Veiðigjöld munu hækka en óljóst er um hversu mikið

Greint var frá því í vor að veiði­gjöld muni hækka árið 2025. Sú ætlan er stað­fest í skýrslu „Auð­lind­anna okkar“ en ekk­ert er sagt um hversu mikið. Það kostar ríkið átta millj­arða króna á ári að sinna rann­sóknum, þjón­ustu, eft­ir­liti og umsjóð með fisk­veiðum. Ofan á þá tölu verður að koma bein og sýni­leg hlut­deild þjóð­ar­innar í afkomu við fisk­veiðar sem henni er tryggð í lögum.

Veiðigjöld munu hækka en óljóst er um hversu mikið
Ráðherra Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra ýtti verk­efn­inu „Auð­lind­irnar okkar“ úr vör í maí í fyrra. Nið­ur­staða þeirrar vinnu liggur nú fyrir. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Veiði­gjöld verða hækkuð. Hvernig fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag greiðslu þeirra verður og hversu miklum við­bót­ar­tekjum þau muni skila í rík­is­sjóð er þó enn óljóst og á eftir að útfær­ast nákvæm­lega. Þetta kom fram í kynn­ingu á vinnu „Auð­lind­ar­innar okkar“, verk­efnis sem Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra setti af stað í maí í fyrra. Hóparnir sem féllu undir verk­efnið skil­uðu sam­eig­in­legri loka­skýrslu í dag. 

Raunar eru ekki ný tíð­indi að veiði­gjöld muni hækka. Rík­is­stjórnin boð­aði þá hækkun í fjár­mála­á­ætlun sinni fyrir árin 2024 til 2028 sem birt var í mars síð­ast­liðnum. Þar kom fram að veiði­gjaldið yrði hækkað á stærri sam­þættar útgerðir en á móti yrði frí­tekju­mark hækkað til hags­bóta fyrir litlar og með­al­stórar útgerðir. Áætlað var að þessar breyt­ingar myndu skila auknum tekjum í rík­is­sjóð frá og með árinu 2025. Hvernig þetta yrði gert var ekki útfært frekar í áætl­un­inni en fyrir lá að hækk­unin yrði á grund­velli nið­ur­stöðu „Auð­lind­ar­innar okkar“. 

Í skýrsl­unni sem birt var í dag leggur starfs­hóp­ur­inn sem falið var að skoða þetta til að ný og ein­fald­ari leið verði farin við álagn­ingu og inn­heimtu veiði­gjalda, að gjaldið verði lagt á afla­verð­mæti hverrar veiði­ferðar og þannig gjald­fært í raun­tíma. 

Tillaga hóps­ins sam­kvæmt skýrsl­unni er sú að veiði­gjaldið verði í sam­ræmi við metna auð­lind­arentu af fisk­veiðum. Starfs­hóp­ur­inn telur að ekki séu vís­bend­ingar um að álagt veiði­gjald víki að veru­legu marki frá því sem lagt er upp með í lögum um það, en þar segir að gjaldið eigi að vera um 33 pró­sent af met­inni auð­lind­arentu af fisk­veiðum. 

Einnig kæmi til greina að mati starfs­hóps­ins að við­halda núver­andi kerfi veiði­gjalda en meta reikni­stofn veiði­gjalds í því skyni að hann end­ur­spegli sem best auð­lind­arentu. Þar þyrfti sér­stak­lega að horfa til áhrifa fjár­magns­kostn­aðar, auka­fyrn­inga og milli­verð­lagn­ingar.

Þorri þjóðarinnar segir að gjöldin eigi að vera hærri

Í lögum um veiði­gjald eru sett fram skýr mark­mið. Þeir fjár­munir sem inn­heimt­ast vegna veiði­gjalda eiga að „mæta kostn­aði rík­is­ins við rann­sóknir, stjórn, eft­ir­lit og umsjón með fisk­veiðum og fisk­vinnslu og til að tryggja þjóð­inni í heild beina og sýni­lega hlut­deild í afkomu við veiðar á nytja­stofnum sjávar.“ 

Mat mat­væla­ráðu­neyt­is­ins, sem sett er fram í skýrsl­unni, er að kostn­aður við þjón­ustu rík­is­ins við sjáv­ar­út­veg sé um átta millj­arðar króna á ári. Því er ljóst að veiði­gjaldið þarf að ná að minnsta kosti inn þeirri tölu og til við­bótar að „tryggja þjóð­inni í heild beina og sýni­lega hlut­deild í afkomu við veiðar á nytja­stofnum sjávar.“ 

Miklar deilur hafa verið um þessi mál – hvernig eigi að skipta afkom­unni af fisk­veiðum milli útgerða ann­ars vegar og almenn­ings, eig­enda auð­lind­ar­innar, hins vegar – ára­tugum saman. Í könnun sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands gerði fyrir mat­væla­ráðu­neytið í tengslum við vinnu við „Auð­lind­ina okkar“ kom fram að rúm­lega 83 pró­sent aðspurðra töldu að auð­linda­gjöld sem leggj­ast á geir­ann ættu að vera hærri. Þar af töldu 57,3 pró­sent að þau hættu að vera mun hærri. Einungis kjós­endur eins flokks á Íslandi, Sjálf­stæð­is­flokks, eru að meiri­hluta sátt við fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið. 

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) birti grein­ingu í febr­úar síð­ast­liðnum þar sem sagði að auð­lind­arenta í sjáv­ar­út­vegi hefði verið 56 millj­arðar króna á árinu 2021. Með auð­lind­arentu er átt við þá arð­semi sem verður til vegna þess að stjórn­völd hafa tak­markað aðgengi að auð­lind­inni, með úthlutun  afla­heim­ilda. Veiði­gjald árs­ins 2021 var hins vegar 7,9 millj­arðar króna, eða um 14 pró­sent af auð­lind­arent­unni, og þar með langt frá 33 pró­sent við­mið­inu. 

Það var þó umtals­vert meira en útgerð­irnar greiddu í veiði­gjald árið 2020, þegar það var ein­ungis 4,8 millj­arðar króna, en umtals­vert minna en árið 2018, þegar það var 11,3 millj­arðar króna. Í fyrra var gjaldið 7,9 millj­arðar króna og á fyrri hluta yfir­stand­andi árs greiddu útgerð­irnar 5,6 millj­arða króna í veiði­gjald. 

Gríðarlegur hagnaður á síðustu árum

Frá árinu 2009 og út árið 2021 högn­uð­ust sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins um 533 millj­arða króna, sam­kvæmt gagna­grunni sem Deloitte heldur úti um geir­ann. Mestur var hagn­að­ur­inn í krónum talið á tíma­bil­inu á síð­ast­nefnda árinu, þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­arða króna. Hann jókst um 124 pró­sent á milli ára og var 36 millj­örðum krónum meiri þá en árið 2020.

Á sama tíma­bili, frá 2009 og út árið 2021, hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn greitt 219,3 millj­arða króna í opin­ber gjöld, þar af 85,9 millj­arða króna í veiði­gjöld. Auk þess er um að ræða tekju­skatt og trygg­inga­gjald. Sú tala dregst frá áður en hagn­aður sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja er reikn­að­ur auk þess sem búið er að taka til­lit til fjár­fest­ingar í geir­an­um, sem býr til eign. 

Opin­beru gjöldin voru 22,3 millj­arðar króna árið 2021, sem var 28 pró­sent meira en árið 2020. Á sama tíma og hagn­að­ur­inn sem sat eftir hjá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum jókst um 36 millj­arða króna milli ára juk­ust opin­beru gjöldin um 4,9 millj­arða króna.

Hagn­aður geirans áður en hann greiddi veiði­gjöld, tekju­skatt og trygg­inga­gjald í rík­is­sjóð var sam­tals 752,3 millj­arðar króna frá 2009 og út árið 2021. Af þessum hagn­aði sat tæp­lega 71 pró­sent eftir hjá útgerðum lands­ins en rétt um 29 pró­sent fór í opin­ber gjöld.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár