Flís, einkasýning
Flís er samstarfsverkefni leirlistakonu og hönnuðar. Saman rannsaka þau menningu staðbundinnar mynsturgerðar ásamt notkunar möguleikunum sem felast í litaflóru leirtegunda hérlendis. Frá sitthvoru sjónarhorninu vinna þau saman að því að uppgötva leirinn og litina út frá grafískum og handgerðum áherslum. Vinnustofan stendur yfir í mánuð fram að hátíðinni sjálfri.
Vinnustofan opnaði 3. apríl og stendur fram að- og á HönnunarMars sem fer fram dagana 3. - 7. maí. Opnunartímar á www.asmundarsalur.is
Litlar lindir, myndlistarsýning
Myndlistarkonurnar Berglind Erna Tryggvadóttir og Geirþrúður Einarsdóttir leggja saman krafta sína í sýningunni Litlar lindir þar sem þær rannsaka Mosfellsbæ og nærumhverfi í gegnum minningar, sögu og bæjarlandslag.
Sýningin er opin alla virka daga frá 9 til 18 og laugardaga milli 12 og 16.
MA útskriftarsýning í sýningargerð
Í Lungamjúkum skuggum kannar Sunna Dagsdóttir leiðir til siðferðilegrar sýningagerðar, m.a. með því að velja verk sem styðja við sjálfbærni, og gaumgæfa samband mannvera og annarra lifandi vera.
Hún segir m.a. um sýninguna.: „Á útskriftarsýningu minni hef ég lagt áherslu á að vinna með listamönnum sem sýna umhverfisvitund í verkum sínum og vekja spurningar um eðli hlutarins, efnis og efniskenndar.”
Lungamjúkir skuggar er útskriftarverkefni Sunnu til meistaragráðu í sýningagerð frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur lokið BA gráðu í listfræði og þýsku frá Háskóla Íslands (2021).
Sunna lítur á sýningagerð sína sem frásagnaraðferð, og notar sýninguna sem hugmynda- og þekkingarskapandi miðil sem byggir á sýningafræðum og öðrum tengdum fræðum, viðfangsefnum og frásagnarleiðum.
Sunna hefur sýningastýrt einka- og hópsýningum á Íslandi og er meðlimur í stjórn nemendagallerísins Rýmd.
Opnun: 22. apríl kl. 16-18. Opið fim/fös 16.00 – 18.00 og lau/sun 13:00 – 15:00
Þegar ljósið deyr, myndlistarsýning
Eva Schram birtir okkur ljósmyndir af íslenskri náttúru og fjallamóðunni sem gerir fjöllin fjarlæg og framandi, líkt og himinn og jörð renni saman í eina óræða heild. Verkin hafa þróast á ferðum hennar um öræfi Íslands og dvöl í afskekktum sveitum.
Mán - fös 11:00 - 18:00 og lau 12:00 - 17:00
Sjalaseiður –umbreyting úr texta í textíl
Sjalaseiður – umbreyting úr texta í textíl er sýning Bergrósar Kjartansdóttur út frá bók hennar Sjalaseiður. Sjalaseiður er óður til íslensku ullarinnar, íslenskrar náttúru og norrænu goðafræðinnar. Öll sjölin í bókinni eru prjónuð úr íslenskri ull en eru jafnframt sýnd í annarri útgáfu hvað band og liti snertir. Í bókinni eru sögur, ljóð og uppskriftir af sjölum. Hvert og eitt sjal ber nafn og sögu þess forna fyrirbæris sem kveikti hugmyndina að sjölunum. Segja má að hvert sjal sé eins og ljóð sem segir gamla sögu og nýja ásamt því að hlýja eigandanum, vernda hann og gleðja skynfæri hans. Aðgangur ókeypis
Opnunartímar: mán – fös 12:00 – 18:00, lau 13:00 – 16:00
allt er nálægt myndlistarsýning
Laugardaginn 15. apríl kl. 16:00 opnar Kristinn E. Hrafnsson sýninguna allt er nálægt í Hverfisgalleríi. Þar verða skúlptúrar á gólfum og lágmyndir á veggjum. Velkomin.
Sýningin er opin til 31.05.2023. Opið þriðjudaga til föstudaga frá 13:00 – 17:00 og laugardaga frá 14:00 – 17:00.
Leysingar 2023
Þátttakendur eru: Anna Líndal, Egill Logi Jónasson, Kristín Anna Valtýsdóttir, Karólína Rós Ólafsdóttir, Haust, Sigurður Þórir Ámundason, Venus Volcanism.
Yfirborð/Surface og Tvöfaldur dessert
Listafólkið Halldór Sturluson og Berglind Erna Tryggvadóttir eru með tvær aðskildar sýningar í Gallery Port. Halldór sýnir litastúdíur sínar úr mislitum pappír sem raðast upp á ólíkan hátt í þéttpressaða bunka, minna á jarðlög eða marglaga æviskeið. Berglind Erna sækir í hversdagsleikann í teikningum sínum af því sem alltaf innan sjónsviðsins og seilingar. Myndirnar gætu staðið í Orðabók hversdagsins því allir munu kannast við eitthvað úr sínum.
Opið þriðjudag til laugardags milli 12-17
Alltaf að - myndlistarsýning
Sigrún Hlín Sigurðardóttir opnar sýninguna Alltaf að í Gallerí Úthverfu/Outvert art space, Ísafirði. Þar verða sýnd ný textílverk, þar sem meðal annars er sótt í brunn þjóðsagna og fjallað um leti og dyggðir, gull og gráma.
Við erum vont fólk. Ég er vondur maður.
Egill Logi Jónasson opnar sýningu 13. apríl kl 17:00 – 19:00. Lýsing Athafna- og listamaðurinn Egill Logi Jónasson sýnir málverk í Portfolio gallery. Hann veltir fyrir sér hvar hann og aðrir eru staðsettir á skala siðferðiskenndar. Þar til annað kemur í ljós þá erum við öll grunuð um gæsku. Lokar 29. apríl. Opið fim - sun 14:00 – 18:00.
Loungæ
Á sýningunni Loungæ velta þau Hlökk Þrastardóttir og Sindri Leifsson fyrir sér hugtakinu „lounge“ sem setustofum, sér í lagi á hótelum eða á skrifstofum en einnig í merkingunni að slæpast um eða hanga. Þau sækja innblástur í hugmyndaheimsteinaldarinnar og berja honum upp við nútímann og þann veruleika sem við lifum við í dag. Slaghljóminn beisluðu þau í skúlptúra úr leir, timbri, stáli og gulum paprikum og verða verkin virkjuð í gegnum gjörninga og þátttöku gesta. Opnun fer fram 15. apríl kl. 17:00 – 19:00 og stendur sýningin til 29. apríl. Lokahóf auglýst síðar.
Fyrirbærafræði
Brynjar Helgason opnar myndlistarsýningu í Fyrirbæri. Ágrip úr sýningarskrá: ,,…Í eigin heimi sem aftur á móti gerir ráð fyrir osmósu við einhvern fullkomlega ókunnugan sem með hugveruleika sínum myndi ljá upplifuninni væ(n)gi í tengslum við sögu og samfélag, sértæk sum þau kunna að vera… Þetta felur á endanum í sér visst notagildi vegferðarinnar sem mælikvarði á fagurfræðilegt gildi afstætt öllum mögulegum hlutum og hluteigandi gjörðum vorum.“
Sýningin er opin til 30. Apríl. Opið laugardaga & sunnudaga frá 18:00 - 20:00 og/eða 12:00 - 14:00 (eftir samkomulagi). www.phenomenon.systems.
Möguleg æxlun / Possible Oddkin
Brák Jónsdóttir hefur breytt gróðurhúsi Norrænahússins í tilraunastofu þar sem hún rannsakar mögulega heima og framtíðir. Á sýningunni Tilraun til samlífs er hefðbundnum hugmyndum um tengsl, mökun og skyldleika ögrað og mörkin á milli huga, líkama og umhverfis könnuð. Sýningarstjóri er Odda Júlía Snorradóttir. Opið alla daga á milli 10 - 17.
HELGA SIF GUÐMUNDSDÓTTIR
Á setustofunni opnar sýning Helgu Sifjar Guðmundsdóttur, Endurkast. Helga Sif Guðmundsdóttir útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá LHÍ vorið 2005 og lauk MFA-gráðu frá Konstfack listaakademíunni í Stokkhólmi vorið 2009. Verk Helgu Sifjar eru innblásin af rannsókn hennar á eðli óhefðbundinna efna og formrænum eiginleikum þeirra. Á sýningu hennar í Ásmundarsal sýnir hún nýja seríu af lágmyndum og skúlptúr sem fær stað á Gunnfríðarstöpli.
YELENA ARAKELOW
Beðið eftir dansi er hljóðverk eftir danshöfundinn Yelenu Arakelow. Hljóðverkið bíður áhorfendum upp á að finna nándina sem fylgir því að bíða. Hvað upplifir þú í biðstöðu? Getum við upplifað sameiginlega löngun til breytinga, ef við bíðum saman?
Að finna tímann líða með endurtekningum og tómarúmi eykur mögulega eftirvæntinguna á að eitthvað gerist? eða verður tímaupplifunin óskýrari í biðstöðu?
Yelena Arakelow (f. 1993 í Zürich, Sviss) er upprennandi danshöfundur búsett í Reykjavík. Verk hennar hafa verið flutt og sýnd í Gallery Reykjanesbær (2021), Reykjavik Dance Festival (2022), Ung Nordic Music Festival Iceland (2022), Plöntutið (2021), Tanzhaus Zürich (2020), Nuuk Nordic Kulturfestival (2021) og International Dance Festival Latvia (2020).
Athugasemdir