Aska, feg­urð og fram­tíð Hér sést í verk Yaroslava Kostenko, Sergiy Petlyuk og Elenu Subach. Mynd: Eyþór Árnason

Sprengjubyrgið innra með þér

Hvernig ég komst í sprengju­byrgið er þver­fag­leg sýn­ing sjö úkra­ínskra lista­manna í Norræna hús­inu. Í sýn­ing­unni kafa lista­menn­irnir djúpt ofan í eigin reynslu af inn­rás Rússa í Úkraínu, þrána eftir frið­sælu lífi, leið­irnar til þess að þrauka af og von­ina um fram­tíð­ina.

„Sprengju­byrgið er öryggi stað­ur­inn þinn. Fyrir mér var sprengju­byrgið fjöl­skyldan og vinnan. Ég fann þegar fyrstu síren­urnar vældu að ég vildi vera með fjöl­skyld­unni, sem var í öðrum bæ einmitt þá,“ segir Yulia Sapiga, sýn­ing­ar­stjóri, sem rifjar í kjöl­farið upp þegar hún hóf verk­efnið Dagbók stríðs­ins á fyrsta degi stríðs­ins í gall­eríi sínu í Lviv – og lista­menn voru til­búnir með verk strax fyrsta dag­inn eftir inn­rás.

Sýningin í Norræna hús­inu leit­ast við að sýna reynslu­heim lista­manna sem horfst hafa í augu við stríðið. Stríðs­tímar snú­ast um hörku, hatur og ótta en í þeim birt­ist einnig hug­rekki, sam­kennd og kær­leikur, sem fyrir mörgum varð að „sprengju­skýli“. Í kjöl­farið mætti spyrja: Hverjar voru leið­irnar að per­sónu­legu skýli lista­mann­anna? 

Yulia Sapiga„Listin er mik­il­vægt vopn í upp­lýs­inga­stríð­inu.“

Þessi við­fangs­efni eru skoðuð í nokkrum víddum, með því að búa til sam­tal milli hins nýja veru­leika í Úkraínu og reynsl­unnar sem upp úr honum …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár