Amman í Grjótaþorpinu: „Hún var barnavernd“

„Hún var félags­þjón­usta, hún var barna­vernd, hún var alvöru,“ segir skáld­konan Didda um Laufeyju Jak­obs­dóttur, sem var gjarnan kölluð amman í Grjóta­þorp­inu. Didda var ein af þeim sem áttu athvarf hjá Laufeyju þegar annað skjól var hvergi að finna. Krakk­arnir gátu alltaf komið eins og þeir voru, en að sögn Diddu var styrkur Lauf­eyjar sá að hún við­ur­kenndi fólk, sama hvaða stétt og stöðu það hafði.

Amman í Grjótaþorpinu: „Hún var barnavernd“
Þótti svo vænt um Vigdísi Laufeyju Jak­obs­dóttur þótti svo vænt um Vigdísi Finn­boga­dóttur, fyrsta kjörna kven­for­seta heims, en það var Laufey sem nefndi Vigdísi fyrst á nafn sem mögu­legt for­seta­efni og eitt af síð­ustu emb­ætt­is­verkum Vigdísar var að sæma Laufeyju fálka­orð­unni. Á mynd­inni eru Laufey, Vigdís og í miðj­unni Ragn­heiður Þor­láks­dóttir. Mynd: Úr einkasafni

„Ég vil að reist verði högg­mynd í Grjóta­þorp­inu til heið­urs Laufeyju Jak­obs­dóttur,“ skrif­aði íbúi í Reykja­vík á Betri Reykja­vík fyrir nokkrum árum síðan. Nú þegar er minn­is­varði um Laufeyju við Grjóta­götu 12, þar sem hún bjó lengi. Nítján árum eftir frá­fall hennar er áhrifa hennar enn að gæta í íslensku sam­fé­lagi. Hún var ekki ein þeirra sem lét til sín taka á vett­vangi stjórn­mála, eins og margir þeir sem lesa má um í sögu­bókum, heldur hafði hún áhrif á sam­ferða­fólk sitt með því að láta það sig varða, sér­stak­lega þá sem stóðu utan­veltu í sam­fé­lag­inu. 

„Hún Laufey var alveg mögnuð í björg­unar- og mann­úð­ar­starfi sínu á Hall­æris­plan­inu,“ segir Vigdís Finn­boga­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti, í sam­tali við Heim­ild­ina. Núver­andi for­seti, Guðni Th. Jóhann­es­son, segir sömu­leiðis að Laufey hafi unnið „mik­il­vægt og fórn­fúst“ starf í þágu ung­menna sem þurftu á aðstoð að halda, „eða bara vænt­um­þykju. Að ein­hver hlust­aði á þau.“ Ljóð …

Kjósa
60
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn Bjarnason skrifaði
    Ég kom einusinni þarna heim til hennar,mögnuð kona❤️🙏
    0
  • Edda María Magnúsdóttir skrifaði
    Hlutur mannsins sem tók á móti fólkinu er fyrirferðarlitlill.
    Hann var sá sem….
    Hlúði að fólkinu sem komið var inn á heimilið, sauð hollustusúpu ,hjálpaði því að verka sig , er lítill í þessum annars ágætu skrifum.
    0
  • Margret Vidar skrifaði
    Verum Laufey!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár