Stjörnur Mynd: Unsplash

„Það er hægt að njóta margs í myrkrinu“

Útivera, félags­leg sam­skipti og skipu­lag geta ýtt undir vellíðan á haustin og vet­urna þegar myrkrið verður sem mest, sam­kvæmt Lilju Magn­ús­dóttur sál­fræð­ingi. Reykja­vík­ur­búar njóta þess að kveikja á kertum og Stjörnu-Sævar lýsir nátt­úru­feg­urð vetr­ar­ins.

Út um glugg­ann á skrif­stofu Heim­ild­ar­innar blasir mið­bær Reykja­víkur við, grár og kulda­legur. Í síð­ustu viku var sól­skin úti og á veit­inga­stöð­unum í grennd­inni sat fólk og naut félags­skapar hvað ann­ars í sum­ar­fatn­aði. Nú er alvaran hins vegar tekin við enda er haustið að koma, sum­ar­fríið búið og skól­arnir byrj­aðir aftur. Morg­un­um­ferðin og troð­fullir strætóar skreyta göt­urnar, myrk­ari kvöld stytta dag­inn, sem fyrir nokkrum vikum var svo langur, og allt í einu er vetr­ar­kápan farin að líta út eins og væn­legri val­kostur en þunni sum­arjakk­inn á morgn­ana. 

Allt frekar glatað og á nið­ur­leið. Eða hvað? Er eitt­hvað jákvætt við myrkrið og haustið sem geta virkað svo yfir­þyrm­andi? Já, svo sann­ar­lega, alla­vega sam­kvæmt Reyk­vík­ingum á ferð­inni, stjörnu­fræð­ingi og sál­fræð­ingi, sem öll fundu ein­hverja feg­urð í myrkr­inu.

Nýtum sólarljósið

Lilja Magn­ús­dóttir er sál­fræð­ingur og eig­andi Seiglu sál­fræði­stofu. Hún segir mik­il­vægt að huga að svefni, félags­legum tengslum, hreyf­ingu og því …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    Hafa það voðalega kósý með skugganum sínum og muldra svo ofan í barm sér ein í myrkrinu gaman! Gaman!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár