Listamenn á stríðsvelli

Er það sjálf­sögð ábyrgð lista­manns að taka afstöðu gagn­vart mann­rétt­inda­brotum og stríð­andi fylk­ingum? Eða er þannig of mikið lagt á herðar ein­stak­lings – að krefj­ast afstöðu sem getur, þegar verst lætur, teflt til­vist hans í hættu? Og getur það jafn­vel rústað til­urð lista­manns­ins ef hann tekur ekki afstöðu? Sitt sýn­ist hverjum!

Listamenn á stríðsvelli
Lista­maður á átaka­svæðum Ragnar Kjart­ans­son hefur sýnt verk í Ísrael og Rúss­landi. Mynd: MBL / Hanna Andrésdóttir

Árið 2014 drógu mynd­list­arteymið Libía Castro og Ólafur Ólafsson sig út úr Sidney-tví­ær­ingnum, ásamt fleira lista­fólki. Ástæðan var sú að aðal­styrkt­ar­að­ili tví­ær­ings­ins, og í raun stofn­andi, var fyr­ir­tækja­sam­steypan Trans­fi­eld, sem var þá að fara að skrifa undir risa­samn­ing við rík­is­stjórn Ástralíu um að taka að sér allan rekstur á varð­halds­búðum utan Ástralíu (detention centre) sem Ástralir reka í Papúa Nýju-Gíneu, en þær eru einna mest gagn­rýndu flótta­manna­búðir sem til eru í heim­inum.

„Við vorum í raun fleiri sem sögðum okkur fyrst úr Sidney-tví­ær­ingnum en við vorum að vinna verk fyrir tví­ær­ing­inn með The Refugee Art Project, og lista­mann­inum Safdar Ahmet sem start­aði verk­efn­inu, og líka fólki með bak­grunn sem flótta­fólk og hæl­is­leit­endur. Við vorum fyrst til þess en á end­anum vorum við níu sem sögðum okkur úr Sydney-tví­ær­ingnum, og að við­bættum Safdar Ahmet, og eftir það féllu verð­bréf um 9% í Trans­fi­eld-sam­steyp­unni, sem þá var stærsta verk­taka­sam­steypa á suð­ur­hveli …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár