Pelosi fylgir hjartanu í púðurtunnuna

Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings, lýsir stuðn­ingi við Taívan með heim­sókn sem kallar fram reiði kín­verskra stjórn­valda og snertir á mestu mögu­legu átökum sem geta orðið á heims­vísu.

Pelosi fylgir hjartanu í púðurtunnuna
Nancy Pelosi Ferð hennar til Taívan kallar fram ógn­andi við­brögð Kína, sem er sex­tíu sinnum fjöl­menn­ara land en Taívan og telur sig eiga til­kall til þess síð­ar­nefnda. Mynd: AFP

Kínversk stjórn­völd segja Banda­ríkja­stjórn leika sér að eld­inum og hóta hern­að­ar­að­gerðum eftir heim­sókn banda­ríska þing­for­set­ans Nancy Pelosi til Taívan. Joe Biden for­seti studdi ekki opin­ber­lega heim­sókn þing­for­set­ans. Kín­verjar hafa til­kynnt umfangs­miklar hern­að­ar­æf­ingar skammt frá Taívan næstu daga og stefnt flug­móð­ur­skipi sínu í átt að eyj­unni. Gríð­ar­lega mik­il­vægt flokks­þing er skammt framundan hjá kín­verska Komm­ún­ista­flokknum og þing­kosn­ingar á næsta leiti í Banda­ríkj­unum. 

Upphafið: Borgarastríð og herforingjastjórn

Með þessum æfingum og hern­að­ar­brölti eru Kín­verjar að svara fyrir sig í deil­unni um Taívan, sem hefur staðið frá lokum kín­verska borg­ara­stríðs­ins árið 1949. Vestrænt her­setu­lið kom á fót grimmri her­for­ingja­stjórn í Taívan sem mót­vægi við yfir­ráð komm­ún­ista á meg­in­land­inu. Stjórnin sam­an­stóð aðal­lega af her­for­ingjum Kuom­in­tang-hreyf­ing­ar­innar sem tap­aði í borg­ara­stríð­inu við komm­ún­istana og flúði til Taívan til að sleppa við refs­ingu og halda bar­áttu sinni áfram í mýflugu­mynd með stuðn­ingi vest­ur­veld­anna. Eyjan hafði þá verið á valdi Japana í ára­tugi en þeir gáfu upp yfir­ráð sín þar eftir ósig­ur­inn í seinni heims­styrj­öld­inni árið 1945. 

Var þessi nýja ógn­ar­stjórn í Taívan frá upp­hafi afar óvin­sæl og ofsótti bæði meinta og alvöru and­stæð­inga sína af milli grimmd. Stjórnin beitti meðal ann­ars pynt­ingum og aftökum til að halda völdum en smám saman fjar­aði undan til­kalli þeirra til valds. Árið 1996 var fyrsti lýð­ræð­is­lega kjörni for­seti Taívan settur í emb­ætti. Árin og ára­tugirnir á undan höfðu ein­kennst af öfl­ugri lýð­ræð­is­bar­áttu en stjórn­ar­tíð ein­ræð­is­stjórn­ar­innar er almennt kölluð „Hvíta ógnin“ af Taívönum í dag. Meira en þrjá­tíu þús­und voru myrtir eða sáust aldrei aftur. Minnst 140 þús­und voru hand­teknir vegna gruns um að vera stjórn­ar­and­stæð­ingar. Á sama tíma voru Sov­ét­ríkin að falla og miklar póli­tískar og efna­hags­legar breyt­ingar áttu sér stað í Kína. Aldrei áður í sögu mann­kyns hafa jafn margir risið úr sárri fátækt á jafn skömmum tíma og eftir að efna­hags­um­bætur Deng Xiaoping voru kynntar til sög­unnar; deilt er um fjöld­ann en hund­ruð millj­óna hafa bæst við hina ört vax­andi milli­stétt í Kína. 

Miðstöð hátækniiðnaðar

Taívan þró­aði um leið með sér öfl­ugan hátækni­iðnað sem sam­keppni við vax­andi mátt Kína, og nutu til þess stuðn­ings vest­ur­veld­anna og þá sér­stak­lega Banda­ríkj­anna. Taívanir eru aðeins 23 millj­ónir á meðan Kín­verjar nálg­ast einn og hálfan millj­arð. Það þýðir að Kín­verjar eru meira en sex­tíu sinnum fleiri en Kín­verjar og geta boðið stór­fyr­ir­tækjum afar hag­stæð kjör í krafti mann­afla og lægri launa. 

Mót­mæl­andi í Hong KongStuðn­ings­maður kín­verskra stjórn­valda í Hong Kong traðkar á mynd af Nancy Pelosi fyrir utan ræð­is­manns­skrif­stofu Banda­ríkj­anna í borg­inni.

Takmarkaður stuðningur við sjálfstæði

Stjórn­mála­fræð­ingar eru margir hissa á tíma­setn­ingu heim­sóknar Pelosi. Banda­ríkja­stjórn hefur ekki áður ögrað Kín­verjum með slíkum hætti. Nýlegir samn­ingar Kína­stjórnar við stjórn Vla­dimírs Pútín hafa gert ljóst að ríkin tvö ætla sér að mynda ein­hvers­konar valda­blokk sem mót­vægi við hern­að­ar­mátt og ítök Banda­ríkj­anna jafnt í Asíu sem Evrópu. Var sér­stak­lega vikið að yfir­ráða­rétti Kínverja yfir Taívan í þeim samn­ingum en þau yfir­ráð eru tækni­lega sam­þykkt af stærstum hluta alþjóða­sam­fé­lags­ins, þó á mis­mun­andi for­sendum. 

Meira að segja Banda­ríkja­stjórn hafa und­ir­ritað yfir­lýs­ingu um „Eitt Kína“ sem þýðir í raun að stefnt sé að sam­ein­ingu þeirra til lengri tíma, þó að útfærslan hafi aldrei verið fest á blað og tekið sé fram að virða verði lýð­ræð­is­legt kerfi Taívana. Önnur ríki eru flest aðeins með óop­in­ber við­skipta- og stjórn­mála­tengsl við eyj­una og í því felst ákveðin við­ur­kenn­ing á því að Taívanir og Kín­verjar séu ein þjóð. Slík afstaða hafnar um leið kröfum þeirra innan Taívan sem krefj­ast form­legs sjálf­stæðis og við­ur­kenn­ingar alþjóða­sam­fé­lags­ins á algjörum sjálfs­stjórn­ar­rétti þeirra sem þar búa. 

Þeir eru raunar í miklum minni­hluta sem gera slíkar kröfur. Í nýlegri könnun sögð­ust aðeins tæp­lega 28% Taívana styðja sjálf­stæð­is­bar­átt­una en 21% von­að­ist til að halda núver­andi sam­komu­lagi, í það minnsta um tíma þar til hægt verði á koma á frið­sam­legri sam­ein­ingu. 31% svör­uðu ein­fald­lega að þeir kysu óbreytt ástand, en hvað það þýðir til lengri tíma var ekki skil­greint af könn­un­inni. Aðeins um 12% sögð­ust vilja sam­ein­ast meg­in­land­inu eins og staðan er í dag. Það sýnir flókna og klofna afstöðu þjóð­ar­innar að aðeins ári seinna var gerð önnur könnun þar sem rúmur meiri­hluti sagð­ist vilja alþjóð­lega við­ur­kenn­ingu á sjálf­stæði eða sjálf­stjórn Taívan. Á meðan hug­myndin um sam­ein­ingu er svo fjar­læg, og ógnin svo mikil, eiga margir erfitt með að gera upp hug sinn. Fyrst og fremst virð­ist fólk ótt­ast ófrið á svæð­inu og svarar vænt­an­lega eftir því. (Sjá kann­anir og þróun þeirra: https://en.wikipedia.org/wiki/Taiwan_independence_movement#Opinion_polls)

Í annarri og nýrri könnun frá þessu ári sagð­ist til dæmis aðeins þriðj­ungur Taívana trúa því að ef til kast­anna kæmi myndu Banda­ríkja­menn raun­veru­lega verja eyj­una fyrir inn­rás Kínverja. Sú tala hefur aldrei verið lægri og bendir til vax­andi van­trausts varð­andi varn­ar­sam­starfið. Til sam­an­burðar sögð­ust tveir þriðju treysta á stuðn­ing Banda­ríkja­manna í könnun sem var tekin í októ­ber í fyrra og sumir benda til Úkra­ínu­stríðs­ins sem ástæðu. 

NATO og sam­starfs­ríki þeirra hafa ekki brugð­ist við með beinum hætti, þrátt fyrir vopna­send­ingar og fjár­hags­að­stoð. Nið­ur­staðan er að Rússar hafa nú hernumið minnst fimmt­ung, ef ekki fjórð­ung, af landi Úkraínu án þess að vest­ur­veldin hafi sjálf gripið til vopna.

Um er að ræða þjóð sem er að mestu hvít á hör­und, er í bak­garði Evrópu, deilir evr­ópskri menn­ingu og átökin hafa kostað óstöðv­andi flótta­manna­flóð og mann­fall á svæð­inu — auk mat­ar­skorts um allan heim. Við hverju geta Taívanar búist ef átök brjót­ast út hinum megin á hnett­inum og þeir sem fórn­ar­lömbin hafa lítil sem engin menn­ing­ar­tengsl við vest­ur­veldin. Við fyrstu sýn hafa hern­að­ar­veldi heims­ins ekki mikið á því að græða að sker­ast í leik­inn í svo risa­vöxnum átökum. Í það minnsta eins mikið og hefur verið lofað í háleitum ræðum heims­leið­toga um að verja lýð­ræði í Austur-Asíu. 

Taívan er í ekki í NATO, af aug­ljósum land­fræði­legum ástæðum, en lands­menn fylgj­ast grannt með gangi mála þar á bæ. Mörgum finnst þeir ekki lengur hafa fullan stuðn­ing banda­manna sinna til margra ára­tuga og vilja með engu móti ögra öfl­ugum nágrönnum sínum á meg­in­landi Kína. 

Pelosi heimsækir púðurtunnu

Engu að síður valdi Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings, að heim­sækja Taívan einmitt núna. Rík­is­stjórn Joe Bidens og hans helstu ráð­gjafar eru sagðir hafa reynt að koma í veg fyrir heim­sókn­ina, sér­stak­lega vegna við­kvæms ástands í heims­mál­unum en einnig vegna þess sem er að ger­ast innan valdam­úr­anna í Peking. 

Í októ­ber heldur Komm­ún­ista­flokkur Kína mik­il­vægt flokks­þing þar sem Xi Jinping, senni­lega sterkasti leið­togi í sögu rík­is­ins, mun sækj­ast eftir sínu þriðja kjör­tíma­bili. Það er án for­dæmis og myndi festa hann í sessi, jafn­vel til dauða­dags. Með því að ýta út and­stæð­ingum og mynda mik­il­væg tengsl við flokks­gæð­inga er hann öruggur um að vinna. Engu að síður er flokks­þingið afar við­kvæmur tími og eftir hót­anir sínar um að beita her­valdi vegna Taívan deil­unnar hefur Xi ekki efni á að virka veik­burða. 

Vin­sam­legir leið­togarVladimir Pútín Rúss­lands­for­seti hitti Xi Jinping á fundi skömmu fyrir inn­rás­ina í Úkraínu og Kín­verjar hafa neitað að for­dæma inn­rás­ina.

Xi þurfi að sýna mátt sinn

Það síð­asta sem hann getur leyft sér að gera er að lúffa fyrir vest­ur­veld­unum. Hann verður að sýna her­mátt sinn, með her­æf­ingum sem munu standa yfir skammt frá Taívan næstu daga. Þá má búast við enn harð­ari yfir­lýs­ingum og for­dæm­ingum þegar nær dregur flokks­þing­inu. Xi hefur boðað stórar breyt­ingar og mik­il­vægar yfir­lýs­ingar sem hann muni svipta hul­unni af á næst­unni. Líklega hefur hann aldrei áður þurft að líta út sem jafn sterkur leið­togi og nú, ögr­anir við yfir­ráðin yfir Taívan er eitt­hvað sem hann ein­fald­lega getur ekki látið óátalið. Við­brögðin verða að vera hörð. 

Kín­verjar virð­ast þrátt fyrir það heldur ekki hafa áhuga á neinum beinum stríðs­á­tökum um Taívan í bráð, rík­is­fjöl­miðlar hafa sagt það til­valið mark­mið að stefna að sam­ein­ingu árið 2049, á hund­rað ára afmæli kín­verska alþýðu­lýð­veld­is­ins. Þá gef­ist ekki aðeins tími til sátta heldur verði efna­hags­legir og póli­tískir yfir­burðir Kína í álf­unni orðnir slíkir að þeir geti gert hag­stæð­ari samn­inga. Ekki standi til að bein­línis inn­lima eyj­una heldur gera hana að sér­stöku sjálf­stjórn­ar­svæði líkt og Hong Kong og Macau. Deila má um hversu vel það fyr­ir­komu­lag hefur gengið þar en í það minnsta virð­ist það lang­tíma­stefnan. Sem gefur enn og aftur til­efni til að draga upp klisj­una um að Kín­verjar hugsi ekki í árum heldur ára­tugum eða öldum. 

Hvað er Pelosi að hugsa?

Ástæðan fyrir því að Pelosi valdi þennan við­kvæma tíma, og neit­aði að hlýða for­seta Banda­ríkj­anna sem er jú sam­flokks­maður hennar, má senni­lega finna ef leitað er nokkra ára­tugi aftur í hennar feril. Nancy Pelosi hefur alltaf verið það sem kall­ast „haukur“ gagn­vart Kína í Washington og sem slíkur ítrekað varað við yfir­gangi þeirra og for­dæmt fram­gang kín­verskra stjórn­valda. 

Ákveðin vatna­skil urðu í póli­tískri afstöðu hennar í utan­rík­is­málum eftir fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar. Hún barð­ist ötul­lega gegn því að Kína fengi aðgang að alþjóð­legum við­skipta­bönkum og stofn­unum allt frá þeim degi og tók upp mál­stað Tíbeta, sem reitti Kínverja enn frekar til reiði.

Hún marg­bað Bill Clinton að beita sér gegn Kín­verjum á for­seta­tíð hans og biðl­aði meira að segja til and­stæð­ings síns Donald Trump, eftir að hann náði kjöri. Þá fund­aði Pelosi með lýð­ræð­is­sinnum frá Hong Kong eftir mót­mæli brut­ust út árið 2019. Hún er því ekki nýr and­stæð­ingur kín­versku rík­is­stjórn­ar­innar heldur þekkt fyrir bar­áttu sína gegn henni — og það stytt­ist í þing­kosn­ingar vest­an­hafs.

Það að hún gangi svo langt að óhlýðn­ast for­seta sínum á svo við­sjár­verðum tímum und­ir­strikar aðeins ára­tuga­langa stefnu hennar í Austur-Asíu, og trú hennar á að geta aukið fylgi Demókrata með því að gera Kína að stærra kosn­inga­máli, en er óneit­an­lega stórt skref sem gæti haft ófyr­ir­séðar afleið­ingar í náinni og lengri fram­tíð.

Kín­verjar hafa boðað her­æf­ingar í haf­inu við Taívan og eru taldir munu varpa sprengjum í hafið nærri eyj­unni, í aðeins um 16 kíló­metra fjar­lægð frá land­stein­unum. „Í dag stendur heim­ur­inn frammi fyrir vali milli lýð­ræðis og ein­ræðis,“ sagði Pelosi í heim­sókn­inni. „Banda­ríkin hafa bjarg­fasta skuld­bind­ingu til þess að verja lýð­ræðið hér í Taívan og heim­inum öllum,“ sagði Pelosi, hæst setti banda­ríski stjórn­mála­mað­ur­inn til þess að heim­sækja Taívan á þess­ari öld, áður en hún hélt til Suður-Kóreu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Páll Pálsson skrifaði
    Ýbúar tavin eru svipad margir og sjòmenn í kína
    0
  • Páll Pálsson skrifaði
    Þràtt fyrir slæma byrjun þà er Tavin lyđrædisríkki î dag kína er einræđisríki....
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár