Minna virði Heimili lands­ins fá mun minna fyrir hverja krónu sem þau afla í dag en þau fengu fyrir ári síðan. Mynd: Shutterstock

Íslensk heimili borguðu 31 milljarð í vexti á fyrstu þremur mánuðum ársins

Vaxta­gjöld íslenskra heim­ila juk­ust um 60 pró­sent á einu ári, eða um 11,5 millj­arða króna. Það er meiri hlut­falls­leg aukn­ing en varð eftir banka­hrunið. Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna þeirra hefur dreg­ist saman fjóra árs­fjórð­unga í röð. Það hafði ekki gerst í ára­tug.

Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna íslenskra heim­ila dróst saman um 4,8 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2023, þrátt fyrir að tekjur hafi hækkað veru­lega. Sú hækkun er að mestu leyti rekj­an­leg til þeirra kjara­samn­inga sem þorri almenna vinnu­mark­að­ar­ins skrif­aði undir í lok síð­asta árs. Þá hækk­uðu laun þeirra sem samn­ing­arnir náðu til frá 1. nóv­em­ber 2022. Alls hækk­uðu laun um 13,4 pró­sent á einu ári. Samt dróst kaup­mátt­ur­inn saman. 

Ráð­stöf­un­ar­tekjur eru þeir pen­ingar sem standa eftir þegar búið er að draga skatta og önnur gjöld frá launum við­kom­andi og kaup­máttur þeirra lýsir því hvað hver getur keypt fyrir þær tekj­ur. Þegar kaup­mátt­ur­inn dregst saman þá getur við­kom­andi keypt minna fyrir krón­urnar sem hann hefur til ráð­stöf­unar í hverjum mán­uð­i. 

Ástæða þess að íslensk heim­ili fá minna fyrir krón­urnar sínar er sú að útgjöld þeirra hækka mun hraðar en tekj­urnar um þessar mundir, enda verð­bólga búin að vera í námunda við tveggja …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár