Með heilaheilsu á heilanum eftir heilahristing

Ólína Guðbjörg Við­ars­dóttir var í miðju dokt­ors­námi að rann­saka hug­ræna getu þegar hún fékk heila­hrist­ing sem batt enda á far­sælan feril hennar sem knatt­spyrnu­kona. Upp frá því má segja að hún hafi verið með heila­heilsu á heil­anum. „Það er allt svo áhuga­vert og skemmti­legt við heil­ann.“

Með heilaheilsu á heilanum eftir heilahristing
Heila­heilsa Af hverju er ég með heila­þoku? og Er ég að fá Alzheimer? eru á meðal spurn­inga sem Ólína Guðbjörg Við­ars­dóttir, sál­fræð­ingur og knatt­spyrnu­kona, hefur svarað á nám­skeiðið á vegum End­ur­mennt­unar Háskóla Íslands um heila­heilsu og þjálfun hug­ans. Mynd: Golli

Heila­heilsa er lífs­tíð­ar­verk­efni, rétt eins og lík­am­leg heilsa, en minna hefur verið rætt um heilsu heil­ans. Því vill Ólína G. Við­ars­dóttir, sál­fræð­ingur og fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­kona, breyta. Ákveðin vit­und­ar­vakn­ing um heila­heilsu er að eiga sér stað að hennar mati.

En hvað er heila­heilsa? 

„Það er per­sónu­legt fyrir hvern og einn hvað heila­heilsa er,“ segir Ólína en merki um góða heila­heilsu er til að mynda góð ein­beit­ing, athygli, gott minni og skýr hugsun. „Þú finnur ekki að þú sért með fulla heila­heilsu fyrr en þú missir hana aðeins niður. Við tökum því sem sjálf­sögðum hlut að við eigum að vera með öfl­ugt hug­ar­starf og gerum ráð fyrir því. Þá erum við með heila­heilsu. Þangað til eitt­hvað ger­ist og við finnum að það er eitt­hvað að.“

„Þú finnur ekki að þú sért með fulla heila­heilsu fyrr en þú missir hana aðeins niður“

Ólína er sál­fræð­ingur …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdotir skrifaði
    ER EKKI VITLAUS ÞÓT MARGIR HALDI ÞVÍ FRAMMARGUR HELDUR MIG SIG EKKI SATT HÆNUR MÍNAR OG KJÚKLINGAR!!
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár