Tileinkuð þeim sem ekki lifðu af

Kona sem var í vændi um nokk­urra ára skeið segir það lífs­hættu­legt. Bryn­hildur Björns­dóttir fjöl­miðla­kona birti frá­sögn hennar og fimm ann­arra íslenskra kvenna sem voru í vændi í bók­inni Venju­legar konur. Nið­ur­stöður rann­sókna sýna að sex af hverjum tíu sem hafa verið í vændi hafa gert til­raun til að svipta sig lífi. Bókin er til­einkuð þeim sem ekki lifðu af.

Tileinkuð þeim sem ekki lifðu af
Vill upp­lýsa almenn­ing Bryn­hildur Björns­dóttir, höf­undur bók­ar­innar Venju­legar konur segir reynslu­sögur kvenn­anna mik­il­vægt inn­legg í umræðu um vændi og vændis­kaup. Mynd: Heiða Helgadóttir
„Við þurfum að hlusta“Höfundur bók­ar­innar segir reynslu­sögur kvenn­anna mik­il­vægt inn­legg í umræðu um vændi og vændis­kaup sem þurfa að heyr­ast. Og að við þurfum að hlusta.

„Sárs­auk­inn sem fylgir því að hafa gert sjálfri mér þetta er ólýs­an­legur. Ég var svo ung þegar ég var í þessu, svo ung og tætt, og ég finn svo sárt til með barn­inu sem ég var.“ Þannig lýsir íslensk kona upp­lifun sinni af því að vera í vændi þegar hún var fimmtán ára gömul. Hún er ein þeirra sex kvenna sem voru í vændi og féllust á að segja Bryn­hildi Björns­dóttur fjöl­miðla­konu sögur sínar sem birtar eru í bók­inni Venju­legar konur sem kom út í vik­unni.  

Bryn­hildur seg­ist í sam­tali við Stundina hafa viljað ljá þeim konum rödd sem hafa verið í vændi og eru að fela for­tíð sína. Hún seg­ist hafa talað við fleiri en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár