Bjarni segist ekki „vera mikið inni í“ fjárfestingum föður síns: Stýrði þeim fyrir hrun

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, stýrði fjár­fest­ingum föður síns Bene­dikts Sveins­sonar á árunum fyrir hrunið 2008. Þá var Benedikt umsvifa­mik­ill fjár­festir í olíu­fé­lag­inu Esso, síðar N1, Kynn­is­ferðum, Glitni, Icelandair og fleiri félögum. Glitn­is­skjölin árið 2017 sýndu hvernig það var Bjarni sem stýrði þessum fjár­fest­ingum sam­hliða þing­mennsku sinni. Nú hefur komið í ljós að fjár­fest­ing­ar­fé­lag föður Bjarna keypti hluta­bréf í lok­uðu útboði á vegum íslenska rík­is­ins og seg­ist ráð­herr­ann ekki hafa vitað af því.

Bjarni segist ekki „vera mikið inni í“ fjárfestingum föður síns: Stýrði þeim fyrir hrun
Ekki mikið inni í fjár­fest­ingum föður síns Bjarni Bene­dikts­son segir að hann sé „ekki mikið inni í“ fjár­fest­ingum föður síns í dag.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur ekki svarað þeirri spurn­ingu Stund­ar­innar hver nákvæm­lega aðkoma hans er í dag að fjár­fest­ingum föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar, og félaga hans. Stundin sendi honum spurn­ingar um þetta í gær eftir að í ljós kom að félag föður hans, Haf­silfur ehf., hafði keypt hluta­bréf í Íslands­banka af íslenska rík­inu í lok­uðu útboði sem Banka­sýsla rík­is­ins hafði umsjón með.

Bjarni stýrði fjár­fest­ingum föður síns á árunum fyrir hrunið, eins og fram kom í Glitn­is­skjöl­unum svoköll­uðu árið 2017. Meðal ann­ars var um ræða fjár­fest­ingar Haf­silf­urs ehf. í meðal ann­ars eign­ar­halds­fé­lag­inu BNT ehf. og olíu­fé­lag­inu N1. 

Stundin hefur ítrekað spurn­ing­arnar sem sendar voru til Bjarna í gær en ekki fengið svör. 

Tekið skal fram að Bjarni skipar stjórn Banka­sýslu rík­is­ins sem fjár­mála­ráð­herra og heyrir stofn­unin því undir hans vald­svið þó stofn­unin sé sjálf­stæð og það er ekki í verka­hring ráð­herra að vera með putt­ana í ein­staka ákvörð­unum. Í mál­inu liggja ekki fyrir sann­anir um að Bjarni hafi með ein­hverjum hætti hlut­ast til um útboðið á bréf­unum með óeðli­legum hætti. 

Bjarni segist engar upplýsingar hafa haft

Bjarni segir í við­tali við Morg­un­blaðið í dag að hann hafi ekki vitað af þess­ari fjár­fest­ingu félags föður síns fyrr en í gær þegar hann fékk list­ann með nöfnum þeirra sem tóku þátt í útboð­inu í gær.  „Það er rétt að ítreka að ég kem ekki að ákvörðun um úthlutun til ein­stakra aðila,“ er haft eftir Bjarna. Faðir Bjarna, sem er 84 ára gam­all, keypti fyrir tæpar 55 millj­ónir króna í gegnum félag sitt. Athygli vekur að í frétt Morg­un­blaððs­ins er það ekki haft eftir Bjarna í beinni til­vitnun að hann hafi ekki vitað af þess­ari fjár­fest­ingu föður síns. 

Miðað við svör Bjarna þá fékk hann ekki upp­lýs­ingar um kaup föður síns á hlut­bréf­unum á þeim rúmu tveimur vikum sem liðu frá því að útboðið á bréf­unum fór fram, þann 22. mars, og þar til í gær, mið­viku­dag­inn 7. apríl. Umræða um útboðið á Íslands­banka­bréf­unum var mjög mikil í sam­fé­lag­inu á þessum tíma og ræddi Bjarni þau meðal ann­ars ítrekað á Alþingi og í fjöl­miðlum. 

„Sko, ég hef í raun og veru í mörg ár óskað eftir því að vera ekk­ert mikið inni í því sem hann er að gera“
Bjarni Bene­dikts­son

Í við­tali við Bítið á Bylgj­unni í morgun sagði Bjarni jafn­framt aðspurður að hann hefði í „mörg ár“ óskað eftir því að fá ekki að vita „mikið“ hvað faðir hans væri að gera í sínum fjár­fest­ingum. „Sko, ég hef í raun og veru í mörg ár óskað eftir því að vera ekk­ert mikið inni í því sem hann er að gera. Og ég held að það sé lang­best þannig.“

Óvissir með eig­and­annStarfs­menn Glitnis voru óvissir um það fyrir hrunið 2008 hvort Bjarni ætti Haf­silfur eða faðir hans, Benedikt Sveins­son. Þessi óvissa kemur til dæmis fram í þessum pósti þar sem Haf­silfur er talið vera eign Bjarna sjálfst. Gögn um félagið átti að senda til einka­banka­stjóra Bjarna og Bene­dikts, Bjarna Mark­ús­sonar.

Faðir hans var hluthafinn en Bjarni stjórnandinn

Þessi orð Bjarna um sam­band sitt við fjár­fest­ingar föður síns má túlka þannig að einu sinni þá hafi raunin verið önnur. Það er að segja að einu sinni hafi Bjarni verið meira inni í því sem Benedikt Sveins­son var að gera í sínum fjár­fest­ingum. Þetta var líka ein af nið­ur­stöð­unum í Glitn­is­skjöl­unum svoköll­uðu sem sýndu fram á það að Bjarni stýrði í raun fjár­fest­ingum föður síns á árunum fyrir hrunið 2008. 

Þetta kom fram í fjölda tölvu­pósta og gagna sem urðu opin­ber árið 2017 þar sem starfs­menn Íslands­banka lýstu því hvernig Bjarni Bene­dikts­son, og Hermann Guð­munds­son, voru fyr­ir­svars­menn fyrir fjár­fest­ing­ar­hóp þar sem faðir Bjarna og föð­ur­bróðir hans, Einar Sveins­son, voru aðal­fjár­fest­arnir. 

Í einum tölvu­pósti, frá árinu 2005, sem fjall­aði um vænt­an­leg kaup þessa hóps á Toyota-umboð­inu sagði þáver­andi fram­kvæmda­stjóri í bank­anum, Einar Örn Ólafsson, að Bjarni og Hermann væru þeir sem bank­inn ræddi við um fjár­mögnun kaupanna.  „En við [Einar Sveins­son] höfum ekki hist eða tal­ast vegna máls­ins og ég hef engar efa­semdir um að málið verði, hér eftir sem hingað til, alfarið í höndum Bjarna Ben og Hermanns, svona gagn­vart mér og bank­anum.“

Þegar þessi sami fjár­festa­hópur gerði til­boð í olíu­fé­lagið Esso, sem síðar varð að N1, árið 2006 var það Bjarni sem var í for­svari fyrir hóp­inn ásamt Hermanni. Í sam­komu­lag­inu við Íslands­banka sagði:  „BB[Bjarni Bene­dikts­son]  og HSG [Hermann Sævar Guð­munds­son] og hópur fjár­festa á þeirra vegum munu leggja fram sem hlutafé í félagið reiðufé að fjár­hæð kr. 2.000 millj­ónir.“  Bjarni átti hins vegar ekki sjálfur og per­sónu­lega stóran hlut í N1 eftir að við­skiptin gengu í gegn, þó hann hafi orðið stjórn­ar­for­maður félags­ins, meðal ann­ars í krafti hluta­fjár­eignar föður síns í fyr­ir­tæk­inu. 

Þetta sama ár, 2006, ræddi starfs­maður Íslands­banka, Rósant Már Torfason, beint við Bjarna um sjö millj­arða króna lán sem til stóð að veita fyr­ir­tæki sem var að stærstu leyti í eigu föður hans og föð­ur­bróður. „[V]arð­andi lánið þá eru hug­mynd­irnar sem ég fór yfir með Bjarna Ben á Kastrup í dag eft­ir­far­andi: Lánið endar vænt­an­lega í 7 millj­örðum vegna ýmis kostn­aðar sem þarf að greiða í sam­bandi við að pakka þessu saman og koma á markað.“ 

Fjár­fest­ingar þessa hóps end­uðu á því að Íslands­banki og fleiri bankar þurftu að afskrifa um 130 millj­arða króna lán til sam­stæð­unnar á árunum eftir hrun. 

Glitn­is­gögnin sýndu fram á það að það voru yfir­leitt Bjarni Bene­dikts­son og Hermann Guð­munds­son, ekki Benedikt Sveins­son og Einar Sveins­son, sem stýrðu þessum fjár­fest­ingum jafn­vel þó hinir tveir síð­ar­nefndu hafi verið stærstu fjár­fest­arnir í fyr­ir­tækj­unum sem þeir stýrðu. Bjarni dró sig út úr þátt­töku í fjöl­skyldu­fyr­ir­tækj­unum eftir hrunið 2008 þegar hann til dæmis hætti sem stjórn­ar­for­maður N1 í des­em­ber það ár. 

Miðað við það sem Bjarni segir nú þá er þetta ekki lengur svona: Hann hvorki stýrir né veit „mikið“ um það hvað faðir hans er að gera í sínum fjár­fest­ingum.  Ein af þessum fjár­fest­ingum eru hluta­bréfa­kaupin í Íslands­banka, sam­kvæmt Bjarna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIG
    Sigurður Ingi Georgsson skrifaði
    Staðreynd lífsins er að „þangað vill fé sem fér er fyrir“. Ég er ekkert að svekkja mig á Bjarna, hann fæðist inní fjölskyldu (ætt) þar sem auður hefur safnast saman í aldanna rás. Það sem vekur upp reiði mína er þetta lið sem hefur auðgast á arfavitlausum lögum um auðlyndir okkar. Það fær að borga sér arð næstum af geðþótta. Það flytur arðinn frá landsbyggðinni og kaupir og byggir upp fasteignir og fyrirtæki hér á höfuðborgarsvæðinu í stað þess þó að leyfa viðkomandi sveitafélagi að njóta. Alþingi verður að hafa dug til að stoppa þetta.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár