Á annarri hæð á Borgarbókasafninu í Grófinni, gegnt stórum glugga sem hleypir viðkvæmri vetrarbirtunni inn, hefur Eric Klinenberg komið sér vel fyrir í rauðum hægindastól. Hann er þreyttur og ekki að ástæðulausu enda nýkominn úr löngu flugi yfir hafið frá Bandaríkjunum, New York-borg, nánar tiltekið, þar sem hann býr og starfar. Hann er félagsfræðingur og skrif hans og rannsóknir um félagslega innviði, félagslega einangrun og einmanaleika hafa birst og fangað athygli víða um heim og nú á Íslandi.
Hingað var honum boðið til að taka þátt og halda tölu á alþjóðlegri ráðstefnu um hlutverk almenningsbókasafna í samfélögum sem haldin var í lok októbermánaðar í tilefni af hundrað ára afmæli Borgarbókasafnsins.
Eric, sem í tilkynningu frá bókasafninu var kallaður „einn fremsti félagsfræðingur okkar tíma“, er ekki ókunnugur hlutverki almenningsbókasafna en í fyrirlestrinum, sem hann hélt á nýja borgarbókasafninu í Úlfarsárdal, kynnti hann bók sína Hallir fyrir fólkið: Hvernig félagslegir inniviðir geta …
Library Bill of Rights, grein 5.
“ A person’s right to use a library should not be denied or abridged because of origin, age, background, or views”
Og svo hefði mátt koma því að í þessari grein að ÖLL bókasafns árskort eru ókeypis í Bandaríkjunum. Það þykir mér afar mikilvægt að segja frá því þar liggur réttur alls til að leyta sér upplýsingar og fræðslu, afþreyingingar og lista.
Já, Bandaríkin eru soldið mikið kúl þó það sé erfitt fyrir þá að halda þvi við.