Ráðgáta á Akranesi: Hvaðan er vatnið að koma?

Íbúar á Akranesi eru sumir hverjir ugg­andi yfir kenn­ingum þess efnis að jarð­veg­ur­inn í stórum hluta mið­bæj­ar­ins sé mun blaut­ari en eðli­legt geti talist. Veitur finna engan leka í sínum kerfum. Bærinn hefur ráðið verk­fræði­stofu til að skoða málið. Bæj­ar­full­trúi segir ekki til­efni til að hræða fólk á meðan eng­inn viti neitt. Einn helsti áhrifa­mað­ur­inn í atvinnu­lífi bæj­ar­ins hefur staðið fyrir eigin rann­sóknum á mál­inu.

Hús­eig­endur á neðri Skaga, í grennd við mið­bæ­inn á Akranesi, hafa sumir tekið eftir óút­skýrðum raka eða jafn­vel leka í kjöll­urum húsa. „Við höfum fengið vatn inn í húsið, ekki rign­ing­ar­vatn. Hvaðan er þá vatnið að koma?“ spyr íbúi við Vest­ur­götu og íbúi við Akur­gerði lýsir því að vatn undir húsi hans hafi sópað jarð­vegi frá skól­plögn.

Stórhýsi í mið­bænum hefur orðið fyrir tjóni og eig­andi þess, einn helsti áhrifa­mað­ur­inn í atvinnu­lífi Akraness, full­yrðir að hita­veitu­vatn streymi um jarð­veg­inn á stóru svæði, hefur sjálfur staðið fyrir rann­sóknum og fengið að grafa holur í görðum sam­borg­ara sinna.

Ábend­ingar um að eitt­hvað ami að hafa verið sendar til Veitna, sem hafa í þrí­gang á þessu ári ráð­ist í bil­ana­leit á svæð­inu, en veitu­fyr­ir­tækið segir að ekk­ert athuga­vert hafi fund­ist við lagnir þess á Akranesi.

Akra­nes­bær samdi í júní við verk­fræði­stof­una Verkís um að kanna málið frekar, í ljósi þess …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Mig grunar að hér sé um alvarlegan spekileka að ræða á Akranesi.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár