Bjarni segist vilja birta allan hluthafalista Íslandsbanka ef lög leyfa

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra vill að Íslands­banki birti allan hlut­haf­alista bank­ans ef lög heim­ila það. Þetta sagði Bjarni í þing­ræðu um útboð rík­is­ins á hluta­bréfum í Íslands­banka í gær. Útboð rík­is­ins á 22,5 pró­senta hlut í bank­anum á afslátt­ar­verði hefur verið gagn­rýnt úr ýmsum áttum, meðal ann­ars af með­limum úr stjórn­ar­and­stöð­unni. Íslands­banki seg­ist ekki mega afhenda hlut­haf­alist­ann til opin­berrar birt­ingar.

Bjarni segist vilja birta allan hluthafalista Íslandsbanka ef lög leyfa
Bjarni vill birta list­ann Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði á Alþingi í gær að hann von­að­ist til þess að hægt yrði að birta nöfn þeirra fjár­festa sem tóku þátt í útboð­inu á hluta­bréfum Íslands­banka í síð­ustu viku. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vill að Íslands­banki birti hlut­haf­alista bank­ans í kjöl­far útboðs á hlut rík­is­ins í bank­anum. Sjálfur seg­ist Bjarni ekki hafa séð list­ann yfir kaup­endur bréf­anna. Þetta sagði Bjarni í ræðu á Alþingi í gær þar sem rætt var um útboðið á hlutum rík­is­ins í bank­anum. Þá seldi íslenska ríkið 22,5 pró­sent hlut í bank­anum fyrir tæp­lega 43 millj­arða króna og fól verðið í sér ríf­lega tveggja millj­arða króna afslátt miðað við skráð gengi bank­ans í Kauphöll Íslands á þeim tíma.

Salan á hlut rík­is­ins hefur verið gagn­rýnd, meðal ann­ars af með­limum úr stjórn­and­stöð­unni. Samtals keyptu 430 aðilar bréf í Íslands­banka í útboð­inu en það var gert í gegnum ráð­gjafa stjórn­valda á mark­aði, verð­bréfa- og fjár­mála­fyr­ir­tæki sem sér­hæfa sig í slíku. 

Bjarni vill og vonar að hægt verði að birta hluthafalistann

Orðrétt sagði Bjarni, eftir að Kristrún Frosta­dóttir úr Sam­fylk­ing­unni, hafði spurt ráð­herr­ann hvort list­inn yrði birtur. „Varðandi birt­ing­una þá hef ég hér rakið að Íslands­banki mun gera aðgengi­legan allan hlut­haf­alist­ann eins og hann var fyrir útboðið og eins og hann lítur út eftir útboðið þannig að þar ætti að vera hægt að sjá þetta. Ég hef sömu­leiðis kallað eftir en ekki enn fengið (Forseti hringir) nið­ur­stöðu úthlut­un­ar­innar og vil gera hana aðgengi­lega og mun gera það, nema mér séu ein­hverjar hömlur settar með lögum til þess að gera það, sem ég vona og trúi ekki að sé.“

„Varðandi birt­ing­una þá hef ég hér rakið að Íslands­banki mun gera aðgengi­legan allan hlut­haf­alist­ann eins og hann var fyrir útboðið og eins og hann lítur út eftir útboðið þannig að þar ætti að vera hægt að sjá þetta“
Bjarni Bene­dikts­son

Spurning Kristrúnar til Bjarna um þetta atriði, birt­ingu á nöfnum fjár­fest­anna, hafði hljóðað svona, og vís­aði hún meðal ann­ars til þess að salan væri ógagnsæ á þessu stigi máls­ins þar sem leynd væri yfir nöfn­unum: „Ég ætla  að fá að ítreka spurn­ingu mína um hvort þessir aðilar, þessi nöfn, muni líka birt­ast á þeim lista sem við fáum, þ.e. að við fáum að sjá alla þá aðila sem var boðið að kaupa í þessu ferli. Það er ekki gott í ferli sem á að vera gagn­sætt og yfir alla gagn­rýni hafin að það ber­ist slúður, gróu­sögur, upp­lýs­ingar um að sumir hafi fengið sím­tal frá sínum verð­bréfa­miðl­ara og aðrir ekki. Hug­myndin á bak við til­boðs­verð af þessu tagi þar sem verið er að grípa inn í mark­aðs­verð — í almenna útboð­inu á sínum tíma var bank­inn ekki kom­inn á markað — er að það séu góð og gild rök fyrir slíku. Ég get ekki séð, þegar var svona mikil umfram­eft­ir­spurn hjá stórum aðilum sem vildu fá inn, að það hefði átt að hleypa svona litlum fjár­festum að. Fáum við að sjá þessi nöfn? Munu þau vera á þessum lista og hvenær kemur hann?“

Hluthafar mega sjá hluthafalistann

Stundin bað um hlut­haf­alista Íslands­banka frá Kauphöll Íslands. Blaðið fékk hins vegar þau svör að kaup­höllin birti ein­ungis 20 stærstu hlut­hafa skráðra félaga. Því er ekki hægt að fá list­ann frá Kauphöll Íslands. 

Samkvæmt lögum um hluta­fé­lög, 30 gr., eiga hlut­hafar hluta­fé­lags rétt á að skoða hlut­haf­alist­ann, auk þess sem stjórn­völd hafa aðgang að honum. Í síð­ustu máls­grein umræddrar greinar segir:  „Hluta­skrá skal ætíð vera geymd á skrif­stofu hluta­fé­lags, og eiga allir hlut­hafar og stjórn­völd aðgang að henni og mega kynna sér efni hennar.“

Miðað við orð Bjarna Bene­dikts­sonar á þingi í gær liggur að hans viti ekki fylli­lega ljóst fyrir hvort Íslands­banki eða stjórn­völd mega birta umræddan hlut­haf­alista Íslands­banka opin­ber­lega eða ekki sam­kvæmt lögum. Bjarni vonar þetta hins vegar segir hann. 

13 stærstu Íslands­banki seg­ist aðeins mega birta nöfn þeirra hlut­hafa sem eiga meira en 1 pró­sent í bank­anum. Skjaskot af hlut­haf­alista bank­ans á heima­síðu hans.

Bankinn má ekki birta listann

Samkvæmt svörum frá Íslands­banka má bank­inn ekki birta allan hlut­haf­alist­ann á heima­síðu sinni af tveimur ástæðum. Sú fyrsta er að per­sónu­vernd­ar­lög koma í veg fyrir birt­ingu alls list­ans. Seinni ástæðan er sú, sam­kvæmt svari bank­ans, að bank­inn birtir ekki meiri upp­lýs­ingar um hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins en sem eðli­legt getur talist að hann birti gagn­vart við­skipta­vinum bank­ans. 

Í svari Íslands­banka kemur fram að bank­inn birti því aðeins yfir­lit yfir þá hlut­hafa, ein­stak­linga eða félög, sem eiga meira en 1 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu.  Opinber hlut­haf­alisti Íslands­banka telur nú 13 nöfn aðila sem eiga meira en 1 pró­sent í bank­anum. 

Samkvæmt svari Íslands­banka getur bank­inn því ekki birt umræddan lista þar sem hann má það ekki sam­kvæmt lögum.

Eina leiðin til þess að í ljós komi hvaða fjár­festar tóku þátt í útboði bank­ans í síð­ustu viku virð­ist því vera sú að ein­hver hlut­hafi eða hlut­hafar skoði list­ann og afriti hann með ein­hverjum hætti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Bjarni, það er enginn að biðja um hluthafalistann. Við viljum bara fá að vita hverjir keyptu af okkur hlutabréfin í Íslandsbanka í síðasta útboði. Við eigendurnir hljótum að hafa rétt á að vita það.
    0
  • Sigga Svanborgar skrifaði
    Þetta er nú meiri leikritið.......þau halda greinilega alltaf að við erum hálfvitar...
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár