Að verða ónæm fyrir hatrinu

Arna Magnea Danks var fjög­urra ára þegar hún vissi að hún væri stelpa í lík­ama stráks. Hún er stolt trans kona og vegna þess er ráð­ist á hana per­sónu­lega á sam­fé­lags­miðlum og hún nafn­greind þar sem reynt er að nið­ur­lægja hana og henni jafn­vel óskað dauða. Full­trúar Sam­tak­anna 22 mættu á fyr­ir­lestur sem Arna hélt um mál­efni trans fólks og reyndu að sann­færa fund­ar­gesti um hvað trans fólk væri hættu­legt.

Að verða ónæm fyrir hatrinu
Finnur styrk­inn Arna Magnea hóf bar­átt­una fyrir sjálfri sér þegar hún var fjög­urra ára gömul og finnur í dag styrk í því að geta verið hún sjálf. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er eins og pott­lokið sé farið af en það er búið að krauma og sjóða ansi lengi,“ segir Arna Magnea Danks, 53 ára trans kona, um þá hat­urs­fullu umræðu um hinsegin fólk, sér í lagi trans fólk, sem hefur farið stig­vax­andi að und­an­förnu. 

En Arna er ekki bara trans kona; hún er móðir, leik­kona, áhættu­leik­stjóri, grunn­skóla­kenn­ari og meist­ara­nemi. Hún er bar­áttu­kona, talar skýrt fyrir rétt­indum hinsegin fólks en hefur að und­an­förnu ekki síst þurft að tala skýrt fyrir eigin til­vist; ráð­ist er á hana per­sónu­lega á sam­fé­lags­miðlum og hún nafn­greind þar sem reynt er að nið­ur­lægja hana og henni jafn­vel óskað dauða.

Kom út úr skápnum 47 ára

„Ég ólst upp við tölu­vert ofbeldi. Eins ömur­legt og það er þá er ekk­ert af því sem þetta fólk segir neitt sem ég hef ekki fengið að heyra áður. Ég er líka að verða svo­lítið ónæm fyrir hatr­inu. Ég hef fengið …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Ef börnum verður ekki breytt með ofbeldi, verður þeim ekki breytt með fræðslu
GreiningHinsegin bakslagið

Ef börnum verður ekki breytt með ofbeldi, verður þeim ekki breytt með fræðslu

Sér­fræð­ingar í hinsegin fræðum kryfja atburði síð­ast­lið­inna daga og aðdrag­and­ann að því, sem hefur átt sér stað bæði hér heima og erlendis. Þetta eru þær Gyða Margrét Pét­urs­dóttir pró­fessor, Arna Magnea kenn­ari, Birta Ósk Hönnu­dóttir meist­ara­nemi og Jessica Lynn, bar­áttu­kona fyrir rétt­indum trans fólks. Þær segja íhalds­öfl standa frammi fyrir vanda og þá þurfi að leita að blóra­bögglum.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • "Í stóra samhenginu skiptir þetta fólk ekki neinu máli. Þeirra álit á mér skiptir engu. Ég er ekki að berjast við þau út af þeim heldur fólkinu sem er þarna mitt á milli, sem kannski þekkir engan sem er trans, þannig að við missum það ekki yfir í hatrið."
    Þá væri kannski réttast að Arna þessi væri ekki að fara um alla samfélagsmiðla og saka fólk um hatur, ofbeldi, að vera nasistar og þaðan af verra. Ég held að sú taktík sé ekki í samræmi við þetta yfirlýsta markmið. Það sé frekar gert til að fá stundarfróun sem fæst með því að refsa fólki.
    -14
    • Anna Óskarsdóttir skrifaði
      þá skilur þú ekki óþverraaskapinn sem hún á við að glíma. Þá finnst þér allt í lagi að fólk eins og þetta lið sem farið hefur með himinskautum undanfarnar vikur sé bara allt i lagi. Það sé bara allt í lagi að traðka á þeim börnum og ungmennum sem upplifa sig trans
      7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hinsegin bakslagið

„Þetta var ég. Ég er ekki með typpi, ég var ekki nakin og ég er ekki karlmaður“
ViðtalHinsegin bakslagið

„Þetta var ég. Ég er ekki með typpi, ég var ekki nakin og ég er ekki karl­maður“

Veiga Grét­ars­dóttir er trans konan sem fór í sund í Graf­ar­vogs­laug í síð­ustu viku og nýtti sér kvenna­klef­ann á sama tíma og stúlkur í skóla­sundi. Nokkrar stúlkn­anna hlógu að henni og leið Veigu eins og hún væri sirk­us­dýr. Hún ákvað að gera athuga­semd við kenn­ara þeirra og hélt að þar með væri málið úr sög­unni en hávær orðrómur, byggður á lygum, fór af stað.
Varð fyrir líkamsmeiðingum „en útilokunin var verst“
ViðtalHinsegin bakslagið

Varð fyrir lík­ams­meið­ingum „en úti­lok­unin var verst“

Anna Krist­jáns­dóttir segir að úti­lokun frá félags­legum sam­skiptum hafi valdið henni mestu van­líð­an­inni eftir að hún kom fram opin­ber­lega sem trans kona fyrir þrjá­tíu árum. Hún var líka beitt lík­am­legu ofbeldi. „Einu sinni var keyrt vilj­andi yfir tærnar á mér, fólk hrinti mér og það var hellt úr glösum yfir höf­uðið á mér á skemmti­stöðum.“
„Ég er hrætt við að fólk finni mig í fjöru“
ViðtalHinsegin bakslagið

„Ég er hrætt við að fólk finni mig í fjöru“

„Sjá þau ekki að heim­ur­inn minn er að hrynja?“ hefur Mars M. Proppé spurt sig síð­ast­liðna viku, á meðan hán kennir busa­bekk stærð­fræði í Mennta­skól­anum í Reykja­vík, spjallar við kollega sína á kaffi­stof­unni og mætir á fyr­ir­lestra í Háskóla Íslands. Það fylgir því óraun­veru­leika­til­finn­ing að sinna venju­legu lífi á sama tíma og sam­fé­lags­miðlar loga í deilum um hinsegin fræðslu og kyn­fræðslu í skólum. Deilum sem hafa farið að bein­ast að fólki eins og Mars.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár