Mynd: AFP

Áhrif Trumps á heiminn og fjárhag íslenskra heimila

Búast má við því að áætl­anir Donalds Trump í efna­hags­málum, um háa vernd­ar­tolla á inn­flutn­ing til Banda­ríkj­anna og brott­vís­anir mik­ils fjölda vinn­andi handa, muni leiða til auk­innar verð­bólgu og dvín­andi hag­vaxtar í heim­inum. Hvort tveggja mun koma beint við buddu íslenskra heim­ila. Heim­ildin skoðar hvað önnur for­seta­tíð Donalds Trump mun hafa í för með sér fyrir vest­ræna banda­menn.

Undir lok árs 2015 sagði ungur aðstoð­ar­maður inn­an­rík­is­ráð­herra á sam­fé­lags­miðl­inum sem þá hét Twitter að Donald Trump, þá for­seta­fram­bjóð­andi í for­vali Repúblikana­flokks­ins, væri þröng­sýnn, fáfróður, for­dóma­fullur fábjáni. Karakter Trumps hefur lík­lega ekk­ert breyst síðan þá, en staða aðstoð­ar­manns­ins fyrr­ver­andi hefur hins vegar gert það. 

„Ég óska Don­ald Trump til ham­ingju með kosn­ing­arn­ar og þetta virð­ist vera nokkuð af­ger­andi nið­ur­staða,“ sagði Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ut­an­rík­is­ráð­herra Íslands, að morgni mið­viku­dags, þegar ljóst var orðið að Trump hefði fengið braut­ar­gengi til þess að snúa aftur aftur í Hvíta húsið í Washington í jan­úar á næsta ári, sem for­seti Banda­ríkj­anna. 

„Ég trúði ein­læg­lega að Trump gæti ekki unnið og að hat­rið myndi ekki vinna valda­mesta emb­ætti í heimi. Það gerð­ist. Orðlaus og miður mín,“ skrif­aði nýlega kjör­inn ungur þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík á Twitter 9. nóv­em­ber 2016. 

Sigur Trumps í kosn­ing­unum nú var hins vegar afger­andi og ekki alls kostar …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hann á eftir að skilja eftir sig sviðna jörð og allt í uppnámi um allan heim. Annars sakna ég þess í öllum greiningum á þessum kosningum að enginn hefur minnst á það að fylgi Trump jókst ekki, hann fékk um 74 milljónir atkvæða núna sem er sama tala og hann fékk 2020. Joe Biden fékk 81 milljón atkvæða 2020 en Kamala Harris bara rúmlega 68 milljónir núna. Rétt um 13 milljónir sem kusu Biden áður kusu ekki Trump heldur kusu alls ekki. Þetta er í mínum huga krísa þegar fólk hættir að kjósa.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár