Mynd: Helgi Seljan

„Það raskar enginn grafarhelgi að gamni sínu“

Upp­gröftur á jarð­neskum leifum Kristins Hauks Jóhann­es­sonar úr kirkju­garði á Barða­strönd er án for­dæma í Íslands­sög­unni. Fjöl­mennt lög­reglu­lið tók þátt í aðgerð­inni. Stundin var á staðnum ásamt Þórólfi Hilbert Jóhann­essyni hálf­bróður Kristins Hauks og kvik­mynda­tökuliði, sem ásamt blaða­mönnum Stund­ar­innar vinna að heim­ild­ar­mynd um þetta sér­stæða mál.

„Fyrir austan hið ten­ings­mynd­aða Haga­fjall fórum við fram­hjá Haga, einni hinni bestu bújörð á Íslandi. Um feg­urð og land­rými og frjó­semi lands bera fáar jarðir af Haga. Hér hefði jafn­vel útlendur maður getað notið eins konar jarð­neskrar para­dísar,“ svona lýsti Ebenezer Hend­er­son, skoskur klerkur, kirkju­staðnum Haga á Barða­strönd árið 1815. Ebenezer, sem var víð­för­ull maður, kom við í Haga og heill­að­ist aug­ljós­lega af þeirri „jarð­nesku para­dís“ á tveggja ára ferða­lagi sínu um Ísland.

Ríflega tvö hund­ruð árum síðar, í lok maí árið 2022, eru aftur mættir gestir í Haga. Full­trúar ver­ald­legs og geist­legs valds, í stórum bíla­flota, aka upp heim­reið­ina stuttu eftir mjaltir, klukkan rúm­lega níu að morgni. Svo fjöl­mennt lög­reglu­lið hefur sjaldan eða aldrei sést sam­an­komið á Barða­strönd.

Það er íslenskt vor; glennisól, en hiti helst inn­an­dyra – eða í skjóli frá haf­gol­unni, þá utan skugga.

Á land­náms­jörð­inni Haga reka þau …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár