Auknar fjárfestingar í kvennaboltanum skila sér í velgengni á HM

Komið er að átta liða úrslitum á heims­meist­ara­móti kvenna í fót­bolta. Mist Rún­ars­dóttir fyrrum knatt­spyrnu­kona og hlað­varps­stjórn­andi Heima­vall­ar­ins leggur áherslu á að aukið fjár­magn skili sér í bættum árangri innan kvenna­bolt­ans. „Um leið og það er fjár­fest í íþrótt verður hún aug­ljós­lega betri og leik­menn fá meira svig­rúm til að sinna henni.“

Auknar fjárfestingar í kvennaboltanum skila sér í velgengni á HM
Ljónynj­urnar frá Englandi Fagna sigri á Heims­meist­ara­mót­inu í fót­bolta.

Níunda heims­meist­ara­mót kvenna í fót­bolta fer nú fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Aðeins ell­efu dagar eru í úrslita­leik­inn og átta liða berj­ast enn um heims­meist­ara­tit­il­inn. Það eru Spánn, Holland, Japan, Svíþjóð, Ástralía, Frakk­land, England og Kólumbía.

Mist Rún­ars­dóttirSegir umgjörð í kringum kvenna­bolt­ann fara batn­andi.

Mist Rún­ars­dóttir, fyrrum knatt­spyrnu­kona, þjálf­ari og hlað­varps­stjórn­andi Heima­vall­ar­ins, segir mótið standa undir vænt­ingum þó að sig­ur­strang­leg­ustu þjóð­irnar hafi ekki endi­lega gert það. „Það er alls­konar spenna í þessu og óvæntir hlutir búnir að ger­ast. Það eitt og sér er skemmti­legt fyrir áhorf­and­ann. Per­sónu­lega fannst mér mjög gleði­legt að sjá þrjár af fjórum Afr­íku­þjóðum kom­ast áfram upp úr riðl­unum sínum. Það sýnir okkur að það er ýmis­legt að ger­ast í fót­bolt­anum út um allan heim.“ 

„Per­sónu­lega fannst mér mjög gleði­legt að sjá þrjár af fjórum Afr­íku­þjóðum kom­ast áfram upp úr riðl­unum sínum.“
Mist Rún­ars­dóttir

Meira fjármagn

Úrslit leikj­anna í riðla­keppn­inni og 16 liða úrslitum hafa vakið athygli enda eru sum af bestu fót­bolta­liðum heims dottin úr leik. Banda­ríkin, sem prýða efsta sæti á styrk­leika­lista FIFA  og unnu síð­ustu tvö heims­meist­ara­mót, töp­uðu í dramat­ískri víta­spyrnu­keppni fyrir Svíum í 16 liða úrslitum. Banda­ríska liðið var að stórum hluta skipað nýliðum sem voru að spila sína fyrstu leiki á heims­meist­ara­móti.

Brasilía situr í sjötta sæti styrk­leika­lista FIFA og komst ekki upp úr riðla­keppn­inni. Sömu­leiðis Þýska­lands, næst­besta lið í heimi og Kanada, sjö­unda besta lið heims. Þau lið sem komust áfram í 16 liða úrslit eru sum í fer­tug­asta, fimm­tug­asta eða rúm­lega sjö­tug­asta sæti list­ans eins og Marokkó. Leik­maður Marokkó, Nohaila Benzina, varð einnig fyrsta kona fót­bolta­sög­unnar til að klæð­ast slæðu í leik á heims­meist­ara­móti í síð­ustu viku. 

Nohaila BenzinaEr fyrsta konan til að klæð­ast slæðu á heims­meist­ara­mót­inu.

Mist segir fleiri þjóðir hafa sett aukin kraft í kvenna­bolt­ann og skilar það sér í meiri vel­gengni. „Ef þú fjár­festir í íþrótt­inni, þá vex hún. Þróunin hefur verið þannig um allan heim og það er gaman að sjá það svona skýrt á stærsta svið­inu.“

Aldrei áður hafa eins margar þjóðir tekið þátt á mót­inu en þær eru 32 tals­ins. Áður en mótið hófst til­kynnti FIFA að met­að­sókn hefði verið í miða á mótið og nú hafa yfir 1,5 millj­ónir miða selst. Þær fjár­hæðir sem leik­menn fá greiddar fyrir þátt­töku eru einnig eins­dæmi. Fyrir að vinna úrslita­leik­inn fær hver leik­maður 30 millj­ónir íslenskra króna og liðið hálfan millj­arð. Til sam­an­burðar fékk argent­ínska karla­liðið rúman fimm og hálfan millj­arð fyrir sigur sinn á HM karla í fyrra og alls seld­ust tæp­lega þrjár millj­ónir miða á mótið. 

Hlut­irnir eru að fikrast í rétta átt en ger­ast of hægt, sam­kvæmt Mist, sem gerir ráð fyrir að langt sé í jafn­ræði milli kvenna og karla innan knatt­spyrnu­heims­ins. Hún hefur tekið eftir auknum áhuga á kvenna­bolt­anum síð­ustu ár og því hve mikið getur breyst þegar fyr­ir­tæki setja alvöru metnað og pen­inga í að byggja upp lið. „Um leið og það er fjár­fest í íþrótt verður hún aug­ljós­lega betri og leik­menn fá meira svig­rúm til að sinna henni. Þá er hægt að bæta aðstæður og umgjörð með því að fá hæf­ara fólk til að vinna í kringum íþrótt­ina.“

„Ef þú fjár­festir í íþrótt­inni, þá vex hún.“
Mist Rún­ars­dóttir

Fjölmiðlar beri ábyrgð

Mist segir fjöl­miðla einnig gegna mik­il­vægi hlut­verki í sam­bandi við sýni­leika kvenna­bolt­ans. „Málið snýst ekki um að það vanti áhuga á fót­bolta í sam­fé­lag­inu, heldur er það þannig að ef engin er að tala um kvenna­fót­bolt­ann að þá veistu ekki af honum. En um leið og fjöl­miðlar fara að fjalla meira um hann, að þá verður þetta normið í þínu umhverfi og áhug­inn eykst. Það skiptir máli að sjá leiki í sjón­varp­inu, heyra um þá í útvarp­inu eða opna fréttir á vef­síðu.“ 

Sjálf finnur Mist að fleira fólk ræðir Heims­meist­ara­mótið eða Bestu deild kvenna við hana en áður. Síðustu ár hefur umgjörð í kringum kvennaknatt­spyrnu batnað til muna, bæði hér­lendis og erlendis en það er lyk­il­at­riði, sam­kvæmt fyrrum fót­bolta­kon­unni, ef stækka á leik­inn og gera hann eft­ir­sókn­ar­verð­ari. „Þá verður nátt­úru­lega að búa til góða vöru úr þessu. Ef þú ætlar að sýna fót­bolta­leik með einni mynda­vél sem er langt frá vell­inum þá verður þetta aldrei eins spenn­andi og eins og ef þú ert með tíu mynda­vélar í kringum völlin, end­ur­sýn­ingar, líf og fjör. Það er líka auð­veld­ara fyrir lýsanda leiks­ins að ná upp góðri stemmn­ingu ef umgjörðin er góð og betra fyrir áhorf­endur að fanga and­ar­takið. Þetta skiptir miklu máli og er hægt og bít­andi að batna.“

Á mót­inu í ár heldur Mist með Japan, en liðið hefur náð góðum árangri á mót­inu  þrátt fyrir að hafa nýlega gengið í gegnum ákveðna end­ur­nýjun vegna kyn­slóða­skipta. „Þær eru kannski aðeins betri en fólk átti von á því að það hélt að end­ur­nýj­unin væri komin skemmra á veg. En þær eru líka bara svo sjar­mer­andi, jarð­tengdar, vel skipu­lagðar og leik­gleðin geislar af þeim. Þær eru flottar fyr­ir­myndir.“

Japanska lands­liðiðMætir Svíum í átta liða úrslitum á HM.

„Það er líka svo skemmti­legt að sjá hvernig íþrótta­menn­ingin í kringum hvert lið skilar sér á mót­inu, hvort sem það teng­ist þjóð­menn­ingu eða ekki. Þú sérð ólíkar nálg­anir, við­mót og orku,“ segir Mist sem fagnar fjöl­breyti­leika á mót­inu enda skili það sér í fleiri fyr­ir­myndum fyrir ungar fót­bolta­stelpur.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár