Kynferðisleg friðhelgi á stafrænum tímum

„Okkur ber skylda til að gera eitt­hvað,“ segja sér­fræð­ingar sem starfa á sitt­hvorum enda þess að vinna gegn staf­rænu ofbeldi, net­níði og hrelliklámi, og trúa því að ger­endur muni alltaf finna leið til að beita ofbeldi. Hug­myndir sem birt­ast á net­inu geta end­ur­speglað ætl­un­ar­verk manna og hafa kostað fólk lífið. Hrelliklám snú­ist til um völd en ekki klám, að sækja nekt gegn vilja ein­hvers, því nóg er af nekt á inter­net­inu, en ef við ætlum að skrímsla­veiðar munum við finna nágranna okkar.

Kynferðisleg friðhelgi á stafrænum tímum

Sophie Mortimer og Christian Mogensen hafa fengið sér sæti í annarri sæta­röð í ann­ars tómum sal Borg­ar­leik­húss­ins. Fyrir framan þau blasir stóra sviðið við, tómt eins og sal­ur­inn fyrir utan þrjá stóla. Fyrr um dag­inn sátu þau í þessum stólum sem sér­fræð­ingar á sviði kyn­ferð­is­legrar frið­helgi á staf­rænum tímum á mál­þingi um sama við­fangs­efni. 

Sophie er yfir­maður Revenge Porn Helpline í Bret­landi, sam­tök sem sér­hæfa sig í staf­rænu kyn­ferð­is­of­beldi, en í gegnum þau hefur hún stutt brota­þola slíkra brota ásamt því að berj­ast fyrir kerf­is­breyt­ingum í mála­flokknum. Samtökin sem Sophie stofn­aði hafa náð sam­starfi við tæknirisa á borð við Google og Meta til að vinna að því að fjar­lægja myndefni sem er birt í óþökk ein­hvers af inter­net­inu.

Sophie Mortimer

Christian er danskur fræði­maður og einn höf­unda skýrsl­unnar „Hið reiða inter­net – ógn við kynja­jafn­rétti, lýð­ræði og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár