Í kosn­inga­ham Mateusz Morawiecki, for­sæt­is­ráð­herra Póllands og for­maður Laga og rétt­lætis baðar sig í athygli fylg­is­manna á kosn­inga­fundi nýverið. Mynd: AFP

Allt í húfi í Póllandi

Pólska þjóðin er klofin og á morgun verður tek­ist á um fram­tíð hennar. En í Póllandi er for­tíðin heldur aldrei langt undan, skrifar Valur Gunn­ars­son sem staddur er í land­inu og tekur púls­inn á fólki í aðdrag­anda þing­kosn­inga.

„Svo þú ert frá Íslandi, talarðu þá pólsku?“ spyr rak­ar­inn mig á stofu sinni við Tamka-götu í Varsjá. Ég verð að neita því. Meira að segja eina pólska blóts­yrðið sem ég kann vekur ekki lukku. „Hvað á ég að taka mikið af skegg­inu?“ spyr rak­ar­inn. „Allt,“ segi ég. „Yfir­vara­skeggið líka?“ spyr hann. Ég játa því. Honum virð­ist það mikil synd.

„Hvað ertu að gera í Póllandi?“ spyr mað­ur­inn í næsta stól. „Ég er á orku­ráð­stefnu,“ segi ég. „Um orku­skipti?“ spyr hann og bætir við: „Þetta á eftir að taka tíu ár. Ég er líka verk­fræð­ingur.“ Ég þori varla að segja honum að ég sé aðeins blaða­maður. „Ertu viss um að þú viljir láta taka yfir­vara­skeggið líka?“ spyr rak­ar­inn.

Pól­verjar hófu strax að breyta orku­neyslu sinni árið 2014 eftir inn­rás Rússa á Krím­skaga og drógu úr notkun á rúss­neskri olíu og gasi á sama tíma …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár