Maður hefur háttað með ýmsu um dagana en þetta er í fyrsta sinn sem ég tek rottur með í rúmið. Og þó. Eða þannig. Ferfættar rottur skulum við hafa það.
Svona er Guðbjörg, skrifstofukona í Reykjavík nútímans að hugsa þegar hún leggst upp í rúm með bók um svartadauða. Hún les um jarðhræringar í Kína, rottuflótta og landnám þeirra í Evrópu. Um flærnar á rottunum sem bera með sér sýkilinn Yersinia Pestis. Yersinia - það hljómar eins og einhver sem er með móðursystur manns í saumaklúbbi, hugsar Guðbjörg og heldur áfram að lesa um svartadauða sem fáum eirði eftir að hann steig á land í Evrópu 1346. Guðbjörg er aðalpersóna bókar Auðar Haralds, Hvað er Drottinn að drolla? sem kom út fyrir nokkrum dögum, en söguna skrifaði Auður fyrir hartnær aldarfjórðungi. „Sagan byrjar á því að Guðbjörg fer óviljandi í tímaferðalag og lendir árið 1346 í Englandi. Hún …
Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.
Reykvísk skrifstofukona umlukin svartadauða
Auður Haralds rithöfundur segir að Guð sé algjörlega aðgerðarlaus og þess vegna sé titill bókar hennar sem var að koma út: Hvað er Drottinn að drolla? Sagan fjallar um reykvíska skrifstofukonu í nútímanum sem fer í tímaferðalag alla leið aftur til ársins 1346 og lendir inni í miðjum svartadauða.
Athugasemdir