Faðir Bjarna tvisvar fengið að kaupa ríkiseignir á undirverði

Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, hefur tví­vegis keypt rík­is­eignir á und­ir­verði í einka­væð­ing­ar­ferli. Þetta eru við­skiptin með SR-mjöl árið 1993 og kaup hans á hluta­bréfum í Íslands­banka árið 2022. Í báðum til­fellum hefur Rík­is­end­ur­skoðun tekið söl­una á eign­unum til rann­sóknar. Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sem helst var gagn­rýndur fyrir söl­una á SR-mjöli, segir að gagn­rýnin eigi ekki rétt á sér.

Faðir Bjarna tvisvar fengið að kaupa ríkiseignir á undirverði
„Stjórn­ar­for­maður Íslands“ Benedikt Sveins­syni var Stundum lýst sem „stjórn­ar­for­manni Íslands“ undir lok síð­ustu aldar þar sem hann sat í svo mörgum stjórnum. Mynd: Morgunblaðið/Golli

Í árs­lok 1993 keypti Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar, rík­is­fyr­ir­tækið SR-mjöl af Ríkinu. Rík­is­end­ur­skoðun rann­sak­aði þá einka­væð­ingu og taldi að Benedikt og við­skipta­fé­lagi hans, Jónas Aðal­steins­son, hefðu fengið að kaupa fyr­ir­tækið á umtals­verðu und­ir­verði og reglur um söl­una hafi verið brotnar.

Í skýrslu um einka­væð­ing­una í apríl árið 1994 sagði: „Rík­is­end­ur­skoðun telur að þeim verk­lags­reglum sem sam­þykktar voru af rík­is­stjórn­inni 12. októ­ber 1993 og fylgja skal við fram­kvæmd á einka­væð­ingu hafi ekki verið fylgt sem skyldi við und­ir­bún­ing og sölu hluta­bréfa í SR-mjöli hf. Að mati stofn­un­ar­innar var sú ráð­gjöf sem stjórn­völd fengu við söl­una, ekki að öllu leyti eins vönduð og æski­legt hefði verið.“

Rík­is­end­ur­skoðun gerði ekki ein­ungis athuga­semdir við und­ir­bún­ing, ráð­gjöf og sjálfa söl­una, heldur einnig þá stað­reynd að verðið sem fékkst fyrir fyr­ir­tækið, var ein­ungis helm­ingur þess félagið var sagt eiga í eignum umfram skuldir.

„Sam­an­burður á mati til­boðs­gjafa á framtíðar­tekju­virði SR-mjöls hf. og mati VÍB bendir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurdur Hermannsson skrifaði
    No comments.
    0
  • BH
    Benjamín Hansson skrifaði
    Óskaplegur gauragangur er út af þessari bankasölu. Sjálfstæðismenn almennt og þorri stjórnarþingmanna virðast ánægðir með framtakið. – Sorglegast er að afar Bjarna eru sennilega fallnir frá. Það hefði svo verið gráupplagt að gauka einhverjum krónum að körlunum í leiðinni.
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Mikill vill meira seigir einhversstaðar og að margur verður af aurum api! Þetta er auðvaldið sem öllu stjórnar á landinu. Lesist MAFÍAN!
    1
  • Jón Marteinsson skrifaði
    Finst fólki í lagi að vera með svona fétækra hjálp þetta eru menn sem eiga nóga peninga og þurfa ekki aumingja hjálp.
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Ferilskrá þeirra feðga er ekki falleg, aflandseyjaleikir, huldueignir, algert lack of due diligence, skýrslur svæfðar, rannsakendur frystir (fjárhagslega og laga og regluverkslega ), huldubankar, huldudílar, Alsheimer og Munchausensögur, mýtukennd heppni ( fjárstreymi fyrir fall banka t.d. ) osf osf... eru menn hissa þó Samherji komi bara nokkuð hreinn úr samanburði ?

    Og þegar ungur temur það sem gamall venur þá þarf ekki að undra að íslendingar teljist varhugaverðir þegar sá ungi er fjármálaráðherra landsins.
    6
    • Siggi Rey skrifaði
      Íslenska MAFÍAN sem völdin hefur og stór hluti þjóðarinnar velur þennan viðbjóð.
      1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    SR var selt fyrir 750 milljónir. 125 milljónir voru greiddar við sölu, afgangurinn var borgaður út úr veltunni.
    Endurstofnverð fyrirtækisins var metið á 5 milljarða á þeim tíma.
    Það lá á að selja áður en gengið var í ESS 1995, þá hefði orðið að auglýsa á Evrópska efnahagssvæðinu.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár