Öld „kellingabókanna“

„Síðasta ára­tug­inn hafa bækur nokk­urra kvenna sem fara á til­finn­inga­legt dýpi sem lítið hefur verið kannað hér áður flotið upp á yfir­borðið,“ skrifar Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir og nefnir að í ár eigi það sér­stak­lega við um bækur Guðrúnar Evu og Evu Rúnar: Í skugga trjánna og Eldri konur. Hún segir skáld­kon­urnar tvær fara á dýpt­ina inn í sjálfar sig, algjör­lega óhræddar við að vera gagn­rýnar á það sem þær sjá.

Öld „kellingabókanna“
Ásta Sig­urð­ar­dóttir var skáld­kona sem þorði að kanna til­finn­inga­dýpið á tólf mílna skóm síns tíma. Ljósmynd: Jón Kaldal.

Það sem kraumar undir niðri er að koma upp á yfir­borðið. Síðasta ára­tug­inn hafa bækur nokk­urra kvenna sem fara á til­finn­inga­legt dýpi sem hér hefur lítið verið kannað áður flotið upp á yfir­borðið og hald­ist þar. Þetta árið eru sér­stak­lega tvær bækur, skáldsagan Eldri konur eftir Evu Rún Snorra­dóttur og skáldævi­sagan Í skugga trjánna eftir Guðrúnu Evu Mínervu­dóttur, sem lesast eins og bækur sem eiga sér enga líka á Íslandi. Það ein­kennir bæk­urnar tvær hvernig þær ögra les­anda með inn­sæi sínu og hvað þær ganga nærri sér í skrif­unum. Eins og komið hefur fram í við­tölum við skáld­kon­urnar eru báðar bæk­urnar að ein­hverju leyti eða miklu(í til­felli Guðrúnar Evu) byggðar á reynslu þeirra sjálfra og segja má að þær leggi sjálfar sig að veði í bók­unum.

„Konurnar í bókum Guðrúnar Evu og Evu elska af öllum krafti
Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir

…

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu