Vill þyngri refsingar fyrir vændiskaup

Bryn­hildur Björns­dóttir, vara­þing­maður Vinstri grænna, segir það skjóta skökku við að vændis­kaup telj­ist til brota sem ljúka má með lög­reglu­stjóra­sekt. Hún telur að nafn­leynd sem vændis­kaup­endur hafa notið í rétt­ar­kerf­inu gefa til kynna að dóm­stólum þyki vændis­kaup alvar­legri og skammar­legri glæpur en við­ur­lögin gefi til kynna. Bryn­hildur vill að refsiramm­inn fyrir vændis­kaup verði end­ur­skoð­aður.

Vill þyngri refsingar fyrir vændiskaup
Leynd „Nafn­leynd sú sem vændis­kaup­endur hafa notið í rétt­ar­kerf­inu, gefur síðan til kynna að dóm­stólum þykir vændis­kaup alvar­legri og skammar­legri glæpur en virði við­ur­lög kveða á um,“ sagði Bryn­hildur á Alþingi í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir að það hafi ekki verið tekið til skoð­unar að gera breyt­ingar á refsiramm­anum um kaup á vændi. Hún úti­lokar þó ekki að það verði gert. 

Samkvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum skal vændis­kaup­andi sæta sektum eða fang­elsi allt að einu ári en refsiramm­inn leng­ist í tvö ár ef um er að ræða end­ur­gjald fyrir vændi barns sem er undir 18 ára aldri. 

Bryn­hildur Björns­dóttir, vara­þing­maður Vinstri grænna, kall­aði eftir því í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að refsiramm­inn fyrir vændis­kaup yrði end­ur­skoð­aður. 

Lenda aftast í röðinni

Bryn­hildur, sem sendi í fyrra frá sér bók um íslenskar konur sem hafa verið í vændi, sagði vændis­kaup ein af alvar­leg­ustu teg­und kyn­ferð­is­of­beldis ef litið er til afleið­inga fyrir brota­þola. Hún benti jafn­framt á að rann­sókn Stíga­móta sem kynnt var í fyrra sýni að brota­þolar vændis séu mun lík­legri til þess að þjást af áfallastreitu og þung­lyndi og gera til­raun til sjálfs­vígs en aðrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis. 

„Það skýtur því skökku við, virðu­legi for­seti, að vændis­kaup telj­ist til brota sem ljúka má með lög­reglu­stjóra­sekt,“ sagði Bryn­hildur og benti á að stærstur hluti fólks sem verður fyrir vændi séu heim­il­is­lausar konur með þroska­skerð­ingu, konur í neyslu og fátækar konur sem eiga erfitt með að sjá sér og börnum sínum far­borða. 

„Hópar sem sam­fé­lag­inu ber að vernda gegn mis­notkun í skjóli valda mis­munar þessi létt­vægu við­ur­lög verða til þess að vændis­kaup mál lenda oftar en ekki aft­ast í for­gangs­röð­inni þegar kemur að rann­sóknum lög­reglu,“ sagði Bryn­hildur sem telur að end­ur­skoða þurfi refs­ingu fyrir vændis­kaup. 

Útilokar ekk­ertGuðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra segir það ekki hafa komið til skoð­unar að lengja refsirammann en úti­lokar ekki að það verði gert.

Hafa ekki skoðað að lengja refsirammann

Í við­tali við Heim­ild­ina í fyrra sagði Eva Dís Þórð­ar­dóttir, sem hefur opnað sig um sína reynslu af vændi, að refsiramm­inn ætti að vera þyngri. 

„Og ger­endur ættu ekki að njóta nafn­leyndar í lok­uðu þing­haldi, frekar en nauð­garar eða morð­ingjar,“ sagði Eva þá. 

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra tók undir með Bryn­hildi um að vændis­kaup séu alvar­legt brot. 

„Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um eða verið tekið til skoð­unar hvort gera eigi breyt­ingar á refsiramm­anum um kaup á vændi en ég úti­loka alls ekki að það verði gert,“ sagði Guðrún. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Valgerður Magnúsdóttir skrifaði
    Það er svo sannarlega þarft að hreyfa við þessu málefni eins og Brynhildur Björnsdóttir gerði með fyrirspurn sinni til dómsmálaráðherra.
    1
  • Axel Axelsson skrifaði
    hver á líkama kvenna ? . .
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár