Greindist ungur með Alzheimer og hleypur í fylgd fjölskyldunnar

Hug­bún­að­ar­verk­fræð­ing­ur­inn Stefán Hrafn­kels­son er kom­inn á hjúkr­un­ar­heim­ili eftir að hafa greinst aðeins 58 ára gam­all með Alzheimer fyrir sjö árum. Það hefur hjálpað heilsu hans að hlaupa með fjöl­skyld­unni.

Greindist ungur með Alzheimer og hleypur í fylgd fjölskyldunnar
Fjöl­skyldan saman á hlaupum Á mynd­inni frá vinstri: Systk­inin Ragn­heiður, Stefán og Guðrún. Þá Arndís Rós, og Hrafn­kell, börn Stefáns, ásamt börnum. Aftast er Guðný Salóme, dóttir Guðrúnar. Mynd: Golli

Stefán Hrafn­kels­son er 65 ára hug­bún­að­ar­verk­fræð­ingur og stofn­andi og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Betware, sem greind­ist árið 2017 með Alzheimer-sjúk­dóm­inn, þá 58 ára gam­all. Hann varð fyrstur sjúk­linga til að hlaupa til styrktar Alzheimer-sam­tök­unum og var þá fremstur hlauparanna. Stefán kemur úr stórri, afar sam­hentri fjöl­skyldu sem hefur hist viku­lega til að hlaupa saman. Gleymum ekki gleð­inni, er heiti á hlaupa­hópnum sem var búinn til í kringum Stefán af fjöl­skyldu og vinum og segja ást­vinir hans að hlaupin hafi aug­ljós­lega gert honum gott og haldið honum lengur góðum. 

Hlaupa alla sunnudaga

Upp­hafs­menn að hlaupum fjöl­skyldu Stefáns eru bræður hans en þau hófust áður en Stefán greind­ist. Eftir grein­ing­una komu börn og barna­börn inn í hóp­inn en systk­ini Stefáns, sem eru sex tals­ins með honum, eru miklir hlauparar og bræður hans eru, eins og sonur hans orðar það, „elítu­hlauparar“.

„Við hitt­umst alltaf á sunnu­dags­morgnum og höfum gert í tæp­lega …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2024

ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrúlega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræð­is­aldri

Rannveig Hafberg hélt að hún gæti aldrei byrjað að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu matar­æði og hleypur vænt­an­lega sitt tíunda ofur­mara­þon á Lauga­veg­inum í sumar. Eysteinn Hafberg, faðir hennar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eftir hjarta­á­fall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í íslenska hlaupa­heim­inum. Móðir hennar er líka byrjuð að hlaupa. Og barna­börnin.
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­anum þegar við hreyfum okkur?

„Mögnuð“ breyt­ing verður á hug­anum þegar við hreyfum okkur. Hreyfing virkar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlkun til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ingur veitir inn­sýn í áhrifin og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu