Skoðað og skjalað Svandís tók við af Krist­jáni Þór sem ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála. Hún ætlar nú að kom­ast að því sem honum hafði verið falið að gera. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eftirlit með eignatengslum í sjávarútvegi í skötulíki

Þrjár stofn­anir undir for­ystu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins ætla að ráð­ast í heil­mikla vinnu við að greina eigna- og stjórn­un­ar­tengsl í sjáv­ar­út­vegi. Mark­miðið er ekki síst að búa til lif­andi gagna­grunn og fylla upp í gloppur í laga- og reglu­verki sem hefur komið í veg fyrir að hægt sé að fram­fylgja lögum.

Mat­væla­ráð­herra hefur samið við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um að fram­kvæma athugun, eða rann­sókn, á eigna- og stjórn­un­ar­tengslum í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Þekkt er að útgerðir sem eru að meg­in­stofni í eigu sömu aðila eiga afla­heim­ildir langt umfram lög­legt hámark án þess að nokkuð sé að gert. Það hefur þó ekki verið stað­fest af opin­berum aðilum og hafa dótt­ur­fé­lög útgerða jafn­vel verið talin sem sjálf­stæðir og ótengdir aðilar. 

Verk­efnið, sem Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefur falið Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, á að vinna í sam­starfi þess og tveggja ann­arra stofn­ana, Fiski­stofu og Seðla­bank­ans. Rann­sóknin er hluti af vinnu ráðu­neyt­is­ins við „að greina áskor­anir og tæki­færi í sjáv­ar­út­vegi og tengdum greinum ásamt því að meta þjóð­hags­legan ávinn­ing fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins,“ eins og segir á vef ráðu­neyt­is­ins.

En eru þetta ekki upp­lýs­ingar sem við eigum að vita nú þegar? Að ein­hverju leyti, segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en upp­lýs­ing­arnar eru ekki nógu nákvæmar. „Að stóru leyti liggja þessar upp­lýs­ingar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu