Kópa­vogs­skóli Börnin í Kópavogi hjól­uðu frá skól­anum sínum og hring um Hamra­borg­ina, þver­uðu akbrautir á nokkrum stöðum og þurftu á kafla að hjóla á göt­unni ásamt öðrum far­ar­tækjum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Íslensk börn geti hjólað í umferðinni eins og dönsk og hollensk börn

Sjöttu bekk­ingar í tveimur skólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fengu undir lok skóla­vetr­ar­ins tæki­færi til að spreyta sig við bók­leg og verk­leg hjóla­próf. Til­gang­ur­inn er að auka sjálfs­traust þeirra og færni í umferð­inni.

Verk­fræði­stofan VSB og Sam­göngu­stofa hafa að und­an­förnu farið í tvo skóla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með bæði bók­leg og verk­leg hjóla­próf, sem eiga að stuðla að því að börn öðlist meiri hjól­reiða­færni og treysti sér til þess að nota hjólið sem sam­göngu­tæki.

Jónína Þóra Ein­ars­dóttir, verk­fræð­ingur hjá VSB, segir við Heim­ild­ina að um sé að ræða til­rauna­verk­efni sem styrkt hafi verið af Sóleyju, nýsköp­un­ar­sjóði á vegum Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Börn í 6. bekkjum Öldutúns­skóla og Kópa­vogs­skóla þreyttu prófin núna skömmu fyrir sum­ar­frí skól­anna.

„Við sóttum um vegna þess að okkur finnst mik­il­vægt að börnum sé gefið sjálfs­traust til að vera hjólandi í umferð­inni, eins og tíðkast í Danmörku og Hollandi,“ segir Jónína í sam­tali við Heim­ild­ina.

VSBJónína Þóra Ein­ars­dóttir verk­fræð­ingur.

Hún segir að fyrst taki börnin bók­legt próf með tutt­ugu spurn­ingum, sem útbúið hafi verið í …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár