Kom sem ferðamaður en ræktar nú æt blóm til manneldis

Fyr­ir­tækið Ísponica var stofnað fyrir þremur árum af Amber Christina Monroe. Hún kom fyrst til Íslands til að ferð­ast fyrir sjö árum en ræktar nú örgræn­meti og æt blóm með úrgangi úr fiskum í gömlu fjósi.

Kom sem ferðamaður en ræktar nú æt blóm til manneldis
Mjög ungt græn­meti „Örgræn­meti er bara mjög ungt græn­meti í raun og veru. Ef þú ert til dæmis að rækta hefð­bundið salat, þá rækt­arðu það bara í tvær vikur og tekur það svo upp. Þá ertu kom­inn með svo­kallað örgræn­meti sem er fullt af vítamíni og nær­ing­ar­efnum,“ segir Amber. Mynd: ÚR VÖR

Amber Christina Monroe kom hingað til lands árið 2017 sem ferða­maður frá Banda­ríkj­unum og kylli­féll fyrir landi og þjóð. Það varð til þess að hún skráði sig í masters­nám við fisk­eldis- og fiska­líf­fræði­deild á Háskól­anum á Hólum og þremur árum síðar, eða árið 2021, stofn­aði hún fyr­ir­tæki sitt Ísponica. Ísponica sam­einar fisk­eldi og græn­met­is­rækt með áhuga­verðum hætti (e.aquaponic) og hefur fyr­ir­tækið frá stofnun haft aðsetur á Hólum í gömlu fjósi en nú standa yfir flutn­ingar og mun fyr­ir­tækið færa sig yfir á Hofsós í gamla fiski­verk­smiðju þar á næstu vikum. 

Hjá Ísponica er ræktað svo­kallað örgræn­meti og æt blóm, auk þess sem planið er að rækta fisk til mann­eldis síðar meir. Amber segir að ekki séu aðrir að gera þetta hér á landi í þeim til­gangi að selja vörur á markað, þótt hún viti að ein­hverjir aðilar hafi gert til­raunir með þessa áhuga­verðu aðferð. „Þessi sam­tvinnun, …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er ómetanlegt að fá svona áhugavert fólk og hugmyndir til landsins, áfram, áfram góða fólk.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár