Orkuveitan ætlar kannski að greiða eigendum sínum sex milljarða í arð

Orkuveitan ætlar kannski að greiða eigendum sínum sex milljarða í arð

Ef Orku­veit­unni tekst að finna kaup­endur að nýju hlutafé í Ljós­leið­ar­anum og Carbfix þá ætlar hún að greiða eig­endum sínum sex millj­arða króna í arð. Stærstur hluti fer til stærsta eig­and­ans, Reykja­vík­ur­borgar. Ef það tekst ekki mun arð­greiðslan lækka um tvo millj­arða króna og Orku­veitan auka hlutafé sitt í Ljós­leið­ar­anum.

Samstæða Orku­veitu Reykja­víkur skil­aði hagn­aði upp á 29,2 millj­arða króna á síð­asta ári. Innan hennar eru, auk móð­ur­fé­lags­ins, Veitur, Orka Nátt­úr­unnar, Ljós­leið­ar­inn og Carbfix. Rekstr­ar­tekjur juk­ust milli ára en rekstr­ar­hagn­aður stóð nán­ast í stað. 

Í árs­reikn­ingi Orku­veit­unnar, sem birtur var í dag, kemur fram að stjórn hennar leggi til að sex millj­arðar króna verði greiddir út í arð til eig­enda hennar vegna frammi­stöðu síð­asta árs, en þó þannig að tveir millj­arðar króna verði skil­yrtir því að áform um sölu á hlutafé í dótt­ur­fé­lög­unum Ljós­leið­ar­anum og Carbfix gangi eftir. Þar segir enn fremur að sjóð­staða Orku­veit­unnar sé sterk, og hafi í árs­lok verið 19 millj­arðar króna. Auk þess hafi sam­stæðan aðgang að lána­línum upp á 14,7 millj­arða króna. Því var lausafé Orku­veit­unnar 33,7 millj­arðar króna um síð­ast­lið­inn ára­mót og jókst um 6,9 millj­arða króna milli ára. „Að mati stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins er það rekstr­ar­hæft og gæti mætt óvæntum áföllum í nán­ustu …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár