Heimilið er að koma aftur í tísku
Skóla­stjóri Hús­stjórn­ar­skól­ans í Reykja­vík Marta María Arn­ars­dóttir er 27 ára gömul og hefur sinnt stöðu skóla­stjóra Hús­stjórn­ar­skól­ans í tvör ár eða síðan hún var aðeins 25 ára. Mynd: Golli

Heimilið er að koma aftur í tísku

Í Hús­stjórn­ar­skól­anum í Reykja­vík fá nem­endur tæki­færi til að læra allt sem við kemur því að reka heim­ili, auk þess sem þau læra hann­yrðir. Kennarar í skól­anum segja hann frá­bæran und­ir­bún­ing fyrir lífið en flestir nem­endur eru um tví­tugs­ald­ur­inn. Þá eru kenn­ar­arnir sam­mála um að hrað­inn í sam­fé­lag­inu sé orðin mik­ill og þá sé fátt betra en að hægja á sér inni á heim­il­inu og sinna áhuga­málum sínum og sér í leið­inni.

Fyrir mörgum ein­kenn­ist nútím­inn af hraða og ann­ríki. Sífellt fleiri brenna út eða kulna. En í húsi einu á Sól­valla­götu er eins og tím­inn standi svo­lítið í stað. Húsið sjálft er hund­rað ára en starf­semin sem fer þar fram örlítið yngri, eða 82 ára. Húsið sem einu sinni hét Sól­vellir þekk­ist nú undir öðru nafni, Húsó eða Hús­stjórn­ar­skól­inn í Reykja­vík. „Það var eins og að fara mörg ár aftur í tím­ann,“ segir Guðrún Sig­ur­geirs­dóttir mat­reiðslu­kenn­ari um það að koma inn í húsið fyrst þegar hún hóf þar störf fyrir átta árum.

Og það er rétt, að ganga inn í húsið er eins og að ferð­ast aftur í tím­ann, hús­gögnin eru í gömlum stíl, dúkar eru bróderaðir, og kökur með kaff­inu bornar fram á fal­legum diskum. Það er frið­sæll andi yfir öllu þótt húsið sé fullt af nem­endum. „Við viljum halda í þennan gamla stíl. En svo eru líka bara …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Aldrei á ævinni lært eins mikið eins og í Húsmæðraskólanum mínum
    en það var aldrei metið þegar maður sótti um vinnu, þó námið væri bæði verklegt og bóklegt,
    ársnám.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár