Maður og hestur til orrustu fyrir Frakkland

Á þessum degi fyrir 609 árum var háð fræg orr­usta við franska þorpið Azincourt nyrst í Frakk­landi. Hún var hluti af 100 ára stríði Eng­lend­inga og Frakka.

Maður og hestur til orrustu fyrir Frakkland

Hest­ur­inn var kátur. Hann stóð þarna í röð með öllum félögum sínum og þeir voru hressir og upp­veðraðir. Sjálfur var hest­ur­inn ungur og óreyndur miðað við flesta félag­ana sem voru ráð­settir og jafn­vel orðnir mið­aldra sumir, en hann fann ekki betur en allir væru jafn­til­búnir til þess sem nú fór í hönd. Þetta yrði eitt­hvað, þótt­ist hest­ur­inn vita.

MAÐURINN:

Honum hló hugur í brjósti. Þeir ensku myndu ekki sleppa. Þeir höfðu mar­serað á flótta sínum í miklum flýti í hálfan mánuð og voru nærri komnir til Calais sem þeir höfðu haldið í næstum hund­rað ár, en nú voru þeir að þrotum komnir. Fangar sem höfðu verið teknir sögðu frá því að sóttir herj­uðu á ensku her­menn­ina, þeir voru vista­listir og svangir og eflaust ekki nema 8.000 manns alls og þar af voru ridd­arar telj­andi á fingrum ann­arrar handar. Frakkar höfðu fjórum sinnum fleiri undir vopnum og þar af …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár