Falið í send­ingum Ein ástæða þess að Antwerpen nýtur „vin­sælda“ eit­ur­lyfja­smygl­ara er að um höfn­ina fer mikið af alls kyns ávöxtum, sem þurfa að fara hratt gegnum toll­af­greiðslu og þá er eft­ir­litið minna. Mörg dæmi eru um að eit­ur­lyfjum hafi verið komið fyrir innan um ban­ana­send­ingar svo dæmi sé tekið. Mynd: AFP

Eiturlyfin og glæpaklíkurnar

Höfnin í Antwerpen í Belgíu er stundum kölluð „Stór­mark­aður Evrópu“. Sú nafn­gift er ekki út í loftið, þar koma árlega á land 12 milljón vörugámar. Ekki er allt inni­hald þeirra lög­legt. Evr­ópu­lög­reglan telur hafnir í álf­unni veikan hlekk í eft­ir­liti með inn­flutn­ingi.

Þegar minnst er á Napóleon Bónap­arte og Belgíu í sömu andránni kemur orr­ustan við Waterloo árið 1815 lík­lega fyrst upp í hug­ann. Keis­ar­inn reið, eins og kunn­ugt er, ekki feitum hesti frá þeirri orr­ustu, sem batt enda á veldi hans. Færri vita lík­lega að það var sá sami Napóleon sem fyrstur kom auga á mögu­leika Antwerpen sem hafn­ar­borgar og fyr­ir­skip­aði gerð fyrstu skipa­kví­ar­innar þar,  Bonap­artedok. Napóleon hefur þó tæp­lega grunað að rúmum 200 árum síðar yrði Antwerpen næst umsvifa­mesta höfn Evrópu, á eftir Rott­er­dam. Sú stað­reynd er athygl­is­verð, í ljósi þess að Antwerpen liggur ekki beint að sjó. 

Belgía og Holland

Hafn­irnar í Antwerpen í Belgíu og Rott­er­dam í Hollandi eru þær umsvifa­mestu í Evrópu eins og áður sagði. Um þær fer jafn­framt mest magn þess kóka­íns sem flutt er til Evrópu, fyrst og fremst frá Suður-Ameríku. Enginn veit með vissu hve magnið, sem um hafn­irnar fer, er mikið en yfir­völd í Belgíu og Hollandi telja víst að það auk­ist með hverju ári. Í Belgíu var á síð­asta ári lagt hald á 110 tonn af kóka­íni, að langstærstum hluta í Antwerpen. Kristian Vanderwaeren, fram­kvæmda­stjóri hjá belgísku toll­gæsl­unni, sagði í við­tali við flæmsku sjón­varps­stöð­ina VRT að Antwerpen væri „númer eitt“ áfanga­staður fyrir eit­ur­lyfja­smygl­ara. Hann sagði jafn­framt að ein­ungis 2 pró­sent af öllum þeim varn­ingi sem kæmi til Antwerpen væri skoð­aður með þar til gerðum tækjum (skann­aður). Augljóst væri að það kókaín sem toll­ur­inn kæmi höndum yfir væri aðeins lítið brot af því sem kæmi til lands­ins. „Við þurfum að stór­auka  eft­ir­litið, en það kostar pen­inga, sem ekki liggja á lausu,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn. 

Ein ástæða þess að Antwerpen nýtur „vin­sælda“ eit­ur­lyfja­smygl­ara er að um höfn­ina fer mikið af alls kyns ávöxtum, sem þurfa að fara hratt gegnum toll­af­greiðslu og þá er eft­ir­litið minna. Mörg dæmi eru um að eit­ur­lyfjum hafi verið komið fyrir innan um ban­ana­send­ingar svo dæmi sé tekið.                                                                                                                

Átök um markaðinn 

Hinn 9. jan­úar síð­ast­lið­inn lést ell­efu ára stúlka í Merksem, sem er úthverfi Antwerpen, eftir að skotið var á íbúð­ar­hús fjöl­skyldu hennar. Stúlkan var frænka belgísku bræðr­anna Othman og Younes El Ballouti, en þeir eru eft­ir­lýstir í Evrópu og víðar fyrir eit­ur­lyfja­smygl og pen­inga­þvætti. Belgíska lög­reglan telur að bræð­urnir haldi sig í Dubai og stjórni eit­ur­lyfja­við­skipt­unum þaðan. „Þegar það er sprengt og skotið í Antwerpen er það í flestum til­vikum skipu­lagt af mönnum sem halda sig í Dubai,“ sagði belgíski dóms­mála­ráð­herr­ann Vincent Van Quickenborne nýlega í við­tali. Ráð­herr­ann nýtur stöðugrar lög­reglu­verndar síðan  glæpa­gengi reyndi að ræna honum og fjöl­skyldu hans í fyrra. Átök um eit­ur­lyfja­mark­að­inn hafa farið vax­andi í Antwerpen þar sem hand­sprengjur, byssur og molotovkok­teilar hafa komið við sögu. Í fyrra voru skráð til­felli af því tagi 81 í borg­inni, helm­ingi fleiri en árið áður. Átökin snú­ast um pen­inga, mjög mikla pen­inga. Engar áreið­an­legar tölur um velt­una í eit­ur­lyfja­brans­anum eru til, en vitað að hún er gríð­ar­leg. 

Hafnarstarfsmennirnir í Árósum og blóðprufurnar

Stærsta flutn­inga­höfn Dan­merkur er í Árósum. Um hana fara rúm­lega 70 pró­sent þeirra gáma sem fluttir eru til Dan­merkur. Stærsti við­skipta­vinur hafn­ar­innar er Mærsk skipa­fé­lagið sem á APM Term­inals sem ann­ast upp- og útskipun í höfn­inni. 

StærstUm höfn­ina í Árósum fara rúm­lega 70 pró­sent þeirra gáma sem fluttir eru til Dan­merkur.

Yfirmenn APM höfðu um skeið haft grun um að hluti þeirra starfs­manna sem unnu við upp- og útskipun hjá fyr­ir­tæk­inu væru iðu­lega undir áhrifum fíkni­efna. Kvöld eitt í jan­úar á þessu ári tók hjúkr­un­ar­fræð­ingur frá fyr­ir­tæk­inu Falck (sem ann­ast m.a. örygg­is­gæslu og sjúkra­flutn­inga) blóðprufur hjá hópi starfs­manna APM. Komið var fram á kvöld þegar því var lokið og hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn (kona) ákvað að fara með blóðpruf­urnar heim til sín og skila þeim á rann­sókn­ar­stof­una morg­un­inn eftir. Þegar hún ætl­aði að taka tösk­una morg­un­inn eftir greip hún í tómt, óboðnir gestir höfðu brot­ist inn í húsið, þeir höfðu tekið tösk­una með blóðpruf­unum en látið allt annað ósnert. Tösku­þjófn­að­inn tókst ekki að upp­lýsa. 

Félagar í Hells Angels meðal starfsmanna

Stjórn­endur APM fyr­ir­tæk­is­ins höfðu lengi haft grun um að félagar í glæpa­sam­tök­unum Hells Angels væru meðal starfs­manna við höfn­ina í Árósum. Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske fyrir nokkrum dögum stað­festi Keith Svendsen, fram­kvæmda­stjóri APM, að allt að 30 starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins (sem eru 400) væru félagar í, eða tengdir, Hells Angels.

Stjórn­endur APM eru ósáttir við að við ráðn­ingu starfs­fólks við höfn­ina skuli lög­regla ekki kanna sér­stak­lega bak­grunn við­kom­andi umsækj­anda, „udvidet baggrunds­kontrol“, en ein­stök fyr­ir­tæki hafa ekki heim­ild til þess. Slík bak­grunns­rann­sókn er gerð á Kastrup-flug­velli og hefur gef­ist vel. Í  bak­grunns­rann­sókn felst meðal ann­ars að lög­reglan fær saka­skrár­upp­lýs­ingar frá löndum þar sem við­kom­andi umsækj­andi hefur búið síð­ast­liðin fimm ár. Fyr­ir­tæki á Kastrup geta ekki ráðið starfs­fólk sem ekki fær „grænt ljós“ frá lög­reglu. Jessica Larsen, sér­fræð­ingur við rann­sókna­stofn­un­ina DIIS, tekur undir með APM, um nauð­syn bak­grunns­upp­lýs­inga, og bendir á að meðal við­skipta­vina hafn­ar­innar í Árósum sé NATO. Banda­lagið valdi fyrir nokkru, í sam­komu­lagi við dönsk stjórn­völd, að höfnin í Árósum yrði mið­stöð vopna- og tækja­flutn­inga NATO. Þangað koma skip með alls kyns búnað og NATO hefur til umráða sér­stakt athafna­svæði við höfn­ina. Áður­nefnd Jessica Larsen segir ekki nóg að hafa afmarkað svæði sem sé vand­lega gætt ef maðkur sé í starfs­manna­mys­unni. 

Hafnirnar eru veiki hlekkurinn

Í nýrri skýrslu frá Evr­ópu­lög­regl­unni, Europol, kemur fram að hafnir séu veikasti hlekk­ur­inn þegar kemur að ólög­legum inn­flutn­ingi eit­ur­lyfja og ólög­legs varn­ings. Samkvæmt skýrsl­unni hefur glæpa­sam­tökum tek­ist að koma „sínum mönnum“ með ein­hverjum hætti að starf­semi hafna víðs vegar um heim. Í flestum til­vikum með mútum en einnig hót­unum. Yfir­stjórn Mærsk skipa­fé­lags­ins og APM segir að aukin smygl­starf­semi sé vax­andi vanda­mál og þar sé Danmörk ekki und­an­skilin. Keith Svendsen, fram­kvæmda­stjóri APM, sagði í við­tali við Berl­ingske að flutn­inga­fyr­ir­tæki og yfir­völd yrðu að leggj­ast á eitt til að bregð­ast við vand­anum, þótt það væri hæg­ara sagt en gert. 

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    „Við þurfum að stórauka eftirlitið, en það kostar peninga, sem ekki liggja á lausu,“

    Má ekki fastlega gera ráð fyrir að það myndi sparast stókostlega meiri peningur úti í þjóðfélaginu, helur en sá kostnaður sem fæli í sér að stórauka eftirlitið í höfnunum ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár