Nokkrir menn bera stúlku sem slas­að­ist í árás Ísra­els­hers á bæinn Deir Al-Balah á Gaza á mið­viku­dag. Mynd: AFP

Ögrun, ofbeldi og hatur

Árás Hamas gróf undan for­sendum sam­komu­lags sem Arabaríki hafa gert við Ísrael. For­sæt­is­ráð­herra Ísraels stendur höllum fæti á eftir, sem mun eflaust hafa áhrif á ákvarð­ana­töku hans, þjóð­stjórn­ar­innar og stríðs­ráðs­ins sem búið er að stofna. Búið er að færa fólk frá suð­ur­hluta Ísraels, láta her­inn umkringja Gaza og fjöldi fólks hefur fallið í loft­árásum Ísra­els­hers á Gaza strönd­ina.

Já hugs­aðu þér heim­inn
halda grið og frið
Mér er sagt að ég sé með óra
en ég er ekki ein um það
já komdu með, höldum hóp­inn
gerum heim­inn að grið­ar­stað.

Þannig hljómar ljóð­lína lags­ins Imagine eftir John Lennon eða Að hugsa sér í þýð­ingu Þórarins Eldjárn. Árleg frið­ar­ráð­stefna, sem kennd er við lagið, var haldin í Hörpu dag­ana 10. til 11. októ­ber á vegum Höfða frið­ar­set­urs og for­mennsku Íslands í Norrænu ráð­herra­nefnd­inni. Tveir fyr­ir­les­arar hvöttu ráð­stefnu­gesti til þess að ímynda sér hvernig staðan í heim­inum gæti verið ef bæði for­tíðin og sam­tím­inn væru und­an­skilin. Það er mögu­legt að ímynda sér hvernig staðan í Palest­ínu og Ísrael gæti þá verið. Raun­veru­leiki for­tíð­ar­innar og sam­tím­ans gerir það hins vegar ill­fært að bera von í brjósti um betri tíð með blóm í haga enda ástandið mun átak­an­legra en mögu­legt er með góðu móti að ímynda sér eða átta sig …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ESG
    Erna Sigurveig Guðmundsdóttir skrifaði
    Gaza eru útrýmingabúðir á vegum stjórnvalda Ísraels, sorglegt í ljósi sögunnar
    1
  • Axel Axelsson skrifaði
    "árás" "hamas" var sviðsett hóx í boði zæónistan . . .
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár