Sjávarútvegurinn skapar skattadrottningar og -kónga

Þau sem greiða hæstu skatt­ana á sjö af tíu land­svæðum hafa tengsl við sjáv­ar­út­veg. Þau tíu sem hæstan skatt greiða á Reykja­nesi hafa öll tengsl við sjáv­ar­út­veg. Fjölmörg dæmi eru um fjöl­skyldur sem raða sér í efstu sætin á hverjum stað fyrir sig.

Sjávarútvegurinn skapar skattadrottningar og -kónga

Tekju­hæstu Íslend­ingar síð­asta árs, og þar með skatta­drottn­ingar og -kóngar í flestum umdæmum, tengj­ast sjáv­ar­út­vegi. Það á við um Reykja­nes, Suð­ur­land, Vest­manna­eyjar, Aust­ur­land, Vest­firði, Vest­ur­land, Reykja­vík og tvö af fimm sveit­ar­fé­lögum öðrum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Hafn­ar­fjörð og Garðabæ. Þá eru þeir sem eru í öðru sæti yfir hæstu skatt­greiðslur bæði á Norð­ur­landi eystra og vestra úr sjáv­ar­út­vegs­geir­anum, sem og sá sem er í öðru sæti á Sel­tjarn­ar­nesi.

Aðeins í Kópavogi og Mos­fellsbæ má engan finna í röðum þeirra tíu sem hæsta skatta greiða sem hafa tengsl við sjáv­ar­út­veg eða útgerð. Á Reykja­nesi voru hins vegar öll þau sem röð­uðu sér í tíu efstu sætin með tengsl við útgerð eða fisk­vinnslu og í Vest­manna­eyjum voru níu af tíu tekju­hæstu íbú­unum á síð­asta ári sjó­menn eða með tengsl við útgerð og sjáv­ar­út­veg.

Um helm­ingur allra þeirra sem eru í efstu sætum á umræddum svæðum hafa slík tengsl. Þá eru sex tekju­hæstu …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Ójöfnuður ósanngjarn en samt nauðsynlegur
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár