Grammy-verð­launa­hafi Vík­ing­ur Heið­ar Ólafs­son vann til Grammy-verð­launa fyr­ir plötu sína þar sem hann flyt­ur Gold­berg-til­brigði Bachs. Hann fylgd­ist með verð­launa­há­tíð­inni í heima­húsi í Berlín og var bú­inn að und­ir­búa ljúfsára tapræðu sem hann snar­aði yf­ir í sig­ur­ræðu á ör­skots­stundu. Mynd: Ari Magg

Dveljum lengur við ósigra en sigra

Víkingur Heiðar Ólafsson var til­bú­inn með tapræðu þegar hann vann til Grammy-verð­launa fyrir plötu sína þar sem hann flytur Goldberg-til­brigði Bachs. Hann segir það mann­legt hlut­skipti að dvelja lengur við ósigra en sigra. Hann er fullur þakk­lætis og ætlar að „gefa í“ eins og hann kemst sjálfur að orði og verja meiri tíma í hljóð­ver­inu.

Ég er bara hérna í smá göngutúr með kon­unni minni, Höllu, við erum í Berlín og vorum að fá okkur rót­sterkt og gott kaffi af því við sváfum ekk­ert rosa­lega mikið í nótt,“ sagði Víkingur Heiðar Ólafsson, píanisti og nýbak­aður Grammy-verð­launa­hafi, þegar blaða­maður náði tali af honum á mánu­dag.

Grammy-verð­launin fóru fram í 67. sinn í Los Angeles á sunnu­dag í skugga gróð­ur­elda sem hafa geisað í Kali­forníu síð­ustu vikur. Víkingur er á tón­leika­ferða­lagi um Evr­ópu og horfði á verð­launa­af­hend­ing­una í Berlín heima hjá for­stjóra Deutsche Gramm­ophon. Víkingur hefði vissu­lega viljað vera við­staddur en aðstæður leyfðu það hrein­lega ekki. „Það er svo mikið sorg­ar­á­stand í Los Angeles vegna eld­anna sem hafa farið illa með fólk. Grammy-verð­launin voru allt öðru­vísi í ár en hefur verið. Við ákváðum á end­anum að fagna þessu í Berlín,“ segir hann.

Víkingur var til­nefndur í flokki klass­ískra ein­leiks­hljóð­færa­leik­ara fyrir plötu sína þar sem hann leikur Goldberg-til­brigði Johanns Sebast­i­ans Bachs, sem gefin er út af þýska útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Deutsche Gramm­ophon. Auk hans voru Andy Akiho, Curtis J Stewart, James Blachly & Experiential Orchestra, Mak Grgić & Ensemble Dissonance og Seth Parker Woods til­nefndir.

Nógu margar sigurræður farið í ruslið

Víkingur og Halla snæddu kvöld­verð heima hjá for­stjóra Deutsche Gramm­ophon ásamt yf­ir­mönn­um hjá út­gáfu­fyr­ir­tæk­inu Uni­ver­sal, en hann skrif­aði nýlega undir nýjan útgáfu­samn­ing við fyr­ir­tækin tvö. „Svo kveiktum við á sjón­varp­inu klukkan eitt eftir mið­nætti til að athuga hvernig þetta færi en ég var til­bú­inn að tapa. Þannig varð sig­ur­inn enn þá sæt­ari fyrir vikið. Þetta var geggjað kvöld,“ segir Víkingur. Í raun hélt hann sína eigin litlu verð­launa­há­tíð í heima­húsi í Berlín. „Grammy-hátíð í ynd­is­legu húsi og í ótrú­lega góðra vina hópi og sam­starfs­manna. Þetta var stór­kost­legt.“

Þakklæti er honum efst í huga. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er til­nefndur til Grammy-verð­launa og ég var búinn að búa mig undir von­brigðin að vinna ekki. Ég átti ekki von á að vinna. Þetta er stórt fyrir mig. Ég var á tón­leika­ferða­lagi í heilt ár að spila Goldberg-til­brigðin sem fyrir mér er stór­kost­leg­asta tón­verk tón­list­ar­sög­unnar, að minnsta kosti sem ég þekki. Að fá að eiga þennan tíma með þessu verki í heilt ár, spila um öll Banda­ríkin og um allan heim, þá kemur þetta núna eins og punkt­ur­inn yfir i-ið. Þetta er bara dásam­legt.“

Víkingur und­ir­bjó ekki sig­ur­ræðu í þetta sinn, hann segir nógu margar slíkar hafa farið í ruslið í gegnum tíð­ina. „Ég var búinn að und­ir­búa ljúfsára tapræðu í hug­anum en svo þurfti ég að segja nokkur orð í stof­unni. Ræðan var ein­föld: „Það að vinna verð­laun hefur nú aldrei hjálpað neinum að gera betri músík.“ En svo bætti ég við sig­ur­ræð­una: „En það þarf ekki endi­lega að skemma fyrir.“ Þannig að þetta var mín stutta ræða til þeirra,“ segir hann og hlær. 

„Það fyndna í líf­inu er að þó að maður vinni verð­laun þá situr maður alltaf uppi með sjálfan sig

Víkingi þykir gríð­ar­lega vænt um verð­launin, það fer ekki á milli mála. „Ein­læg­lega þykir mér þetta mjög mik­ill heiður. Þetta eru tón­list­ar­menn í Banda­ríkj­unum sem kjósa, þetta eru í raun­inni verð­laun tón­list­ar­mann­anna. Ef þeir eru að hlusta á það sem ég er að gera og njóta þess þykir mér það enn þá skemmti­legra en þegar það er pínu­lítil dóm­nefnd.“

Verð­launa­hafiVíkingur Heiðar sigr­aði í fyrstu til­raun, en þetta var hans fyrsta til­nefn­ing til Grammy-verð­laun­anna.

Og nú heldur lífið áfram. „Það fyndna í líf­inu er að þó að maður vinni verð­laun þá situr maður alltaf uppi með sjálfan sig,“ segir Víkingur og hlær. „Um leið og þér hlotn­ast ein­hver heiður þá er skrýtið hvað manni fer að finn­ast það eðli­legt furðu fljótt, þó það sé það ekki. Á sama tíma, ef þú tapar eða vinnur ekki, hugsar þú miklu lengur um það.“ Víkingur tekur dæmi frá náms­ár­unum. „Ég fór í tvær píanó­keppnir í háskóla, ég vann aðra þeirra og var í öðru sæti í hinni. Um leið og ég var búinn að vinna eina var það ein­hvern veg­inn eðli­legt en sú sem ég tap­aði, ég hugs­aði um hana í margar vikur og mán­uði og var mjög svekktur. Kannski er það bara mann­legt hlut­skipti, en ég held, því miður, að við dveljum oft lengur við ósigra heldur en sigra.“

„En mér þykir mjög vænt um þetta. Þetta er stór­skemmti­legt og ótrú­legur heiður, kannski sér­stak­lega af því að þetta er þetta verk, Grammy-verð­laun fyrir Goldberg-til­brigðin sem standa hjarta mínu næst. Eftir þetta ferða­lag er þetta alveg ein­stakt fyrir mig, per­sónu­lega.“

Vildi óska að Bach væri á lífi í dag

Verð­launin hlýtur hann, sem fyrr segir, fyrir flutn­ing á Goldberg-til­brigðum Bachs. Að flytja Goldberg-til­brigðin meira og minna í heilt ár hefur kennt honum fjöl­margt um sjálfan sig. „Sem og um sköp­un­ina í tón­list og hvernig stór­kost­legt verk eins og þetta er aldrei eins tvö kvöld, hvað það breyt­ist mikið og hvað við erum ólík frá degi til dags. Og eigum að vera það og eigum að fagna því að þannig er það.“ Víkingur er einnig þakk­látur fyrir að hafa fengið að upp­lifa Bach, bæði sem píanisti en líka sem mann­eskja. „Hvaða áhrif Bach hefur á fólk úr ólík­ustu menn­ing­ar­heimum og hvað hann talar sterkt til fólks. Eina sem ég vildi væri að hann vissi í dag hversu yfir­gengi­lega mikla hlustun tón­list hans hefur hjá ólík­ustu hópum af fólki. Það er svo fal­legt.“ 

Platan kom út fyrir rúmu ári og hefur Víkingur ferð­ast vítt og breitt um heim­inn og flutt til­brigðin í heild sinni á tón­leikum, alls 96 sinnum. „Þetta var ævin­týra­legt ár og það hefur verið ótrú­legt að kynn­ast sjálfum mér í gegnum þessa tón­list. Tónlist Bachs verður alltaf að spegla, bæði fyrir þá sem spila hana og þá sem hlusta á hana.“ Víkingur tengir til­nefn­ing­una, og verð­launin, við mikla við­veru hans í Banda­ríkj­unum síð­ast­liðið ár. Sjálfur bjó hann í Banda­ríkj­unum í sex ár og lauk grunn- og fram­halds­námi við tón­list­ar­há­skól­ann Juilli­ard í New York árið 2008. „En svo spil­aði ég ekki mikið í Banda­ríkj­unum framan af ferli mínum, ég var miklu meira í Evrópu og Asíu og svo und­an­farin ár hef ég spilað mjög mikið í Banda­ríkj­unum, und­an­farin 2–3 ár. Þetta er tengt því, maður myndar sam­band við áhorf­endur og að fá að upp­lifa hvernig tón­list Bachs talar til fólks á okkar tímum, það er algjör­lega ein­stakt. Þessi Grammy-til­nefn­ing og verð­laun núna þó hafa sér­staka merk­ingu fyrir mig. Banda­ríkin eru mér alltaf mjög kær, þarna varð ég að sjálfum mér, í tón­list­inni.“

„Kannski hefur aldrei verið skemmti­legra að vera klass­ískur tón­list­ar­flytj­andi heldur en akkúrat í dag

Hlust­enda­hópur Víkings und­an­farið ár er mjög fjöl­breyttur, allt frá ungu fólki yfir í eldra fólk og alla þjóð­fé­lags­hópa. Hann tekur dæmi. „Í Boston, þegar ég spil­aði verkið, var ég stopp­aður af örygg­is­verði á flug­vell­inum, ég hélt að hann ætl­aði að taka mig í gegn fyrir að hafa gleymt vatns­brúsa eða eitt­hvað, en þá hafði hann verið að hlusta á Goldberg-til­brigðin á tón­leikum hjá mér kvöldið áður. Þetta er ein saga af mörgum hvernig Bach talar til breiðs hóps fólks. Það veitir mér gleði. Við búum okkur oft til ein­hverjar hug­myndir um hvaða hlust­enda­hópur sé fyrir hvaða tón­list en við höfum ekki rétt fyrir okkur í því og það er það sem ég er búinn að læra af þessu tón­leika­ferða­lagi, hóp­ur­inn er breiður og í því er feg­urðin fólgin. Og kannski hefur aldrei verið skemmti­legra að vera klass­ískur tón­list­ar­flytj­andi heldur en akkúrat í dag.“

Goldberg-til­brigð­unum hefur verið streymt mörg hund­ruð milljón sinnum og Víkingur segir það skýrt merki um áhug­ann. „Það er eitt­hvað í þess­ari tón­list sem fólk sækir í nátt­úr­lega, það er eitt­hvað í þessu sem talar til fólks á þann hátt að það vill að þetta verði partur af lífi sínu. Ég á aðdá­endur sem segj­ast hlusta á þau á hverjum ein­asta morgni, en kannski bara arí­una. En þessi til­brigði bjóða upp á það að maður skoði lífið og heim­inn í gegnum þau. Það er eitt­hvað hjá Bach sem leiðir að því að við getum yfir­fært hann yfir á mann­legt líf og til­finn­ingar. Á end­anum eru þetta nótur og tíðni sem er raðað saman á snilld­ar­legan hátt og út frá því speglum við okkar til­finn­inga­lit­róf. Enn þá í dag finnst mér ótrú­legt að hugsa um hvað tón­list er og þegar menn gera hana eins og Bach, sem er mesti lista­maður sög­unnar í mínum bókum, þá verður það til þess að 300 árum seinna er fólk að upp­götva heim­inn og sjálft sig og sín mann­legu tengsl í gegnum það sem hann skap­aði. Það er fal­legt.“

Ætlar að gefa í 

Með nýjum útgáfu­samn­ingi við Uni­ver­sal og Deutche Gramm­ophon ætlar Víkingur að verja meiri tíma í hljóð­ver­inu. „Ég ætla að gefa í. Ég er að reyna að finna jafn­vægið í mínu lífi, í tón­list­inni, á milli þess að ferð­ast um heim­inn og spila alla þessa tón­list og til að hafa tíma til að end­ur­nýja mig og til að gera upp­götv­anir og til­raunir í hljóð­ver­inu. Þessi samn­ingur er nákvæm­lega það sem ég vil á þessum tíma­punkti.“

Samn­ing­ur­inn gerir honum kleift að helga sig upp­tökum í hljóð­veri. „Þú getur náð til tvö til þrjú þús­und manns á kvöldi í tón­leika­sal og það er algjör­lega ein­stakt. En á sama tíma eru kannski þús­undir að hlusta á ein­hverja af upp­tök­unum þínum. Þetta er ótrú­lega fal­leg leið til að ná til fjölda fólks sem hefur ekki endi­lega aðgengi að tón­leika­söl­unum. Og það skiptir máli.“

Þegar Víkingur var að alast upp hafði hann aðgang að stóru plötu­safni for­eldra sinna, sem hann er gríð­ar­lega þakk­látur fyrir. „Þegar ég var að alast upp á Íslandi var tak­markað aðgengi, þannig séð, að alþjóð­legum tón­leikum. „Ég þurfti að treysta á upp­tökur mömmu og pabba sem eiga mjög stórt plötu­safn. Á þann hátt hafa upp­tökur skipt mig per­sónu­lega miklu máli og í gegnum þær upp­götv­aði ég stóran hluta af þeirri tón­list sem ég elska mest.“ Víkingur vill því setja auk­inn kraft í upp­tökur. „Þannig finnst mér ég vera að gefa til baka til þess sem ég naut sem barn.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár