Var á útleið Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á blaða­manna­fundi sem haldin var 10. októ­ber. Ástæðan var nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis um hæfi hans. Nokkrum dögum síðar var Bjarni orð­inn utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður hans, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, sest í gamla sætið hans. Mynd: Golli

Enn óljóst hvaða ráðlegginga Bjarni vísaði til þegar hann sagði af sér

Bjarni Bene­dikts­son hefur verið boð­aður á opinn fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um miðjan næsta mánuð. Til­gangur fund­ar­ins er að óska eftir frek­ari skýr­ingum á ráð­gjöf til hans við sölu á Íslands­banka sem leiddi til þess að hann gætti ekki nægi­lega vel að hæfi sínu. Gögn sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið afhenti nefnd­inni og Heim­ild­inni varpa ekki skýru ljósi á hver sú ráð­gjöf var.

Þegar Bjarni Bene­dikts­son til­kynnti um afsögn sína sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra 10. októ­ber síð­ast­lið­inn þá sagði hann meðal ann­ars, í færslu sem birt­ist á Facebook-síðu hans og var að uppi­stöðu sú ræða sem hann flutti á blaða­manna­fundi um morg­un­inn, eft­ir­far­andi: „Ég tel að margt í nið­ur­stöðu umboðs­manns orki tví­mælis og sé í and­stöðu við það sem ég hef áður fengið ráð­legg­ingar um.“ 

Afsögnin kom í kjöl­far nið­ur­stöðu umboðs­manns Alþingis þess efnis að Bjarni hafi verið van­hæfur til að sam­þykkja sölu á hlut rík­is­ins í bank­anum til félags­ins Haf­silf­urs, sem er í eigu föður hans. Bjarni tók skömmu síðar við emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður flokks hans, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, sett­ist í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. 

Heim­ildin óskaði eftir því þann 23. októ­ber að fá frek­ari skýr­ingar á þeim ráð­legg­ingum sem Bjarni vís­aði til í afsagn­ar­ræðu sinni og sendi fyr­ir­spurn þess efnis á fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Þar var einnig óskað eftir …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár