Hefði frekar viljað krabbamein en að þjást í hljóði með endómetríósu

Fræðslu vantar um sjúk­dóm­inn endó­metríósu sam­kvæmt ungri konu sem bíður nú eftir leg­náms­að­gerð. Í tæp 20 ár hefur Sara Dögg Dav­íðs­dóttir Baxter þjáðst af verkjum vegna endó­metríósu. Það tók hana fjögur ár að eign­ast fyrsta barnið sitt og var henni þá sagt að ófrjó­semin staf­aði af streitu en ekki sjúk­dómnum. Beðið er eftir samn­ingi heil­brigð­is­ráð­herra við Klíník­ina sem mun aðstoða leg­hafa við að kom­ast fyrr í leg­nám.

Hefði frekar viljað krabbamein en að þjást í hljóði með endómetríósu
Sara Dögg Dav­íðs­dóttir Baxter Eign­að­ist tvö börn með glasa­frjóvgun en hún er með sjúk­dóm­inn endó­metríósu. Mynd: Ásta Kristjánsdóttir

Sara Dögg Dav­íðs­dóttir Baxter er 31 árs kona sem hefur glímt við sjúk­dóm­inn endó­metríósu frá því að hún byrj­aði á blæð­ingum 12 ára. Í dag er Sara Dögg tveggja barna móðir og rekur bók­halds­fyr­ir­tækið Logn. Eftir tæpa tvo mán­uði fer hún í lang­þráða leg­náms­að­gerð hjá eina lækn­inum sem hún treystir til að fram­kvæma slíka aðgerð hér­lendis, Jóni Ívari Ein­ars­syni hjá Klíník­inni. Hún hleypur til styrktar Endósam­tök­unum ásamt dóttur sinni í skemmtiskokki Reykja­vík­ur­mara­þons­ins. 

Endó­metríósa er krónískur sjúk­dómur sem teng­ist horm­óna­starf­semi lík­am­ans og getur kallað fram mikla verki, inn­vortis blæð­ingu, bólgur og blöðrur. Þegar Sara Dögg fór á blæð­ingar í fyrsta skipti blæddi mikið. Hún rifjar upp að hafa gjarnan gripið til þess ráðs að sofa í bleyju af yngri bróður sínum. „Ég var að sofa með bleyjur af litla bróður mínum og jafn­vel skipta um á miðri nóttu því að hún var orðin full af blóði.“ 

„Ég var að sofa með bleyjur af litla bróður mínum og jafn­vel skipta um á miðri nóttu því að hún var orðin full af blóði.“
Sara Dögg Dav­íðs­dóttir Baxter

Við 14 ára aldur fór Sara Dögg í ofnæm­isprufu og í ljós kom að hana skorti helm­ing þess blóð­magns sem telst vera eðli­legt í lík­am­anum. Hún var send upp á spít­ala hið snarasta en ástæðan fyrir blóð­leys­inu og miklum verkjum var ekki skýr. Söru Dögg voru gefin ýmis maga­lyf sem hún átti að prófa. 

Fékk krabbameinssprautur

Sara DöggHleypur í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu til að fjár­magna heim­ild­ar­mynd um endó á Íslandi.

Eftir fjölda­margar heim­sóknir til lækna í von um að finna ástæðu fyrir sárs­auka­fullum blæð­ingum og maga­verkjum grun­aði lækna­nema á heilsu­gæslu að um endó­metríósu væri að ræða. Sara Dögg fór í skoðun og fékk síðan grein­ingu frá kven­sjúk­dóma­lækni þegar hún var 18 ára, en að með­al­tali tekur sex ár að greina endó­metríósu. „Lækn­ir­inn sagði mér að þetta sé lækn­an­legur sjúk­dómur,“ segir Sara Dögg. „Ég fékk krabba­meins­sprautur sem heita Zoladex og eru oft not­aðar við endó. Mér var ekki sagt neitt um hvernig þessar sprautur virka og byrja í kjöl­far þeirra á breyt­inga­skeið­inu. Ég varð nátt­úru­lega bara þung­lynd og það var eng­inn til að grípa mig.“ 

Fljót­lega leit­aði hún til Endósam­tak­ana þar sem hún gat deilt reynslu sinni með fleirum sem kljást við sjúk­dóm­inn og leitað ráða. Hún segir það sam­fé­lag hafa gert mikið fyrir sig en hún upp­lifði iðu­lega skiln­ings­leysi frá læknum gagn­vart sjúk­dómnum. „Í hvert skipti sem ég fór til kven­sjúk­dóma­lækn­is­ins míns þurfti ég að rifja allt upp aftur af því að hann mundi ekki eftir neinu. Maður fékk aldrei svör þrátt fyrir að vera með allskyns verki.“ Henni var einnig sagt að konur væru yfir­leitt ekki að fá endó­metríósu fyrr en í kringum 26 ára aldur. „Það er ekki rétt. Þær eru bara ekki greindar fyrr, heldur eru þær búnar að þjást í hljóði í mörg ár.“ 

Frjósemisvandkvæði

Fljót­lega eftir grein­ingu var Söru Dögg gert ljóst að barn­eignir gætu hjálpað til við að milda ein­kenni endó­metríósu. „Mér er strax sagt 18 ára að ég ætti að verða ólétt því að þá myndi sjúk­dóm­ur­inn lag­ast. Svo heyrir maður líka að það væri betra að vera fyrr en seinna því að legið skemmd­ist í hverjum tíða­hring og lík­urnar á barn­eignum minnka.“ Tvítug ákvað Sara Dögg því að byrja að reyna að eign­ast barn. 

Ferlið tók fjögur ár. „Ég var lengi að leita mér hjálpar vegna þess að mér var sagt að endó hefði ekki áhrif á frjó­semi og ég var svo ung. Fyrst reyndum við venju­lega, svo fórum við til læknis og fengum egg­los töflur. Við end­uðum síðan á því að fara til Livio.“ Þar var byrjað á tækni­sæð­ingu sem er minna inn­grip og styttra ferli. Eftir fimm til­raunir var Sara Dögg enn ekki orðin ófrísk. Áfram var henni sagt að endó­metríósa hefði ekki áhrif heldur væri það lík­lega streita sem orsak­aði frjó­sem­is­vand­ann. Slíkar athuga­semdir höfðu áhrif á and­lega líðan Söru Daggar enda var ábyrgðin sett á hennar til­finn­inga­stjórnun í stað þess sjúk­dóms sem hún er greind með. Hún seg­ist vita um fleiri konur sem mæta slíku við­móti og leita þar af leið­andi frekar út fyrir land­stein­ana að aðstoð.

„Nú er kom­inn tími til að losa sig við legið“
Sara Dögg Dav­íðs­dóttir Baxter
um leg­nám sem hún hyggst fara í á næst­unni.

Með glasa­frjóvgun rætt­ist að lokum draum­ur­inn um að eign­ast barn. „Sumar konur verða alveg eins og nýjar mann­eskjur á með­göngu og finna ekki fyrir neinum verkjum og hefur aldrei liðið betur.“ Blæð­ingar Söru Daggar minnk­uðu eftir með­göngu en verkir juk­ust. Þá fór hún í aðgerð hjá kven­sjúk­dóma­lækni og var sú aðgerð til tölu­verðra bóta. Eftir vel heppn­aða aðgerð ákváðu hún og maki hennar að eign­ast annað barn. Ári eftir þá ákvörðun hafði enn ekk­ert gerst. Parið fór beint í glasa­frjóvgun og eign­uð­ust lít­inn dreng í fyrstu til­raun. 

Sonur Söru DaggarFæddist árið 2021.

Sara Dögg tók svo ákvörðun um að eign­ast ekki fleiri börn enda seg­ist hún ekki geta lagt það á lík­ama sinn vegna sjúk­dóms­ins. „Ég vildi eign­ast fimm börn enda á ég sjálf sjö systk­ini. En það er ekki í boði. Núna á ég tvö börn og það er bara hell­ingur. Svo er hægt að ætt­leiða eða taka í fóstur.“ Sara Dögg á nú bók­aðan tíma í leg­nám sem hún von­ast til þess að veiti henni betri getu til að lifa með sjúk­dómnum án kvala. „Maður er alltaf með verki og nú er kom­inn tími til að losa sig við legið.“

Legið burt fyrir 1,2 milljónir

„Þegar ég var að reyna að eign­ast dóttur mína þá snérist heim­ur­inn um það í fjögur ár. Eftir að ég eign­að­ist hana fékk ég nóg af endó, vildi ekki tala um það og skráði mig úr sam­tök­unum. En núna er ég komin á annan stað,“ segir Sara Dögg sem hleypur nú til að fjár­magna gerð heim­ild­ar­myndar um endó á Íslandi. 

Síðustu ár hafa Endósam­tökin staðið í ströngu um að veita fræðslu um sjúk­dóm­inn. Sara Dögg veit um dæmi þar sem að átt­ræðar konur hafa haft sam­band við sam­tökin og þakkað þeim fyrir fræðsl­una, vegna þess að nú vissu þær hvers vegna þeim hefði liðið illa í ára­tugi. 

„Ég óskaði alltaf að ég hefði frekar fengið krabba­mein, ein­hvern sjúk­dóm þar sem maður gæti barist og ann­að­hvort lifir maður eða ekki“
Sara Dögg Dav­íðs­dóttir Baxter

„Ég óskaði alltaf að ég hefði frekar fengið krabba­mein, ein­hvern sjúk­dóm þar sem maður gæti barist og ann­að­hvort lifir maður eða ekki. Því að hann er svo við­ur­kenndur.“ Söru Dögg finnst kerfið ekki grípa fólk með endó nægi­lega vel og ekki sé þekk­ing lækna nægi­lega góð heldur. „Endó er ósýni­legur sjúk­dómur sem maður deyr ekki af, þess vegna er hann álit­inn svo ómerki­legur.“

Á síð­asta ári kynnt­ist hún Jóni Ívari kven­sjúk­dóma­lækni og á nú tíma í leg­nám hjá honum. Aðgerðin kostar 1,2 millj­ónir. „Hann er búinn að umbylta þessum aðgerðum hérna heima. Þess vegna er ég að borga fyrir þetta úr eigin vasa, vegna þess að ég vil fara til hans. Ég gæti líka beðið í nokkur ár og farið á Land­spít­al­ann til að fá aðgerð­ina nið­ur­greidda. En hann er miklu fær­ari af því að það er svo lítil þekk­ing hjá kven­sjúk­dóma­læknum um endó­metríósu.“

Sara Dögg segir algengt að konum sé neitað um leg­nám vegna þess að þær eru enn á barn­eign­ar­aldri. Auk þess er ekki hægt að tryggja að aðgerð skili til­settum árangri heldur komi það í ljós eftir á.

„Kannski verð ég betri, kannski ekk­ert betri en kannski miklu betri. Ég veit það ekki nema með því að taka legið, og ég ætla hvor­teðer ekki að nota það meira. Það er búið að sinna sínum til­gangi.“ Hún segir það hafa verið mik­inn létti þegar Jón Ívar skoð­aði hana og taldi aðgerð skyn­sam­lega ákvörðun. „Hann er líka fyrsti kven­sjúk­dóma­lækn­ir­inn sem spyr hvort það sé í lagi að hann skoði mig, biður um sam­þykki.“ Hún segir að slík vinnu­brögð hefðu hjálpað þegar hún var 18 ára og það var nán­ast dag­legt brauð að glenna klofið. 

Biðin eftir aðgerðum í opin­bera kerf­inu stytt­ist veru­lega eftir að Klíníkin hóf að bjóða upp á leg­náms aðgerðir og er nú í kringum hálft ár. Beðið er samn­ings milli Klíník­ur­innar og rík­is­ins sem auð­velda á ein­stak­lingum að sækja aðgerð­ina þar án þess að borga fyrir það fúlgur fjár. Í grein sem birt­ist á Vísi síð­ast­lið­inn nóv­em­ber skrif­aði Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra: 

Willum Þór ÞórssonBeðið er eftir langvar­andi samn­ing frá heil­brigð­is­ráð­herra.

„Biðlistar end­ur­spegla álag á kerfið og lengd­ust þeir í heims­far­aldr­inum. Ef ekk­ert er að gert mun gliðna meira á milli þarfar­innar fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu og þeirrar þjón­ustu sem að við getum veitt. Það er ljóst að nýta þarf allt heil­brigð­is­kerfið til þess að vinna á biðlistum og hefur und­ir­bún­ingur þess efnis verið í for­gangi í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu und­an­farið. 

Til að bregð­ast við þess­ari stöðu hafa Sjúkra­trygg­ingar Íslands samið við Klíník­ina um kaup á endó­metríósu­að­gerðum til að vinna niður biðlista og bæta aðgengi að þeim óháð efna­hag. Það er mikið gleði­efni að samn­ingar hafi náðst um þessar mik­il­vægu aðgerðir. Eins er samn­ing­ur­inn mik­il­vægur liður í fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lagi þess­ara aðgerða og ann­arra.“

Sara Dögg vonar að samið verði til lengri tíma. „Heil­brigð­is­ráð­herra sagði að það væri vika í langvar­andi ótíma­bund­inn samn­ing í maí en enn hefur ekk­ert gerst. Það á að koma í ljós í lok ágúst hvort að það verði samið eða ekki. Kannski þarf ég að borga, kannski ekki. Ég fer í aðgerð­ina, sama hvort verður.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár