Svona breytist líkaminn við hlaup

Hjarta­lækn­ir­inn Þórdís Jóna Hrafn­kels­dóttir lýsir góðum og síðri áhrifum hlaups á manns­lík­amann, allt frá hjarta niður í frumu­stig. Hún þekkir þau á eigin skinni, ver­andi lang­hlaup­ari til margra ára. „Í gegnum tíð­ina hefur þetta verið mjög góð leið til þess að takast kannski mest á við álag í vinn­unni,“ segir hún.

Hlaup og önnur þol­þjálfun hafa marg­vís­leg áhrif á lík­amann, ekki bara á hjarta- og æða­kerfið, eins og oft er talað um heldur líka á aðra lík­ams­starf­semi. Þórdís Jóna Hrafn­kels­dóttir hjarta­læknir segir að ef fyrst er horft á afkasta­getu hjarta- og æða­kerfis þá auk­ist hún. Oft taki það dálít­inn tíma að vinna upp þolið en þá sé þol­in­mæði lyk­il­at­riði. Hjartað aðlag­ast álag­inu smám saman og verður ekki tak­mark­andi þáttur við áreynslu.

Hjartað dælir meiru

„Við þjálfun eykur maður hæfi­leik­ann til þess að mæta þessu þannig að maður geti þjálfað hjartað upp í að dæla meiru í hverju hjartaslagi en áhrifin á púls­inn eru svo­lítið önnur. Þjálfun hefur lít­lil sem engin áhrif á hámarks­púls ein­stak­lings­ins. Hann er kannski fremur háður erfðum og aldri. Hins vegar lækkar hvíld­ar­púls­inn almennt og getur jafn­vel farið mjög langt niður. Lækkaður hvíld­ar­púls skýrist að hluta til af því að hjartað stækkar og dælir meiru í …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2024

ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrúlega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræð­is­aldri

Rannveig Hafberg hélt að hún gæti aldrei byrjað að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu matar­æði og hleypur vænt­an­lega sitt tíunda ofur­mara­þon á Lauga­veg­inum í sumar. Eysteinn Hafberg, faðir hennar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eftir hjarta­á­fall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í íslenska hlaupa­heim­inum. Móðir hennar er líka byrjuð að hlaupa. Og barna­börnin.
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­anum þegar við hreyfum okkur?

„Mögnuð“ breyt­ing verður á hug­anum þegar við hreyfum okkur. Hreyfing virkar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlkun til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ingur veitir inn­sýn í áhrifin og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár