„Hér er maður frjálsari“

Sextán ára gömul flutti Valerie Ósk Elenu­dóttir hingað frá Úkraínu, ári á eftir móður sinni. Í nokkur ár eftir frá­fall móður sinnar gat hún ekki rætt um and­lát hennar, en þurfti að full­orðn­ast hratt. Hún ákvað að elta draumana, útskrif­að­ist úr leik­list­ar­námi fyrr á árinu og fram undan er hlut­verk í alþjóð­legri bíó­mynd.

„Hér er maður frjálsari“

„Ef ég yrði spurð hvað ég hafi öðl­ast á Íslandi þá er það frelsi,“ segir Valerie Ósk Elenu­dóttir, sem útskrif­að­ist í leik­list frá Kvik­mynda­skóla Íslands fyrr á þessu ári. Hún hefur unnið sem fyr­ir­sæta í mörg ár og eftir inn­rás Rússa í heima­land hennar, Úkraínu, fyrr á þessu ári, fór hún að vinna hjá New in Iceland til að aðstoða meðal ann­ars Úkra­ínu­menn til að fóta sig á Íslandi. 

Á Íslandi öðl­að­ist hún sjálf ný tæki­færi, eins og kemur í ljós þegar hún er spurð að því hvers vegna hún valdi leik­list­ina. „Maður er ekki frjáls í Úkraínu; ef maður er úr milli­stétt þá getur það verið erfitt að verða það sem maður vill verða. Þjóð­fé­lagið segir hvað maður getur gert og hvað maður getur ekki gert. Að þessu leyti var erfitt að búa þar þegar ég var þar fyrir mörgum árum. Ég var búin að vinna …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár