Bókabúð verður til! – og um leið ný saga

Bóksali og bóka­safn­ari mæt­ast í bóka­búð­inni Skálda á Vest­ur­götu og úr verður skáld­skapur. „Ég er búinn að safna not­uðum bókum síð­ustu tvö ár með það í huga að opna þessa búð,“ segir bók­sal­inn.

Bókabúð verður til! – og um leið ný saga
Einar Björn segir bækur hafa mikla þýð­ingu fyrir sér og vill helst vera umkringdur bókum. Mynd: Golli

Skálda er óvenju skemmti­legt nafn fyrir bóka­búð en þessa dag­ana und­ir­býr Einar Björn Magn­ús­son opnun bóka­búðar með því nafni – sem verður opnuð nú í haust á Vest­ur­götu 10a. Það er ekki úr vegi að kíkja á bók­sal­ann og sjá bóka­búð­ina byrja að verða til, um leið og hann raðar fyrstu bók­unum í hillur. Þá ber að garði bóka­safn­ara, Þorvald Örn Krist­munds­son, sem mætir óvænt og langar að leggja sitt af mörkum til að styrkja mik­il­væga upp­bygg­ingu bóka­ver­ald­ar­innar með því að gefa búð­inni kassa af bókum sem hann hefur safnað.

„Mér finnst þetta þurfa að dafna,“ segir bóka­safn­ar­inn Þor­valdur. „Að fleiri séu að safna bókum, fleiri með áhuga á þeim. Það þarf að efla vit­und­ar­vakn­ingu á bókum, gömlum bókum jafnt sem nýjum. Nú eru allir í símum og þessar bækur bara leik­munir í bíó­myndum í augum ungs fólks. Heima hjá fólki er sjald­gæft að sjá …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár