„Ég vissi strax að hann væri horfinn“

Aðeins lukkan olli því að Þröstur Bjarni Eyþórs­son er til frá­sagnar um slysið þegar frændi hans og vinur, Leif Magnús Grét­ars­son Thisland, lést í Núpá í Sölvadal í des­em­ber 2019. „Ég veit ekki af hverju ég slapp, ég skil það ekki enn þá.“

„Ég vissi strax að hann væri horfinn“
Vildi bara finna hann Þröstur Bjarni segir að hann hafi vitað það strax að Leif frændi sinn væri dáinn. Það hefði bara þurft að finna hann, hann vildi ekki vita af honum ein­hvers staðar þarna týndum. Mynd: Halldór Vagn Hreinsson / HSSK

Þröstur Bjarni Eyþórs­son hefur lítið eða ekki talað áður um slysið sem olli dauða Leifs Magnúsar Grét­ars­sonar Thislands, frænda hans og vinar sem þá var aðeins 16 ára gam­all, í des­em­ber 2019. Hann lýsir því nú í fyrsta sinn opin­ber­lega, í sam­tali við Stundina, sem gerð­ist kvöldið 11. des­em­ber við Núpá í Sölvadal í Eyja­firði.

„Það var blíð­skap­ar­veður, logn og stjörnu­bjart, þegar við fórum niður að stíflu til að reyna að koma virkj­un­inni af stað. Hún var búin að vera stopp í nokkra daga, vegna þess að ég hafði ekk­ert kom­ist að henni. Það var búið að vera algjör­lega vit­laust veður í tvo eða þrjá daga áður en þetta ger­ist og ekki við­lit að líta á virkj­un­ina. Sem betur fer hafði ég olíu á tanknum og gat notað dísel­raf­stöð­ina. Það fóru hins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár