Þeir voru báðir í þing­manna­sendi­nefnd sem átti fund með Benjamin Net­anyahu í Tel Aviv, eftir fund hans með Trump í Washington D.C. Eftir fund­inn í Tel Aviv var haft eftir Graham að það eina sem Trump hefði komið til leiðar var að Arabaríkin vökn­uðu upp og löngu tíma­bærri umræðu var hrundið af stað. Það væri nú þeirra að finna betri val­kost fyrir Gasa en til­lögu Trumps.  

Funduðu um framtíð Gasa

Í kjöl­farið áttu full­trúar Sádi-Arabíu, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna, Jórdaníu og Egypta­lands fund til að ræða fram­tíð Gasa og koma með mót­til­lögu við til­lögu Trumps.

Haft var eftir Blu­ment­hal að kon­ungur Jórdaníu hefði sann­fært hann um að á leið­inni væri plan sem fæli í sér normalís­er­ingu milli Arabalanda og Ísraels, full­veldi Palest­ínu, svæð­is­bundið varn­ar­fyr­ir­komu­lag og öryggi fyrir Ísra­els­ríki (e.  reg­ional defense arrangements and security), eins og fyrr segir. Ef til­lagan væri raunsæ væru vatna­skil í upp­sigl­ingu að mati Blu­ment­hal.

Arabaríki hafa einnig verið að vinna að áætlun um end­ur­bygg­ingu Gasa undir for­ystu Egypta­lands. Hamas-sam­tökin hafa gefið til kynna að þau séu reiðu­búin til að fara frá völdum í kjöl­far auk­ins þrýst­ings frá leið­togum í Mið-Aust­ur­löndum. Var meðal ann­ars haft eftir Mohamed bin Zayed, ráð­gjafa for­seta Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna, og Ahmed Aboul Gheit, fram­kvæmda­stjóra Arababanda­lags­ins, að það væri Palest­ínu­mönnum fyrir bestu að Hamas færi frá völdum.

Sakar heimastjórnina um píslarvættavæðingu

Á sama tíma hefur Net­anyahu opin­ber­lega verið mót­fall­inn því að heima­stjórn Palest­ínu­manna taki við stjórn­inni á Gasa, enda lít­ill sem eng­inn munur á Hamas og heima­stjórn­inni að hans mati. Máli sínu til stuðn­ings heldur hann því fram að heima­stjórnin ýti undir rót­tækni með áróðri meðal ung­menna í skólum Palest­ínu, með písl­ar­vætta­væð­ingu og greiðslum til fjöl­skyldna þeirra Palest­ínu­manna sem eru fang­els­aðir eða drepnir af Ísra­els­her.

Forseti Palest­ínu, Mahmoud Abbas, hefur brugð­ist við þessum ásök­unum með því að sam­þykkja lög sem afnema greiðslur til fjöl­skyldna þeirra sem eru fang­els­aðir eða drepnir í bar­átt­unni gegn her­nám­inu. Þrátt fyrir það hefur Net­anyahu end­ur­tekið að hann sé hlynntur hug­mynd Trumps um að allir íbúar Gasa hverfi þaðan og mót­fall­inn því að heima­stjórn Palest­ínu­manna taki við stjórn­ar­taumunum.

Á sama tíma hefur Times of Israel eftir þremum emb­ætt­is­mönnum að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi sagt síð­ast­liðið sumar að það væri hugs­an­lega hlut­verk fyrir heima­stjórn­ina í Gasa eftir að Hamas-sam­tökin væru farin frá, sem er í sam­ræmi við hug­myndir Joe Bidens, fyrrum for­seta Banda­ríkj­anna, leið­toga Mið-Aust­ur­landa og Evr­ópu­sam­bands­ins. 

Framtíðin á Gasa og Vesturbakkanum

Sú her­kænska að ganga fram af öllum virð­ist vera að virka til að ná mark­miði Trumps og að hluta til mark­miðum Ísra­els­stjórnar: Arabaríkin eru að koma Hamas frá völdum, koma með til­lögur að upp­bygg­ingu á Gasa og hvernig megi tryggja öryggi Ísraels.  

Á sama tíma og leið­togar Mið-Aust­ur­landa ræða fram­tíð Gasa og leið­togar Evrópu ræða fram­tíð Úkraínu, fer Ísra­els­her fram með hörku gegn Palest­ínu­mönnum á Vest­ur­bakk­anum. Yfir­lýstur til­gangur aðgerða hers­ins er að upp­ræta hryðju­verka­starf­semi. Nú þegar er búið að rýma þrennar flótta­manna­búðir í Jenin, Tulkarem og Nur Shams sem eru eins og hvert annað íbúða­hverfi. Um 42 þús­und Palest­ínu­manna eru heim­il­is­lausir og hafa að engu að hverfa þar sem her­inn hefur einnig verið að jafna heim­ili fólks við jörðu. Sá fjöldi sem nú er heim­il­is­laus leggst ofan á þann fjölda fólks sem hefur nú þegar verið neytt til að yfir­gefa heim­ili sín í allt að 50 þorpum á Vest­ur­bakk­anum í kjöl­far ofbeldis og árása vopn­aðra land­töku­manna. Þær árásir hafa átt sér stað í skugga árásanna á Gasa.

Á sama tíma eru aðgerðir í gangi í Austur-Jer­úsalem sem minna óþægi­lega mikið á bóka­brennur á tíma Þýska­lands nas­ism­ans. Ekki alls fyrir löngu voru tveir bræður, sem reka bóka­búð­ina Education Bookshop í Austur-Jer­úsalem, hand­teknir af óein­kenn­is­klæddum mönnum sem komu í skjóli nætur og lögðu bóka­búð­ina þeirra í rúst um leið og þeir unnu áætl­un­ar­verk sitt: fjar­lægðu óæski­legar bækur úr hillum búð­ar­innar. Það er búið að sleppa þeim bræðrum úr haldi gegn trygg­ingu og mjög ströngum skil­yrðum. 

Þetta er eitt. Annað er sá fjöldi fólks á Vest­ur­bakk­anum og á Gasa sem er heim­il­is­laust og á um sárt að binda. Um 48 þús­und hafa verið drepin á Gaza frá 7. októ­ber 2023 og fram til dags­ins í dag. Til við­bótar eru um 112 þús­und særðir. Tölur um mann­fall eru frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu í Gaza, sem talið er áreið­an­legt sam­kvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum en byggt á van­mati sam­kvæmt lækna­tíma­rit­inu Lanzet sem telur að að mann­fallið sé mun hærra.  

Alls voru 1,9 milljón manns eða 90 pró­sent íbúa neydd til að yfir­gefa heim­ili sín á flótta undan spreng­ing­unum Ísra­els­hers. Meiri­hluti íbú­anna hefur snúið aftur til síns heima eftir að vopna­hlé komst á. Meiri­hlut­inn hefur hins vegar ekki að neinu að hverfa þar sem um 55 pró­sent allra bygg­inga hafa orðið fyrir sprengju­árásum flug­véla og skrið­dreka Ísra­els­hers úr lofti og láði. Yfir 70 pró­sent heim­ila fólks hafa verið eyðilögð, meðal ann­ars með jarð­ýtum. Það varð til þess að banda­rísk stjórn­völd frystu inn­flutn­ing á jarð­ýtum til Ísraels í lok árs 2024.

Takmarkanir á mannúðaraðstoð

Þrátt fyrir vopna­hlé hefur Ísra­els­ríki haldið áfram að koma í veg fyrir inn­flutn­ing á tjöldum, sem og gáma­húsum, og hlýjum fatn­aði, sem veldur dauða fólks og heilsu­bresti. Slíkar tak­mark­anir á mann­úð­ar­að­stoð brjóta í bága við fyr­ir­skipun Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag um bráða­birgða­ráð­staf­anir vegna mál­sóknar Suður-Afríku á hendur Ísraels um þjóð­ar­morð.

Það sama gildir um allar þær hindr­anir sem eru í vegi ann­ars konar mann­úð­ar­að­stoðar, svo sem tak­mark­anir á inn­flutn­ingi bygg­ing­ar­efnis, meðal ann­ars til upp­setn­ingar á sal­ernum. Sjúk­dómar breið­ast út vegna skólp- og sorp­meng­unar. Lyf eru af skornum skammti. Um 83 pró­sent af allri mat­ar­að­stoð til Gaza síð­ast­liðið haust komst ekki á áfanga­stað. Um 94 pró­sent af vatns­forða Gaza er óhæfur til neyslu. Á fundi örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna í nóv­em­ber var talið að hætta væri á alls­herj­ar­hung­ursneyð á Gaza.

Ástandið hefur síður en svo batnað síðan þrátt fyrir vopna­hlé og mót­mæli fjölda hjálp­ar­sam­taka og alþjóða­stofn­ana. Starf­semi Flótta­manna­að­stoðar Palest­ínu­manna, UNRWA, er í upp­námi.  Samkvæmt könnun Sam­ein­uðu þjóð­anna þá eru um 90 pró­sent íbúa Gaza reglu­lega án matar í heilan dag og talið að um 50 pró­sent íbúa, eða um ein milljón, sé í hættu á að deyja vegna hung­urs. Í raun hefur ástandið versnað en ekki batnað sam­kvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum eftir að vopna­hlé komst á.

Á sama tíma eru raddir sem kalla eftir inn­limun Vest­ur­bakk­ans háværar. Þar fer fremstur í flokki Israel Katz, varn­ar­mála­ráð­herra Ísraels, sem stjórnar aðgerðum hers­ins á Vest­ur­bakk­anum og hefur fyr­ir­skipað hernum að und­ir­búa sig fyrir að veita Palest­ínu­mönnum aðstoð við að fara „af sjálfs­dáðum“ frá Gasa.

Margir hafa bent á að aðgerðir Pútíns Rúss­lands­for­seta gegn Úkraínu séu atlaga að Stofnsátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og alþjóða­kerf­inu sem skapað var til að tryggja frið við lok seinni heims­styrj­ald­ar­innar. Kallað er eftir sam­stöðu með Úkraínu, enda sé það í þágu þess að standa vörð um alþjóða­lög og alþjóða­kerfið. Hið sama má svo sann­ar­lega segja um alvar­leg brot Ísra­els­ríkis á alþjóða­lögum. Þau kalla á sam­stöðu með hinu hernumda ríki Palest­ínu og fólk­inu þar.


Höfundur er alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur
Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Hvernig væri að flytja alla Gyðinga frá Palestínu til USA og málið er leyst!
    Það þarf að leiðrétta þessa vitleysu að Gyðingar eigi einhvern RÉTT á að búa þarna í Palestínu.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár