Tæknistreita leiddi til skógarbaða

Shinrin-yoku, eða skóg­ar­bað eins og það útleggst á íslensku, er heiti á gagn­reyndri aðferð til streitu­los­unar þar sem er verið að beina hug­anum og skyn­fær­unum með­vitað að nátt­úr­unni. Shinrin-yoku var við­bragð við versn­andi lýð­heilsu í Japan og er nú hluti af heil­brigð­is­kerf­inu þar. Hér hafa þær Gunnþóra Ólafs­dóttir og Íris Lana Birg­is­dóttir í sam­vinnu við Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­víkur boðið upp á skóg­ar­böð í Heiðmörk, sem hafa þó ekk­ert með eig­in­leg böð að gera.

Tæknistreita leiddi til skógarbaða

Shinrin-yoku, er jap­anskt heiti á úti­vist sem þróuð var í Japan árið 1982. Vinnu­um­hverfi og lífs­stíll hafði breyst í kjöl­far tækni­breyt­inga, streitu­tengdir sjúk­dómar voru á upp­leið og almenn­ingur, sér í lagi hinar vinn­andi stéttir, voru hvattar til að taka sér nauð­syn­lega hvíld frá tækni og amstri hvers­dags­ins og gera sér far um að rækta tengsl sín við nátt­úr­una. Hvatn­ingin byggði á alda­gam­alli trú á heil­un­ar­mátt nátt­úru­tengsla sem og þeirri heild­rænu sýn að sam­neyti við nátt­úr­una sé óað­skilj­an­legur þáttur í heil­brigði manns­ins. Sá emb­ætt­is­maður sem átti hug­mynd­ina hélt því fram að Japanir þyrftu á heilun nátt­úr­unnar að halda. Hvatn­ing­unni var fylgt eftir með rann­sóknum á heilsu­sam­legri gagn­semi shinrin-yoku, sem nú er við­ur­kennd sem gagn­reynd aðferð til streitu­los­unar og streitu­stjórn­unar og er virkur þáttur í heil­brigð­is­kerfi Japana. Aðferðin breið­ist nú hratt um heim­inn, einkum sem for­vörn og mót­vægi við streitu hins dag­lega lífs, en einnig sem hluti af með­ferð. 

Gunnþóra Ólafs­dóttir …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár