„Ég er að vonast til að fólk hugsi“

Guðrún S. Gísla­dóttir ræðir Aspas og hvernig fátækum hópum er att hver gegn öðrum.

„Ég er að vonast til að fólk hugsi“

Í breskum stór­mörk­uðum er algengt að það sé afsláttur á vörum sem eru að fara að skemm­ast og er afslátt­ur­inn hæstur rétt fyrir lokun. Þetta vita þeir fátæk­ustu öðrum betur og um þá fjallar leik­ritið Aspas. Annars vegar um George, enskan elli­líf­eyr­is­þega, og hins vegar Dani, rúm­enskan far­and­verka­mann á miðjum aldri.

Þeir tala ekk­ert í verk­inu en áhorf­endur fá heyrna­tól til að fylgj­ast með hugs­unum þeirra, á meðan þeir sinna sínum inn­kaupum fáum við inn­sýn í blank­heit þeirra, en ekki síður for­dóma þeirra og rang­hug­myndir um hinn. Um hina.

Þeir Eggert Þor­leifs­son og Snorri Eng­il­berts­son leika þá félaga, en það er Guðrún S. Gísla­dóttir sem leik­stýrir, en eftir 45 ára starf í leik­húsi leik­stýrir hún í fyrsta skipti atvinnu­leik­urum. Við slógum á þráð­inn til Guðrúnar …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár