Ekki hægt að friðlýsa útsýnið

Allvíða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stendur venju­legt fólk í slag um útsýni til hafs, fjalla og eyja. Einn slíkur slagur varðar Laug­ar­nesið, sem Minja­stofnun hefur viljað frið­lýsa, reyndar í óþökk Reykja­vík­ur­borgar. Jarðefni sem fært var úr grunni nýs Land­spít­ala myndar nú land­fyll­ingu sem senn verður enn stærri. Útsýni til Viðeyjar gæti tap­ast, óháð öllum frið­lýs­ing­ar­á­formum.

Ekki hægt að friðlýsa útsýnið
Land­fyll­ing Úr Laug­ar­nesi er útsýni til Viðeyjar. Í sjón­lín­una er nú komin land­fyll­ing á for­ræði Faxa­flóa­hafna. Hafn­ar­stjór­inn þar segir Faxa­flóa­hafnir ekki deila sýn hóps fólks sem vill varð­veita útsýnið yfir í Viðey, sem Minja­stofnun og Reykja­vík­ur­borg sögðu í vernd­ar­á­ætlun svæð­is­ins að væri ein­stakt í Reykja­vík. Mynd: Golli

„Nátt­úru­farið á Laug­ar­nesi gerir svæðið ein­stakt í Reykja­vík þar sem hægt er að horfa yfir nesið og út í Viðey án trufl­unar frá mann­virkjum nútím­ans. Mik­il­vægt er að halda í þetta merki­lega menn­ing­ar­lands­lag, sam­spil nátt­úru og minja, sem er hvergi að finna ann­ars staðar í Reykja­vík,“ segir í vernd­ar­á­ætlun fyrir minja­svæðið á Laug­ar­nestanga, sem und­ir­rituð var á milli Minja­stofn­unar Íslands og Reykja­vík­ur­borgar árið 2016.

Frá því að þetta plagg var und­ir­ritað hefur stærð­ar­innar land­fyll­ing verið sett niður alveg við mörk minja­svæð­is­ins, en það var gert á árunum 2019–2020 og fram­kvæmda­leyfi gefið út á grund­velli aðal­skipu­lags­breyt­inga sem sam­þykktar voru árið 2018. Á síð­asta ári aug­lýsti Reykja­vík­ur­borg svo til­lögu að deiliskipu­lags­breyt­ingu þar sem gert er ráð fyrir frek­ari stækkun land­fyll­ing­ar­innar, auk þess sem opnað yrði á bygg­ingu tveggja til þriggja hæða bygg­inga, allt að tíu metra hárra, á tveimur nýjum skil­greindum lóðum á svæð­inu. 

Segja má að slík áform, ef …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Faxaflóahafnir hafa aldrei kunnað sér hóf í landfyllingum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár