„Syngjandi börn eru það fallegasta í heimi“

Alla þriðju­daga fyllist Frí­kirkjan í Reykja­vík af syngj­andi börnum sem eru það fal­leg­asta í heimi að sögn Álf­heiðar Björg­vins­dóttur, ofur­kór­stelpu og kór­stjóra Barna­kórs­ins við Tjörnina. Hún leggur áherslu á að kenna börn­unum virð­ingu, sam­kennd og söng­gleði. „Það á að vera gaman.“

Friður, vinátta og samkennd Álheiður Björgvinsdóttir, kórstjóri Barnakórsins við Tjörnina, kennir börnunum meira en bara söng. Hún kennir þeim að bera viðringu fyrir hvort öðru og að sýna samkennd.

„Hvítt fyrir börn, sem biðja um frið,

biðja þess eins að fá að lifa eins og við.

Er ekki jörðin fyrir alla?“

Þannig ómar söngur Litla kórs, sem sam­anstendur af 4–6 ára börnum í Barna­kórnum við Tjörnina, þegar blaða­kona leit við á æfingu kórs­ins í vik­unni. Lagið, Myndin hennar Lísu, eftir Olgu Guðrúnu Árna­dóttur, er eitt fjöl­margra laga um frið, vin­áttu og sam­kennd sem kór­inn æfir. 

Friður, vin­átta og sam­kennd eru einmitt gildin sem Álf­heiður Björg­vins­dóttir, kór­stjóri Barna­kórs­ins við Tjörnina, hefur í hávegum í starfi kórs­ins. Hún stofn­aði kór­inn fyrir ell­efu árum þegar Gunnar Gunn­ars­son, org­anisti við Frí­kirkj­una, bað hana að smala í lít­inn barna­kór fyrir aðventu­kvöld í kirkj­unni. Þá hafði hún sungið með Söng­hópnum við Tjörnina, sem æfir í Frí­kirkj­unni, í eitt ár. „Hann hringdi í mig og spurði hvort ég gæti reddað ein­hverjum börnum að syngja. Og ég redd­aði ein­hverjum …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár