Fyrrverandi eigandi Mandi dæmdur fyrir líkamsárás

Veit­inga­mað­ur­inn Hlal Jarah var í síð­asta mán­uði dæmdur fyrir að hafa ráð­ist með ofbeldi á Kefsan Fatehi, slegið og sparkað í hana, rifið í hár hennar og hrint henni. Kefsan lýsti því í við­tali hvernig Hlal hefði áður ógnað henni, hótað henni líf­láti og áreitt hana kyn­ferð­is­lega.

Fyrrverandi eigandi Mandi dæmdur fyrir líkamsárás
Sló, spark­aði, hár­reytti og hrinti Hlal Jarah var dæmdur fyrir að ráð­ast á Kefsan Fatehi en upp­tökur sýndu hann beita ofbeld­inu.

Hlal Jarah, fyrr­ver­andi eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Mandi, var í síð­asta mán­uði dæmdur til þrjá­tíu daga skil­orðs­bund­innar fang­els­is­vistar fyrir lík­ams­árás. Var Hlal sak­felldur fyrir að hafa veist með ofbeldi að Kefsan Fatehi á öðrum degi jóla 2020, hrint henni upp að vegg, slegið hana í and­lit, rifið í hár hennar, sparkað í hana og hrint henni niður tröppur.

Kefsan er írönsk og stundar meist­ar­nám við mála- og menn­ing­ar­deild Háskóla Íslands. Hún kom hingað til lands í októ­ber árið 2020 og fékk leigt her­bergi á efri hæð húss við Veltu­sund 3b, en á neðri hæð­inni er veit­inga­stað­ur­inn Mandi.

Sló og sparkaði

Kefsan lýsti í við­tali við Eigin konur og í Stund­inni að hún hefði sætt áreiti af hálfu Hlal og fleiri manna sem tengd­ust honum. Þá hefði Hlal hótað henni, meðal ann­ars líf­láti, sýnt henni myndir af skot­vopnum og sagst vera vel tengdur inn í íslenska lög­reglu og við áhrifa­fólk hér á landi. Þá hefði hún mátti þola ill­mælgi af hálfu Hlals og kyn­ferð­is­legri áreitni. Þær lýs­ingar fengu stoð í frá­sögn ungs sýr­lensks manns sem einnig bjó á efri hæð­inni í Veltu­sundi, sem gekk undir nafn­inu Hótel Mandi hjá þeim sem þar bjuggu.

„Þá kom hann nær og hrækti á mig, og kall­aði mig tík“
Kefsan Fatehi
Um aðdrag­anda árás­ar­innar

Árásin átti sér stað í og við húsið í Veltu­sundi en þangað hafði Kefsan komið til að sækja föggur sínar þar eð hún var að flytja á stúd­enta­garða. Í við­tal­inu lýsir Kefsan því að þegar hún var í þeim erindum hafi Hlal komið þar að gang­andi. „Þá kom hann nær og hrækti á mig, og kall­aði mig tík. Það var ekki í fysta skipti sem hann kall­aði mig tík og ógn­aði mér.“

Samkvæmt Kefsan svar­aði hún því til að Hlal gæti sjálfur verið tík­ar­sonur. Við það hafi Hlal tekið á rás og ráð­ist að henni inni í and­dyri húss­ins. Þar hafi hann rifið í hár hennar og kippt henni til sín. „Hann spark­aði í mag­ann á mér og sló mig í höf­uðið, ítrekað. Síðan henti hann mér út á götu.“

„Olnbogi Hlal fer af krafti í vinstri hluta höf­uðs Kefsan“
Úr lög­reglu­skýrslu

Til eru upp­tökur úr eft­ir­lits­mynda­vélum í og við húsið að Veltu­sundi og í þeim má sjá atburða­rás­ina og er hún í sam­ræmi við lýs­ingar Kefsan. Í skýrslu lög­reglu þar um segir að á upp­tök­unum sjá­ist hvernig Kefsan sé hrint aftur á bak upp að vegg og að Hlal virð­ist snúa upp á hana þannig að hún falli við. „Sjá má á upp­tök­unni að þegar þetta er að ger­ast að hægri hendi, nánar til­tekið oln­bogi Hlal fer af krafti í vinstri hluta höf­uðs Kefsan, líkt og Hlal sé að slá frá sér,“ segir í skýrsl­unni og er því einnig lýst að á upp­töku sjá­ist þegar Hlal sparki í Kefsan.

Í dómnum er til­greint að vitn­is­burður Kefsan hafi frá upp­hafi verið stöð­ugur og fái stoð í upp­tök­unum en þær hafi ríkt sönn­un­ar­gildi. Fram­burður Hlal hafi hins vegar í heild sinni verið ósann­fær­andi. Við árás­ina hafi Kefsan hlotið meiðsl, meðal ann­ars tognun á kjálkalið, háls­hrygg og öxl.

Samkvæmt dóms­orði var Hlal því gerður 30 daga fang­els­is­dómur, skil­orðs­bund­inn til tveggja ára, auk þess sem honum var gert að greiða Kefsan 400 þús­und krónur í miska­bætur auk sak­ar­kostn­aðar, alls ríf­lega 2,2 millj­ónir króna.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár