Stjórinn Þor­steinn Már Bald­vins­son stýrir bæði Samherja á Íslandi og Samherja Holding, sem heldur um erlenda starf­semi. Félögin voru í eigu sömu aðila þar til flest barna aðal­eig­enda Samherja keyptu for­eldra sína úr íslensku starf­sem­inni.

Samherjafélög rekin frá DNB í faðm Arion banka

Arion banki sótti um kenni­tölu fyrir eitt af Kýp­ur­fé­lögum Samherja árið 2020 til að hægt væri að opna banka­reikn­inga fyrir það. Það var nokkrum mán­uðum eftir að sama félag hafði verið rekið úr við­skiptum við norska bank­ann DNB eftir rann­sókn á aðgerðum bank­ans varð­andi pen­inga­þvætti. Arion banki virð­ist ekki hafa upp­fyllt skil­yrði laga um pen­inga­þvætt­is­varnir þegar hann kom fram fyrir hönd félags­ins gagn­vart Skatt­inum.

„Öll starf­semi Samherja á Kýpur var flutt til Hollands fyrir rúmu hálfu ári,“ full­yrti Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja hf. og Samherja Holding ehf., í bréfi til starfs­manna fyrr­nefnds fyr­ir­tækis í febr­úar á síð­asta ári. Það er þó ekki rétt, sýna gögn sem fyr­ir­tækið sjálft hefur lagt fyrir stjórn­völd um Kýp­ur­fé­lögin sem heyra undir Samherja Holding. Þessi félög eru þunga­miðjan í erlendri starf­semi útgerð­ar­ris­ans og lyk­ill­inn að fjár­hags­legu skipu­lagi þeirra.

Raunar var það nokkrum mán­uðum áður en Þor­steinn Már skrif­aði þetta bréf, um svipað leyti og hann vildi meina að útgerðin hefði hætt starf­semi sinni á Kýpur, sem eitt þess­ara félaga, Esja Shipping Ltd., opn­aði banka­reikn­ing á Íslandi. Það er eitt þeirra félaga sem norski stór­bank­inn DNB rak úr við­skiptum eftir upp­ljóstrun Namib­íu­máls­ins árið 2019.

Í samband án áreiðanleikakönnunar

Samherji hefur verið í við­skiptum við fleiri en einn banka á Íslandi. Fyrir bank­ana getur verið mikið fengið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Góð grein.

    Kannski fer að renna upp ljós fyrir mönnum að Samherji er afleiðing og einkenni... ekki kölski sjálfur og það er kerfið á Íslandi sem menn þurfa að fara að rýna og gagnrýna... því enginn labbar með fullar töskur fjár milli landa. Bankar eru gerendur í þessum málum og þó svo slitastjórn Stanford hafi aðeins náð 3 af 5 atriðum sem þeir sóttust eftir í Toronto þá snýst sú barátta að kerfinu, aðstoðaraðilum ... í þessu tilfelli beneficial owners hlutverki bankanna og slíkra aðila. Og ber að horfa á íslensku bankana í því ljósi.

    Due diligence íslenskra banka er meiri sýndarmennska en þeirra norsku og er þá mikið sagt.

    Því beneficial owners eru eigendur ávinnings af gjörningi ... þurfa ekki einu sinni sinni að vera eigendur né í raun tengdir eigendakerfi fyrirtækja... bara hafa hag af gjörningnum. Þessvegna er BO skráning frekar gagnlitil líkt og Unexplained Wealth í þeirri mynd sem íslenska framkvæmdarvaldið líkt og mörg önnur framkvæmdarvöld útfæra það... eins og sést greinilega þegar horft er á Júlíus Vifilmálið og önnur þar sem menn geta ekki gefið sannanir fyrir öflun fjármunanna. Upptaka ávinnings er meginforsenda forvarnargildis slíkra aðgerða.

    Og í þessu tilfelli er Arionbanki Beneficial Owner í þessum málum þar sem þeir hafa ávinning að aðkomu sinni... óháð hvort þeir eru að þvo peninga eða bara veita "eðlilega" þjónustu. Jamm... nokkuð ljóst að Arionbanki er hættulega nálægt peningarþvætti.... nýrra eða gamalla peninga.

    Svo meiri umfjöllun um íslenska kerfið í þessu máli og minna drama um fjölmiðlafórnarlömb og drama og í raun þá þurfa menn frekar að beina sjónum á hægagangi og þykjustuleikjum skatts, viðskiftakerfis og rannsóknar og dómsmálakerfinu okkar en hvort Samherji fær makleg málagjöld. Samherji fær þau... hann er lítill hákarl sem synti á haf út og stóru ránfiskarnir fylgjast með honum... bara bíða eftir að íslenski þykjustuleikurinn klárist.....því það verða ekki lög og reglur né framkvæmdavalið á Íslandi sem verður þeim dýrt... heldur skaðabóta og svika lögmannastofurnar sem hafa fylgst með Fishrot frá upphafi... og langt í frá að bandarísk yfirvöld og FCPA aðilar hafi misst áhugann á þeim.

    Ef Dekhillmálið er skoðað þá sést fljótt að aðal BO í þeim leik er ekki Bank Julius Baer þó svo hann sé vissulega einnig BO og í raun skiftir litlu máli hvort bankinn átti Dekhill og hvort það var líkt og PACE gamla í Panama (Landsbankinn Lux ef ég man rétt), eða bara "financial vechicle" sem gekk kaupum og sölum.

    Samherjamálið hefur snúist upp í fjölmiðladrama þar sem fjölmiðlar eru aðalleikendur í hlutverki þolenda... en ekki í skoðun á íslenskri kerfisspillingu.

    Og það er algengur og almennur misskilningur að ekki sé hægt að rekja viðskiftasögur afskráðra félaga erlendis... í raun auðveldara en að rekja viðskiftasögur afskráðra félaga innanlands.

    PS. Holland er engin vörn... eins og Samherjamenn myndu vita ef þeir hætta að spila vasabilljard og horfa á vildarvini í íslenska kerfinu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár