Ævintýraleg ofurhálfmaraþon í sex borgum

Hálf­mara­þonser­ían „Super­halfs“ fer fram í sex borgum í Evrópu. Þátt­tak­endur fá 60 mán­uði til að klára hlaupin og fá í lokin ofur­verð­launa­pen­ing. Ívar Jónsson er einn örfárra Íslend­inga sem klárað hefur öll hlaupin. „Þetta veitir mér innri ró og heldur mér ungum og ferskum,“ segir Ívar um öll hlaupin.

Ívar Jónsson
Ívar Jónsson „Þetta er bara ein gul­rót af mörgum að taka þátt í þess­ari seríu og klára hana.“

Örfá ár eru liðin síðan hlaup­urum gafst í fyrsta skipti tæki­færi til að taka þátt í hálf­mara­þonser­í­unni „Super­halfs“ sem fer fram í nokkrum borgum í Evrópu: Lissabon, Prag, Berlín, Kaup­manna­höfn, Cardiff og Valensíu. Hlaupin þykja vera við­ráð­an­legri fyrir hinn almenna hlaupara en mara­þonser­ían „World Marathon Majors“ sem sam­anstendur af sex mara­þon­hlaupum.

Þátt­tak­endur þurfa að skrá sig á net­inu og fá síðan „súper­vega­bréf“. Fara þarf á síðu hvers hlaups til að borga fyrir þátt­tök­una eða með því að styrkja eitt­hvert gott mál­efni. Síðan hafa þátt­tak­endur fimm ár – nánar til­tekið 60 mán­uði – til að taka þátt í hálf­mara­þonum í fyrr­nefndum sex borgum.

Ívar JónssonHefur afrekað að hlaupa öll sex ofur­hálf­mara­þonin og einnig öll ofur­mara­þonin.

Á tveimur árum

Ívar Jónsson var einn þeirra þriggja Íslend­inga sem fyrst klár­uðu öll sex hlaupin.

„Ég, Hrannar Hafberg og Stefanía Skarp­héð­ins­dóttir erum fyrstu Íslend­ing­arnir …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2024

ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrúlega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræð­is­aldri

Rannveig Hafberg hélt að hún gæti aldrei byrjað að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu matar­æði og hleypur vænt­an­lega sitt tíunda ofur­mara­þon á Lauga­veg­inum í sumar. Eysteinn Hafberg, faðir hennar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eftir hjarta­á­fall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í íslenska hlaupa­heim­inum. Móðir hennar er líka byrjuð að hlaupa. Og barna­börnin.
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­anum þegar við hreyfum okkur?

„Mögnuð“ breyt­ing verður á hug­anum þegar við hreyfum okkur. Hreyfing virkar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlkun til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ingur veitir inn­sýn í áhrifin og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.

Mest lesið undanfarið ár